Spiderblanket

Sumar sumar sumar
Æðislegt fyrsta sumar Lárusar. Síðasta vika var auðvitað bara eins yndisleg og íslenskt sumar verður og við Lárus nutum þess í botn. Ég rölti með barnavagninn um miðbæinn og naut sólarinnar á Austurvelli með krílinu. Lárus er orðinn svo svakalega duglegur að sitja og koma sér úr sitjandi stöðu á magann að hann getur nú rannsakað umhverfi sitt, smakkað aðeins á grasinu og svona. Þetta er alveg ótrúlega skemmtilegt og maður sjálfur kynnist heiminum bara alveg upp á nýtt í gegnum litla dýrið.

Lárus er líka byrjaður að koma sér aðeins áfram en yfirleitt kemst hann bara afturábak. Við foreldrarnir erum að vona að skriðtæknin fari að þróast aðeins hjá honum en við þurfum stöðugt að vera að bjarga honum úr hornum alveg fokillum yfir þessu getuleysi sínu.

Annars er Lárus orðinn algjör matgæðingur og hámar í sig kjöt og hvaðeina. Hann er þó sérstaklega hrifinn af kæfubrauði og hendir öllu frá sér þegar hann sér möguleika á slíkum kræsingum. Þessi átgleði barnsins veldur því að við foreldrarnir (eða öllu heldur brjóstin á mér) erum aðeins frjálsari og höfum nýtt okkur það til þess að fara í grillveislur, bíóferðir og almennt stuð enda ótrúlega rík af yndislegu pössunarfólki. Ég sló þessu m.a.s. upp í kæruleysi og fékk mér í fyrsta sinn í glas (heila fjóra litla bjóra hvorki meira né minna) og varð ótrúlega hress.

Í byrjun júlí fórum við með ömmu Sólrúnu og afa Þórð í óvissuferð til Svíþjóðar í tilefni af sjötugsafmælis þeirra. Í Svíþjóð hittum við Steinunni, Árna Grím, Nínu Þorbjörgu og Þórð og öll saman héldum við svo með ferju til Visby á Gotlandi. Þetta var ótrúlega skemmtileg ferð enda Visby gullfallegur miðaldarbær og veðrið lék við okkur, rúmlega 25 gráðu hiti og sól allan tímann. Það var gaman að sjá litlu frændurna saman en þeir geta þó verið ansi harkalegir hvor við annan. Þórður hefur einmitt gífurlega hreyfigetu og þeysist um frænda sínum til mikillar öfundar.

Stórfjölskyldan hélt síðan ferðalaginu áfram þegar til Íslands var komið og fór hringinn í kringum landið. Vorum furðulega heppin með veður allan tímann og hefðum alveg viljað stoppa oftar, alveg hrikalega fallegt land sem við eigum. Síðasta hluta ferðarinnar dvöldum við í orlofsvillu afa Þórðar og ömmu Sólrúnar á Akureyri þar sem alltaf er svo gott að vera! Semsagt ótrúlega vel heppnaðir alþjóðlegir fjölskylduendurfundir.

Skelli inn einni mynd af hjónunum í tilefni afmælanna.

Á þessum tveimur vikum sem við höfum verið heima höfum við haft það afar notalegt, notið þess að sofa í okkar rúmi og grillað allskonar góðgæti.  Það verður samt að segjast að litla íbúðin okkar er orðin ansi þröng og þrengist enn frekar núna þegar við erum að bíða eftir því að fá stóru flottu íbúðina okkar á Hofsvallagötu afhenta. Við erum vægast sagt mjög spennt og erum mikið að velta fyrir okkur eldhúsinnréttingum, húsgögnum, baðkerum og garðumhirðu (við eigum garð!!). Við erum búin að gera upp litlu íbúðina í kjallaranum sem við fengum afhenta við undirritun og höfum leigt hana út. Nú bíðum við bara og bíðum eftir hinni en við ættum að fá hana í síðasta lagi í lok október. Hlakki hlakki hlakk!

Næst á dagskrá hjá litlu fjölskyldunni er ferð í Blöndalsvilluna á Spáni þar sem amma Soffía og afi Lalli, Brynja frænka og Andrea frænkuvinkona bíða okkar og í þetta sinn kemur Anna Biddý frænka með okkur. Svo ætlum við vonandi að flækjast aðeins meira um Ísland, fara með Mörtu og Steini í epíska fellihýsaferð og hefja árlega berjatínslu- og sultugerðar-geðveiki.

Við erum orðin svo langt eftirá með myndir að mér fallast hendur við það eitt að hugsa um það. Ætla að skella þeim inn sem fyrst en það er bara svo erfitt að vera svoleiðis tölvustússi á fallegum sumarkvöldum.

Knús á alla!

Komin heim
Jæja við erum komin heim í Blásæluna og njótum íslensku gróðurlyktarinnar og miðnætursólarinnar. Við höfum þó farið langa leið síðan síðast var skrifað, frá Bosníu til Svartfjallalands, þaðan aftur til Króatíu, svo til Sviss og að lokum til Spánar til fjölskyldunnar minnar. Þetta gæti því orðið allt of löng færsla en ég hef of gaman af því að eiga þetta skrifað til þess að sleppa nokkru úr.

Ferðin frá Bosníu til Svartfjallalands var svo falleg að við stoppuðum eftir hverja beygju til þess að ná andanum og taka myndir.  Himinhá fjöllin gnæfa yfir vegunum og á milli þeirra renna ár sem enda í skærbláum stöðuvötnum. Við tókum stefnuna beint á ströndina, nánar tiltekið á þorpið Sveti Stefan. Sveti Stefan var eitt sinn fiskiþorp en um 1950 var öllu þorpinu breytt í lúxushótel og þar gistu allar helstu stjörnurnar t.d. Marilyn Monroe og Sophia Loren. Lengi var þetta staður ríka og fræga fólksins en þegar Júgóslavía sundraðist fór honum hrakandi. Nú fljótlega verður  þorpinu á ný breytt í lúxushótel en hótelkeðjan Aman (við gistum einmitt á Amanhóteli í brúðkaupsferðinni fyrir kreppu sjá: http://www.amanresorts.com ) hefur tekið svæðið yfir og var augljóslega á fullu í endurbótum og lúxusvæðingu.

Við gistum á hóteli sem leit út fyrir að vera vel heppnað, stór herbergi með eldhúsi og ótrúlegu útsýni yfir þorpið og strandlengjuna. Það var samt eitthvern veginn skrýtin stemmning á hótelinu, við gátum ekki neglt niður hvað nákvæmlega en það var nógu mikið til þess að við gátum ekki hugsað okkur að gista þarna þær 4 nætur sem við höfðum áætlað.  Herbergið var með einhverju hörmulegu antíkþema og starfsfólkið var alveg yndislegt en hálf óhugnalegt, var að flækjast um gangana og virtist hírast í myrkrinu. Mjög erfitt að lýsa þessu. Við Jens nefndum það bæði þegar við vorum að yfirgefa hótelið að ef líf okkar væri bíómynd þá kæmumst við að því síðar að þarna hefði eitt sinn staðið hótel en það hefði brunnið til grunna ásamt starfsfólki 50 árum áður.

Strendur Svartfjallalands eru ennþá mjög vinsælar hjá þotuliðinu og var töluvert um risasnekkjur, lífverði og bílalestir með lögreglufylgd. Við “hittum” m.a. útlægan forsætisráðherra Taílands, Thaksin Shinawatra, en hann ferðaðist um strandbæinn Budva með miklu fylgdarliði og blikkandi ljósum.

Frá Svartfjallalandi fórum við að lokum aftur til Króatíu, til borgarinnar Dubrovnik. Gamli bær hennar er gullfallegur og ótrúlega vel varðveittur. Í samræmi við það er hann fullur af ferðamönnum sem þvælast þar um í ógnvænlegum hópum. Við byrjuðum dvöl okkar á strandresort utan við bæinn til þess að bæta upp fyrir óstuðið á strandstaðnum í Svartfjallalandi. Þar var enginn skrýtin stemmning, bara dásamleg afslöppun og notalegheit. Svo færðum við okkur alveg í miðbæ Dubrovnik á fínasta hótelið í bænum, Hilton Imperial (nafnið verður að segjast á dramatískan hátt) en Jens hafði tekist að kría út gífurlegan afslátt. Af svölunum okkar þar höfðum við útsýni yfir allan gamla bæinn auk þess sem við fengum súkkulaði á koddann og einn flottasta hótelmorgunmat sem við höfum nokkurn tíma séð.  Semsagt frábær endir á þessari ferð okkar um Balkanskagann.

Við flugum frá Dubrovnik til Spánar með einnar nætur stoppi  í Sviss sem heppilega var á þeim degi sem Sviss vann Spán á HM og allt trompaðist á götum Zurich.  Á Spáni beið fjölskyldan mín í ofvæni eftir að hitta okkur (eða öllu heldur Lárus).  Þar duttum við í hina yndislegu Spánarrútínu – sofa – borða – lesa – liggja – o.s.frv. Afi Lalli hafði keypt sundlaug fyrir Lalla litla sem vakti ekki litla kátínu hjá unganum en honum fundust foreldrar sínir vera hinar mestu skepnur að leyfa sér ekki að busla þar allan daginn og fram á kvöld. Frá Villu Blöndaló hélt síðan stórfjölskyldan í menningarferð til Sevilla en þar var Marta systir í námi fyrir um 4 árum og var stefnan að skoða helstu söguslóðir hennar og svo taka góðan túr um borgina, skoða dómkirkjuna og fleira. Borgin er alveg einstaklega falleg og skemmtum við okkur konunglega, fórum m.a. út að borða með spænsku “fjölskyldunni” hennar Mörtu og horfðum á Spán sigra Hondúras við mikinn fögnuð heimamanna.

Það er skrýtið að vera komin aftur heim með Lárus og finna hvað hann hefur stækkað og þroskast. Hann neitar alveg að vera í ömmustólnum, situr eins og stór kall í Hókus Pókus stólnum sínum og fer marga hringi og ferðir í kringum leikteppið. Hann er algjör mathákur og er farinn að borða fullt af ávöxtum, grænmeti og mauki, m.a.s. kjöt enda kominn með tvær flottar tennur í neðri góm (komu upp 16. og 17. júní sl.).  Uppáhaldið hans eru epli og apríkósur en honum hefur enn sem komið er ekki fundist neitt vera sérstaklega vont. Í 6 mánaða skoðuninni mældist hann tæp 8700 gr og 70 cm.  Lalla finnst óendanlega fyndið ef mamma hans þykist vera að borða á honum tærnar og puttana, þegar hún syngur lagið afi minn og amma mín skringilega, þegar hún felur sig á bak við hendurnar sínar og þegar pabbi kyssir hann í hálsakotið og kitlar hann með skeggrótinni. Hann er mikið fyrir tónlist og var mörgum erfiðum bílferðum bjargað með Guttavísum, Siggi var úti og fleiri skemmtilegum lögum. Hann er farinn að frekjast aðeins og lætur sko í sér heyra ef maður dirfist til þess að taka eitthvað sem herra Lárus vildi hafa áfram. Annars er hann alveg rosalega geðgóður og alltaf hlæjandi og brosandi. Við foreldrarnir erum alveg í skýjunum með þennan yndislega strák.

Myndir frá Svartfjallalandi, Dubrovnik og Spáni koma bráðum inn á myndasíðuna!

Fleiri eyjar og fast land
Eftir hina geysivelheppnuðu ferð til Hvar? var ferðinni heitið eins og áður sagði til hinnar ágæutu Korcula-eyjar. Aðkoman þar á skipi er hreint út sagt stórkostleg en skipið lagði upp að bryggju alveg við gamla bæinn sem stendur á litlum skaga. Bærinn er miðaldabær í Feneyjastíl og frægastur að eigin mati fyrir það að Marco Polo ku hafa fæðst þar fyrir 750 árum. Eigandi húss nokkurs sver fyrir það að húsið hans sé fæðingarstaður Marcos þessa en enginn veit neitt um það.

Við gistum í á litlu íbúða-gistiheimili hjá Filippi nokkrum og virkaði það vonum framar. Svalirnar sneru í átt að gamla bænum og útsýnið yfir sjóinn var ekkert slor. Ekki skaðaði svo hvað þetta var ódýrt, en almennt er hægt að mæla með svona litlum íbúðahótelum (2-5 herbergi) víða hér í Króatíu. Þau eru mun ódýrari og oft mun betri en hótelin. Hins vegar þarf að vanda valið enda sum þeirra verr staðsett eða annað „skrýtið“ við þau. Yfirleitt eru þau þó rekin með miklum myndarskap og þjónustan mjög góð. Þráðlaust net víðast hvar, oft vínflaska eða léttur matur í komugjöf og fleira og fleira.

Við gerðum Korcula-bænum góð skil en ferðuðumst lítið um eynna, enda bara á staðnum í tvær nætur. Bærinn svíkur engan og góður matur, rölt um þröngar miðaldagötur og fleira skemmtilegt setti svip sinn á dvölina þarna. Lárus naut sín vel enda farið hægt yfir.

Eftir tvær fínar nætur þarna skelltum við okkur svo í 15 mínútna ferju yfir á meginlandið og þaðan í aðra klukkutíma ferju af stórum skaga yfir á „alvöru“ meginlandið. Þar beið okkar svo stuttur akstur inn í landið og þar með til Bosníu-Herzegóvínu.

Förinni var heitið til Mostar. Mostar er yndislegur bær en þó er stutt í mjög dramatíska og sorglega fortíð. Í Bosníustríðinu 1991-1995 réðust Serbar til atlögu við bæinn eins og flesta aðra bæi í múslimska og króatíska hluta Bosníu. Króatar og múslimar sameinuðust til varnar og sóttist ágætlega. Hins vegar seig á ógæfuhliðina árið 1993 þegar Króatar tóku að sýna tilburði til sjálftöku valds og múslimar og Króatar snerust eftir það hver gegn öðrum. Borgin skiptist eftirleiðis í austur, þar sem múslimar bjuggu og vesturhlutann með Króötum. Fyrir miðju er svo áin sem skiptir borginni í tvennt.

Þessir tveir hópar skiptust næstu tvö árin eða svo á fallbyssuskotum, vélbyssuskotum, sprengjum og fleiru sem lagði borgina nánast gersamlega í rúst. Sérlega skelfilegt þegar gamla brúin (most) sem borgin dregur nafn sitt af var sprengd í loft upp af Króötum eftir að hafa staðið af sér margar styrjaldirnar. Hún hefur nú verið endurbyggð með 15. aldar byggingartækni ásamt mörgum helstu byggingum bæjarins en allt um bæinn eru sundursprengdar húsgrindur. Langflest hús bæjarins, þar með talið nýlegar íbúðablokkir eru þakin skotsárum. Bærinn er að ná sér og fólk er mjög opinskátt að ræða átökin, en undir niðri er mikil biturð og sorg enda mannfall og eyðilegging sem ekki hefur sést í Evrópu síðan í síðari heimsstyrjöldinni.

Ótrúlegt er að sjá hvað mikið breytist þegar keyrt er yfir til Bosníu. Í stað Feneyinga voru Tyrkir herraþjóð Bosníu sem gerir það að verkum að múslimatrú og tyrknesk menning er áberandi. Moskur eru um alla bæi og bænaköllin óma fimm sinnum á dag. Tyrkneskt kaffi og sætindi fást á öllum veitingastöðum og stórir bazarar þekja miðborgirnar. Það er mjög sérstakt að keyra álíka langt og upp í Borgarnes og fara alveg úr vestrænum menningarheimi yfir í hinn austræna og bókstaflega hægt að segja að austur mæti vestri sjaldnast með jafn áberandi hætti.

Næsti áfangastaður var enn skýrara dæmi um slíkt og jafnframt jafnvel enn átakanlegra dæmi um hrylling Bosníustríðsins. Sarajevo er mjög skemmtileg og óvenjuleg borg, helmingur miðborgarinnar inniheldur lágreist, tyrknesk hús þar sem allt iðar af lífi, göturnar markaðstorg og kaffihús á hverju strái þar sem menn sitja tímunum saman og reykja vatnspípur yfir tyrknesku kaffi eða tebolla. Hinn helmingurinn er svo eins og net göngugatna í Vínarborg með kökuhúsum og lúxusverslunum. Breytingin á sér stað á nokkrum metrum og áhrifin eru fjarstæðukennd.

Sarajevo sýnir enn sár stríðsins þó uppbygging og viðgerðir séu mun lengra komnar en í Mostar. Sarajevo var umsetin serbneskum herjum frá 1992 til 1995. Þeir höfðu það markmið að leggja undir sig Bosníu með valdi og ákváðu að taka alla íbúa borgarinnar í gíslingu. Þeir umkringdu borgina og skutu á hana algerlega handahófskennt þannig að enginn var nokkurn tíma nokkurs staðar óhultur. Enn sjást á götunum sár eftir stórar sprengjur sem voru eftir umsátrið fylltar rauðri málningu og kallaðar Sarajevo-rósir. Vatnsskortur, rafmagnsskortur og matarskortur herjaði á íbúa borgarinnar. Eins og það hafi ekki verið nóg lágu leyniskyttur á þökum bygginga við breiðgötuna inn og út úr borginni svo hún fékk viðurnefnið „sniper alley.“

Það var yfirþyrmandi lífreynsla að vera á þessum stað en Sarajevo býr yfir einhverju dulmagni í dag sem erfitt er að útskýra en gerir dvöl þar mjög merkilega og tvímælalaust einn af hápunktum ferðarinnar. Okkur stóð þó ekki alveg á sama þegar við komum fyrst inn í borgina og heyrðum háværa sprengingu strax og við vorum komin út úr bílnum. Þetta var þó sem betur fer bara þrumuveður en það má segja að sagan sé óþægilega nálægt á þessum stað.

Nú ber Sarajevo þó merkilega fá stríðssár og er frábær áfangastaður þar sem hægt er að upplifa bæði austræna og vestræna menningu með einstökum hætti. Við dvöldum þar tvær nætur og heimsóttum allskyns staði eins og staðinn þar sem Franz Ferdinand ríkisarfi Austurríkis-Ungverjalands var myrtur , atburðurinn sem markaði upphaf fyrri heimsstyrjaldar.  Einnig skoðuðum við ummerki um stríðið, en svakalegast var að fara í kirkjugarðinn rétt fyrir ofan miðborgina þar sem þúsundir manna eru grafnir og líf þeirra allra endaði á árunum 1993-1995.

Eins og í Mostar var borgin mjög lífleg, bænaköll og Tyrknesk kaffihús ásamt endalausum markaðsgötum. Lárus naut sín vel í poka framan á föður sínum og horfði athugull á umhverfið, en yfirleitt skemmtir hann sér vel þegar hann er í öruggri nálægð við foreldra sína (þ.e. alveg upp við annað þeirra) en mikið er að gerast í kringum hann sem hann horfir á og skoðar. Það hefur að sjálfsögðu eins og áður hefur komið fram mikil áhrif að hafa Lárus með en dagskráin ræðst algerlega af dúrunum hans, hitastigi úti, sólarmagni og fleira sem maður hefur lítið hugsað um áður. Hann er stórskemmtilegur ferðafélagi og hefur tekið upp á ýmsu nýju og spennandi í ferðinni. Hann er greinilega mjög athugull og hefur gaman af því að fylgjast með því sem fram fer kringum hann – þó stundum fái hann nóg ef mikið er að gerast. Hann er aldrei kyrr og mjög kröfuharður og ákveðinn.

Hvað um það, næsti áfangastaður er Svartfjallaland sem er mjög spennandi enda á að vera þar mikil náttúrufegurð, meira um það síðar. Á meðan m´ælum við með myndunum á myndasíðunni…

Hvar?
Eftir hressa ferjuferð komumst við á hina virðulegu eyju Hvar, sem þykir með þeim fegurstu í Adríahafinu og er líka mest heimsótt. Nafnið á henni er auðvitað alltaf skrifað með spurningarmerki.

Þegar við komum var hellirigning, en í huga okkar átti að vera sól, enda eyjan einn sólríkasti staður Evrópu. Við fórum í mikla leit að hótelinu okkar, en leiðbeiningarnar um hvernig ætti að komast þangað voru ekki mjög burðugar: „You go forward. After some times You will have one long curves on the right oafter which you will have one road going forward (left) and down (right)“ o.s.frv. Vegirnir þarna voru nokkuð brattir sem gerði leitina aðeins dramatískari því þegar við þurftum að snúa við í brekku var ekkert grip út af bleytunni og bíllinn spólaði fram og til baka. Allt gekk þetta þó á endanum, en síðar lenti Erna í enn krappari dansi þegar kók-trukkur missti gripið í brekku beint fyrir framan hana á sama tíma og hún þegar hún var í hetjuferð í stórmarkaðinn.

Þegar við komum á hótelið okkar, Villa Rosmarinus, beið okkar enginn sérstakur, eigandinn starfar einn á hótelinu og var ekki á staðnum. Við höfðum heyrt af því að þetta gæti verið svona, svo við tókum þessu með stóískri ró og fundum herbergið okkar og tókum okkur það bessaleyfi að flytja inn, enda lykillinn í skránni. Herbergið var á efstu hæð, stórglæsilegt með risasvefnherbergi, myndarlegri stofu, stórum svölum með eldhúsi(!) og litlum svölum beint í suður. Útsýnið var ótrúlegt yfir sund og fallegan eyjaklasa þar sem fræga fólkið kastar akkerum í litlum víkum. Bátar á fullu gegnum sundið allan sólarhringinn.

Fræga fólkið er einmitt sérgrein hóteleigandans, Damirs, sem birtist skyndilega, okkur að óvörum. Þrátt fyrir að hafa komið okkur vel fyrir í herberginu vorum við með þá ónotalegu tilfinningu að þetta gæti verið eitthvað annað herbergi, ekki það sem við áttum að fá, enda mjög flott. Þegar Damir kom kallaði hann „Oh my god! Why didn‘t you call me!?“ og óttuðumst við þá strax að við værum í röngu herbergi. Á daginn kom þó að svo var ekki, heldur hafði hann bara áhyggjur af því að við hefðum ekki þorað inn. Damir var hinn vinsamlegasti og mjög ræðinn. Hann bauð okkur upp á drykki og sagði okkur miðlungslöngu útgáfuna af ævisögu sinni. Hann er frá Hvar en ólst upp í Kaliforníu. Æskuvinur hans er Bruce Willis og brölluðu þeir ýmislegt saman áður en sá síðarnefndi varð frægur. Þegar herra Willis var orðinn frægur komst Damir í feitt og næstu 20 árin starfaði hann sem einkaþjálfari fyrir ýmsar stjörnur og þjóðhöfðingja (Áðurnefndur Bruce, Bill Clinton og fleiri). Hann gerði að því skóna að Bruce Willis hefði verið síðasti gesturinn í herberginu okkar á undan okkur en neitaði að staðfesta það. Hann taldi líf stjarnanna frekar dapurlegt, áfengi, dóp og papparassar.

Síðasta verkefni hans var að sinna konungsfjölskyldu Sádi Arabíu en hún „aðstoðaði“ hann fjárhagslega við að byggja hótelið, enda ljóst að engu var til sparað við bygginguna..

Þegar Damir hafði klárað ævisöguna spurðum við hvar á Hvar (haha) væri hægt að fá góðan mat. Hann byrjaði á langri yfirlýsingu um að þessi og þessi staður í nágrenni hótelsins væri ómögulegur ásamt öllum veitingastöðum á aðal göngugötu bæjarins. Hann taldi okkur þó engar áhyggjur þurfa að hafa þar sem Falko nokkur, kokkur sem var nýhættur störfum sem yfirkokkur á fínasta hóteli eyjarinnar, væri búinn að stofna strandbar rétt fyrir neðan hótelið. Þar væri hann ekki með mat, nema öðru hverju fyrir sérstaka gesti, þ.e. gesti frá Damir. Maður þyrfti að fara daginn áður og biðja hann um að elda.

Damir var mjög hrifinn af Lárusi og talaði mikið um „the baby“ og hvað hann væri duglegur og hress. Hrifningin virtist vera gagnkvæm og lék Lárus við hvern sinn fingur þegar Damir nálgaðist. Lárus var líka ánægður með gistinguna enda nóg pláss fyrir hann til að vera á gólfinu, velta sér og gera setæfingar.

Þarna vorum við í góðum gír í þrjár nætur, og nutum þess að skoða eyjuna, en gamli bærinn er mjög fallegur. Seinasta kvöldið fórum við til fyrrnefnds Falkos. Staðurinn var mjög óformlegur, sólhlífar, plaststólar, hengirúm og barinn sjálfur bara lítill kofi. Hann var í litlum furulundi alveg við sjóinn. Þarna var samt búið að setja hnífapör, diskamottur og glös á eitt borð, beint fyrir framan barinn og okkur var boðið að setjast þar. Lárus lék enn við hvern sinn fingur og heillaði viðstadda upp úr skónum.

Síðan hófst maturinn. Við höfðum beðið um sjávarrétti og þá fengum við. Fyrst var boðið upp á kolkrabbakæfu og túnfiskkæfu með brauði. Þetta var mjög gott, skemmtilega kryddað og flott borið fram. Næst var sjávarrétta-risotto með ýmiss konar kryddi. Þetta var eiginlega einstakt risotto því það var minna af hrísgrjónum en sjávarréttum. Í því voru rækjur og kræklingur, allt brakandi ferskt. Kryddunin var stórgóð og við vorum mjög hamingjusöm. Aðalrétturinn var næstur, stórgóður barri (seabass) með örsmáum aspas, grilluðu grænmeti og baunastöppu. Allt hráefni úr næsta nágrenni en bróðir Falkos er fiskimaður. Þessi  fiskur var með betri fisk sem við höfum fengið, kryddunin og eldunin var fullkomin.

Að lokum fengum við svo frábæra köku með kirsuberjakaramellu. Kakan var frá konu Falkos og gerð eftir gamalli Króatískri uppskrift. Í stuttu máli yndisleg. Máltíðin var frábær, við vorum eiginlega í fullkomnu sjokki að fá svona góða máltíð á svona óformlegum stað en líkaði vel. Lárus gat látið eins og honum sýndist – ekkert vesen.

Þetta er svo skrifað á risavaxinni ferju sem greinilega hóf feril sinn við strendur Svíþjóðar en er mjög myndarleg, enda næturferja sem fer meðfram allri ströndinni hérna og endar í Bari á Ítalíu. Við tökum þó einungis stutt hopp á leið til hinnar ágætu eyjar Korcula þar sem vonandi bíða okkar fleiri lystisemdir!

Meira Króatíustuð
Áfram höldum við ferð okkar niður Dalmatíuströndina sem hefur enn sem komið er glatt okkur með hverri náttúru/menningarperlunni á eftir annarri. Við reyndar tókum smá aukatúr upp í fjöllin, í þjóðgarðinn í Plitvice, að skoða stórkostlegu vötnin sem þar leynast og eru á heimsminjaskrá UNESCO. Þau hafa myndast þegar litlir lækir sem renna undan fjöllunum komast ekki lengra vegna gróðurs og eru gífurlega falleg þar sem þau hafa safnast saman á milli trjánna. Þau eru í ýmsum litum, skærgræn, himinblá eða jafnvel alveg grá. Við þrömmuðum þjóðgarðinn þveran og endilangan og þar sem göngustígarnir voru mjög holóttir og illkerrufærir hékk Lalli utaná pabba sínum í burðarpoka og fannst það alveg stórkostlegt. Við gistum þar á mjög einföldum en krúttlegum gististað en okkur finnst allt hér í Króatíu vera rekið af miklum myndarskap. Fólkið er sífellt að vesenast og betrumbæta eitthvað, þrífa, slá eða mála og það er gaman að jafnvel á ódýrustu gististöðunum hafa eigendurnir verið mjög metnaðarfullir t.d. hvað varðar morgunmat og framreitt nýkreistan appelsínusafa, nýbakað brauð og fleira sem við bjuggumst alls ekki við.

Frá Plitvice fórum við til borgarinnar Zadar en þar gistum við á ótrúlega góðu hóteli við ströndina sem hafði útsýni yfir gamla bæinn. Herbergið okkar var hálfgerð íbúð með eldhúsi og stofu sem hentaði sérstaklega vel þar sem þá gátum við hallað inn til Lárusar sem svaf inn í svefnherbergi og hækkað í Eurovision/kosningasjónvarpinu  frammi í stofu. Við fjölskyldan eyddum þó mestum tíma á röltinu um gamla bæinn í Zadar sem einmitt er allur á áðurnefndri heimsminjaskrá UNESCO og er vel að þeim heiðri kominn með sínum þröngu götum, fallegu kirkjum og rómversku minjum. Við sjávarbakkann er svo að finna sjávarorgel, þ.e. pípur sem liggja frá sjónum og upp í gegnum göngugötuna við sjóinn. Úr þessu koma mjög sérstök en falleg hljóð þegar öldurnar fylla pípurnar og fólk safnast saman, sérstaklega við sólsetur, til þess að hlusta. Ótrúlega dulúðug stemmning. Við Jens viljum endilega fá svona orgel í Reykjavíkurhöfn!

Næst á dagskrá var litli bærinn Trogir sem er í rúmlega 1 og ½ tíma akstursfjarlægð frá Zadar. Við höfðum sem áður mestan áhuga á því að vera í gamla bænum sem er þar sérstaklega fallegur og með glæsilegri kirkju, mun glæsilegri og stærri en búast má við í svona litlum bæ. Jens hafði mikinn áhuga á kirkju þessari og var glaður þegar við rétt náðum inn fyrir lokun til þess að skoða hana betur.  Skömmu síðar gengur til okkar maður og segist þurfa að loka kirkjunni en okkur sé velkomið að vera yfir nótt. Við afþökkuðum gott boð en áttum samtal við manninn sem reyndist vera sjálfur presturinn.  Hann sagði okkur frá því helsta sem kirkjunni tengdist og sýndi okkur m.a. risastóru lyklana sem ganga að byggingunni en þar sem hún er á minjagripaskrá þá má engu við hana breyta án samþykkis og því eru enn notaðar sömu lyklaskrárnar og notaðar hafa verið öldum saman. Presturinn druslar lyklunum um í stórri þungri tösku. Það merkilega var hins vegar að hann sagði okkur frá verndardýrling kirkjunnar en hann heitir heilagur Lárus (Lovre á króatísku, Lawrence á ensku). Við vorum mjög ánægð með þetta. Trogir er vinsæll staður (eins og margir aðrir í Króatíu) hjá skútusiglingafólki og þar sem hótelið okkar var staðsett alveg í smábátahöfninni, kynntumst við þessu sporti aðeins betur og erum sko meira en til í að prófa!

Við erum alltaf að verða betri og betri að vesenast með Lárus og njótum ferðarinnar meira en okkur hefði órað fyrir. Reyndar má nú í hreinskilni segja að Lárus sé að vesenast með okkur þar sem öll skipulagning og … bara allt, fer eftir Lárusi, hans rútínu og þægindum. Hann sefur ennþá 2 góða dúra + einn stuttan á dag og erum við frekar bundin við þá þar sem lífið verður ansi erfitt með syfjað og pirrað ungabarn. Við héldum fyrst að best væri að taka göngutúra þegar Lárus væri sofandi en komumst fljótlega að því að það er miklu skemmtilegra að hafa hann vakandi í göngutúrunum og leyfa honum að sofa í sem mestum friði og ró  (t.d. á meðan foreldrarnir borða hádegismat).  Í fyrsta lagi er alltaf hætta á því að eitthvað/einhver dirfist að rjúfa svefn hans (eins og t.d. þegar við vorum nýbúin að rúlla honum í svefn á torgi nokkru þegar kirkjuklukkurnar hringdu inn hádegið með gífurlegum hávaða eða þegar maðurinn sem stóð við hliðina á mér fyrir utan hraðbankann byrjaði öllum að óvörum að spila á sekkjapípu).  Í öðru og mun mikilvægara lagi er Lárus mikil suga á skemmtilegt fólk sem við hefðum aldrei annars talað við.  Hann er hinn fullkomni ísbrjótur fyrir allskonar fólk sem líkar vel við börn, er forvitið um okkur eða er jafnvel að flækjast með börn sjálft. T.d. aðeins á rúmlega klukkutíma ferjuferð í gær tókst okkur að ræða við þrenn eldri hjón (eitt frá Slóveníu, annað frá Króatíu og það þriðja frá Japan), eitt ungt par frá Ítalíu, 2 bandarískar konur og nokkra skuggalega menn af óþekktu þjóðerni með ógnvænleg húðflúr á höfðum sér. Öll samtölin hófust með athugasemdum um Lárus (auðvitað um það hversu ótrúlega sætur hann væri (sem gerði skuggalegu mennina einnig töluvert minna skuggalega)) og þróuðust þaðan í hinar ýmsu áttir. Mjög skemmtilegt.  Lárus virðist dafna vel á ferðalaginu og er nánast undantekningarlaust glaður og hress. Hann hefur tekið upp á ýmsu nýju á síðustu vikum. Hann myndast nú við að sitja þó það gangi svona misjafnlega , hann frussar út um allt (sérstaklega gaman þegar við erum að gefa honum graut), vill standa allsstaðar og upp við allt og er að verða brjálaður á því að komast ekki áfram með sinni stórkostlegu skriðtækni sem felst í því að lyfta rassinum upp í loftið í gríð og erg. Okkur finnst hann agalega skemmtilegur.

Nú erum við komin á eyju í Adríahafi sem heitir Hvar og virðist við fyrstu sýn vera algjör gimsteinn. Hér ætlum við ekkert að gera nema slaka á og hver veit nema ég skelli mér í sólbað. Er komin með frekar leiðinlegt hlírabolafar sem ég þarf að vinna í..

Sem fyrr eru fullt af myndum komnar inn á myndasíðuna!

Lárus á flakki
Þá er maður (faðirinn) loksins kominn í fæðingarorlof. Við ákváðum að nýta orlofið vel með vel útilátinni rúmra þriggja vikna ferð um balkanskagann, eða vesturhluta hans a.m.k.

Ferðin hófst með flugi til, og gistingu í Frankfurt. Lalli fékk að ná sér eftir flugið í stað þess að halda áfram beint um kvöldið, en „að ná sér“ snýst hjá honum um að liggja berrassaður á maganum, reyna að skríða, borða, og teygja úr sér. Sem sagt allt sem hann gerir á venjulegum degi heima. Það sem er ekki „að ná sér“ er að keyra, eða vera í bílstólnum – eða eyða tíma á stórum flugvöllum. Sem hann fékk einmitt að gera mikið af næsta dag.

Við vöknuðum eldsnemma (á okkar mælikvarða, ekki Lalla) til að fara í flug til Ljubljana síðar um morguninn. Allt gekk vel þó tékkinferlið hafi verið flóknara en oft áður (stór plús að það var sérstök barnafólks-röð). Lalli ákvað hinsvegar að gera bleyjuskipti og mjólkurdrykkju að forgangi númer eitt á leiðinni úr tékkininu í vélina. Þetta tók um 20 mínútur en hafði þó dramatískar afleiðingar. Þegar við komum að útgönguhliðinu í vélina, sem var eins langt í burtu og mögulegt er frá flugstöðvarbyggingunni, biðu þar tvær glaðbeittar þýskar stúlkur: „Nei þið getið ekki komið um borð, við erum búnar að útbúa farmskýrsluna.“ Enn voru fimmtán mínútur í brottför svo þetta átti nú ekki að vera neitt mál en allt kom fyrir ekki og okkur var ekki hleypt um borð. Þannig vorum við dæmd í 10 tíma flugvallardag af því að þessar ágætu stúlkur nenntu ekki að slá nokkra stafi inn í tölvuna. Aðrir starfsmenn Lufthansa sem við hittum síðar um daginn á vellinum voru á einu máli um að þetta hefði verið hinn versti glæpur og fundu mikið til með okkur.

Hvað um það, við fórum í árangurslítið flakk um völlinn að leita að öðru flugi. Töskurnar okkur voru guð-má-vita hvar og við mættum í hvívetna afsakandi andlitum sem að eigin mati gátu lítið sem ekkert gert til að hjálpa okkur. Á tímabili kom upp sú snilldarhugmynd að keyra (7 tímar) til Ljubljana, eða fljúga til Vínar og keyra (3 tímar) til Ljubljana eða Zagreb og þaðan til Ljubljana. Ekkert af þessu varð þó úr og við biðum á endanum bara eftir næstu vél sem við komumst blessunarlega með – og töskurnar líka! Á meðan á öllu flandrinu stóð var Lalli hinn rólegasti, en einu streitumerkin hjá honum voru styttri dúrar. Hann fékk þó ýmislegt í staðinn, til dæmis hitti hann á leiðinni úr bleyjuskiptum ítalska fótboltalandsliðið sem ákvað að knúsa hann allan á leið sinni milli véla. Mamma hans var að vonum mjög starstruck.

Miðnætti nálgaðist óðfluga þegar við loksins lögðum bílnum okkar inni í húsasundi í miðborg Ljubljana og gengum til hvílu okkar á mjög huggulegu gistiheimili sem þar var. Við fengum höfðinglegar móttökur en þó voru sett skilyrði. Bíllinn okkar, glæsilegur Fiat, þurfti að vera farinn fyrir 7:00 um morguninn. Lítið mál því þá er Lalli vaknaður. Morguninn eftir lögðum við snemma af stað í stórmarkað nokkurn til að fylla bílinn af bleyjum, þurrkum og öðru barnadóti ásamt virðulegu kæliboxi, sem nú fjórum dögum síðar er hrunið í sundur, enda það ódýrasta í búðinni.

Ferðinni var svo heitið til Opatija í Króatíu sem er á austanverðum Istríuskaga fyrir botni Kvarnerflóa sem liggur inn af Adríahafinu. Þar nálægt er eyjan Krk, hverrar nafn við þreytumst ekki á að segja. Á leiðinni stoppuðum við í hinni ágæti ítölsku borg, Trieste, og fengum okkur pizzu. Lalli var hinn hressasti þar, enda fannst honum mikið til þess koma að taka þrjú lönd á einum degi. Hann var þó búinn að fá nóg af bílferðum þegar við komum til Opatija og fékk þar verðskuldaða hvíld (Nánar tiltekið fékk hann „að ná sér.“)

Opatija stendur við Kvarnerflóa, sem liggur að landi inn af Adríahafinu. Bærinn liggur að sjó í bröttum fjallshlíðum og er því geysifallegur. Opatija átti sína gullöld undir ítalska nafninu Abbazia fyrir um 100 árum þegar borgarastétt Austurríkis-Ungverjalands flykktist þangað í frí. Fyrir tilviljun höfðum við álpast á eitt allra besta hótelið í bænum, hótel Savoy sem stóð á glæsilegum stað uppi á kletti alveg við sjóinn. Svalirnar okkar stóðu út úr hótelinu svo útsýnið var á þrjá vegu. Væri það ekki nóg voru suðursvalir út frá baðherberginu. Milli fíkjutrjáa og síprustrjáa horfði maður yfir raðir af yfir 100 ára gömlum rjómatertuhúsum sem flest hafa verið löguð til, bæjarútsýnið minnti helst á impressjónískt málverk. 12 km löng göngugata þræðir ströndina og gefur innsýn inn í horfinn tíma. Á Júgoslavíutímanum hefur einhverjum snillingnum dottið í hug að steypa upp „strönd“ í stað stórgrýttrar fjöru sem áður var. Þetta steypuvirki er mjög vel heppnað og lífgar bæinn mikið við.

Þarna dvöldum við dágóðan tíma, fylgdumst með mannlífinu af svölunum og skoðuðum umhverfi bæjarins sem allt er hið magnaðasta. Lárus fékk mikla athygli og var oft þreyttur fyrir vikið. Hann stóð sig þó eins og hetja þegar foreldrar hans voru að vasast með hann út að borða eða í göngutúra og virðist vera hinn ánægðasti í Króatíu. Foreldrarnir eru líka aðeins að læra inn á það hvernig er best að ferðast með svona lítið dýr, t.d. hvernig á að fara út að borða, hvernig á að fara út í göngutúra, hverju á að pakka o.fl.

Hvað um það, myndir hafa verið teknar í gríðarlegum mæli og við erum búin að setja nokkuð margar þeirra inná myndasíðuna. Biðjum að heilsa öllum heima, foreldrunum, vinunum og vonum að Þorleifur hafi það gott í Blásölunum.

Fyrstu veikindin og loksins gott veður
Lalli litli varð í fyrsta sinn veikur í síðustu viku og það var frekar erfitt fyrir mömmuhjartað. Hann fékk hita (hæst 38,5 gráður) en var ekki með neitt kvef að því virtist. Við fórum til læknis til að útiloka eyrnabólgu og svoleiðis en ekkert sérstakt fannst annað en almennur slappleiki og hiti. Hann var svakalega lítill í sér og ég gat nánast ekkert lagt hann frá mér og við kúrðum bara saman og reyndum að hafa það notalegt. Það sem gerði þetta enn erfiðara var að hann neitaði að drekka langtímum saman og móðirinn svaf ekki fyrir áhyggjum og stressi og hafði áhyggjur eftir smávegis netflakk að drengurinn væri kominn í svokallað brjóstaverkfall (það er í alvörunni til..).  Líf mitt snérist þannig í nokkra daga um það að reyna að troða vökva og næringu í barnið án þess þó að hræða hann frá brjóstagjöfinni og gekk það best með því að gefa honum þegar hann var hálfsofandi eða þegar ég kippti duddunni út með ógnarhraða og setti brjóstið upp í hann. Hann jafnaði sig þó fljótlega, hefur sæst við brjóstin á mér og er aftur orðinn það ljúfa hressa barn sem við þekkjum.

Vegna þessa vesens biðum við með að gefa Lalla graut eins og staðið hafði til og var það ekki fyrr en í gær sem hann fékk að smakka á stórkostlegum lífrænum hrísmjölsgraut. Hann vissi fyrst ekki alveg hvað honum átti að finnast um þetta gums en var að lokum held ég bara nokkuð ánægður. Hann fékk síðan örlítið þykkari og stærri skammt í dag og þeirri þróun verður haldið áfram næstu daga og vikur.

Við erum annars gífurlega ánægð með veður síðustu daga og höfum nýtt okkur það óspart í gönguferðir, útiborðelsi, grill og fleira viðeigandi. Ótrúlegt hvað maður verður glaður í sálinni þegar það er svona gott veður!

Það koma nýjar myndir inn í þessari viku!

Í sól og sumaryl
… eða við erum svona að vonast eftir svoleiðis veðri næstu daga! Hvað á þetta að þýða að hafa bara leiðindaveður þegar við Lalli viljum vera í göngutúrum og útihangsi. Fussumsvei.

Það er reyndar búið að vera frekar milt veður undanfarið og ég er alveg rugluð hvernig ég eigi að klæða Lalla í vagninn. Einn daginn segir hitamælirinn 5 gráður og ég skelli skinninu í ull og inn í svefnpokann sinn en þegar ég kem út að kíkja á barnið segir hitamælirinn 16 gráður og Lalli auðvitað kófsveittur. Þessi Emmaljunga vagn er ólíkindatól nefnilega og ég held að það sé ofn í botninum á honum. Jens stakk hitamæli undir vagnhlífina, fyrir ofan svefnpokann og þar mældist eitt sinn 33 gráðu hiti (ekki í sól)!  Því hef ég verið að fækka fötum (á Lalla) á hverjum degi og hef enn ekki náð réttu hitastigi því í gær, einungis með sumarsængina sína, létta húfu, sokkabuxum og feitri peysu var hann enn og aftur kófsveittur og ómögulegur. Hann fílaði þetta miklu betur þegar það var frost og kósýheit og hann leit út eins og dúnlirfa. Hér er á ferðinni enn eitt stórkostlegt og alls ekki útblásið vandamál sem ég, hin heimavinnandi húsmóðir, mun glíma við á næstunni!

Annars var Lalli í ástandsskoðun í morgun og mældist um 7900 gr. og 67,5 cm. Almennt mjög góður árangur og ljósan virtist ánægð með þetta allt saman. Á eftir okkur var einn tveggja vikna strumpur og ég bara trúði því ekki hvað hann var lítill. Samt var hann víst bara svipaður og Lalli var. Maður er fljótur að gleyma og mér finnst litli gaurinn minn ennþá svo lítill. Foreldrar þess nýja héldu að Lalli væri tveggja ára sem sýnir líka hversu stærðarringlaður maður er þegar ungarnir eru nýjir. Man þegar Lalli var glænýr og við hittum Þórð frænda hans sem er tveimur og hálfum mánuði eldri, manni fannst eiginlega eins og Þórði gæti þessvegna fljótlega farið að vaxa skegg svo fullorðinslegur væri hann (en svo var hann auðvitað bara algjört pons).

Það fer að koma að stórviðburði í lífi Lárusar en við ætlum að gefa honum grautarsmakk á næstu dögum. Það verður það fyrsta sem hann borðar annað en brjóstamjólk (og d-dropana) og ekki laust við að mamman sé hálf meyr yfir þessu. Hann er að þyngjast mjög vel ennþá en er farinn að sýna svo svakalegan áhuga á mat að ég hef bara ekki samvisku til þess að draga þetta lengur. Þrátt fyrir meyrnina er ég líka frekar spennt og hlakka til að leyfa honum að smakka alls konar gúmmelaði og finna hvað honum finnst gott og vont. Ég er með háleitar hugmyndir um það að gera allan barnamatinn sjálf en óttast svolítið að þetta sé svona eins og þær hugmyndir sem ég hafði yfirleitt í byrjun hvers skólaárs þar sem ég var með tugi yfirstrikunarpenna, stílabækur og merkimiða, tilbúin að skipuleggja mig í gegnum námið en aldrei varði þetta lengur en svona viku. Ég vona nú að ég sýni aðeins meiri metnað í tengslum við Lárus og hans næringu en ég veit svosem ekki hversu mikið betra svona heimabrugg er við þann mat sem seldur er í búðum. Lárus sjálfur virðist vera frekar rólegur yfir þessu.

Við vorum að setja inn fullt af aprílmyndum af ýmsum viðburðum eins og t.d.  þegar Lalli hitti frændur sína þá Lúkas og Tómas, þegar Lalli velti sér almennilega í fyrsta sinn, þegar Lalli hitti langömmu Gauju og mynd var tekin af fjórum ættliðum, þegar við fórum norður með afa Þórði og ömmu Sólrúnu og skutluðum Elínu Ástralíufara á Akureyri International Airport í leiðinni, þegar Lalli hitti nokkur önnur kríli á skemmtilegum mömmuhittingi og þegar móðirin varð 26 ára. Semsagt stórkostleg skemmtun.

Þar til næst…

Fjögurra mánaða
Þá eru fjórir mánuðir liðnir frá fæðingu Lárusar. Hann er alveg ótrúlega skemmtilegur og duglegur, hlær og hjalar, galar og skríkir allan daginn, grípur í allt sem hann sér og reynir að setja það upp í sig og í tilefni dagsins ákvað hann að fullkomna veltu sína frá baki yfir á maga og er ekki lítið ánægður með sig. Hann er líka byrjaður að sýna mikil tilþrif á maganum, fer upp á hnén og sparkar sér aðeins áfram en endar yfirleitt með því að annað hvort detta á hliðina eða leka aftur á magann. Mikið í gangi semsagt og greinilegt að Lalla liggur á að skoða heiminn.

Lárus fer ekki í skoðun fyrr en eftir tvær vikur svo að nýjustu mælingar liggja ekki fyrir. Þeim verður að sjálfsögðu gerð samstundis skil.

Fyrir utan dagleg framför Lárusar hefur heimilislífið hér verið frekar tíðindalaust og við fjölskyldan höfum fylgst agndofa með myndum af gosinu í Eyjafjallajökli og afleiðingum þess hér á Íslandi og erlendis. Við stefnum á að fara til Akureyrar um næstu helgi með ömmu Sólrúnu og afa Þórði, fá okkur Brynjuís og slappa af. Það ætti að vera notalegt!

Nýjar myndir fljótlega!

Skallamamman
Jæja, þá erum við komin aftur frá Spáni og við Lárus eyðum aftur mestum okkar tíma ein í stað þess að vera alltaf umvafin fjölskyldu og stuði. Erum samt bara hamingjusöm og ég hef innleitt tímabil miskunnarleysis í svefnrútínustillingum og kennslustundum í því að sofna sjálfur. Lárus nældi sér í smá kvef á Spáni og getur ekki farið út í vagninn þessa dagana og ég hlakka ótrúlega til þegar hann nær sér og við getum farið í göngutúra í vorinu. Mmmm. Er farin að iða öll af spenningi fyrir sumrinu og öllu sem fylgir, graslykt, birtu og ekki síst – sumarfríi Jensa, annarra fjölskyldumeðlima og vina!! Pant fara í útilegur og sumarbústaði! JEI!

Það var hrikalega yndislegt í fyrsta fjölskyldufríinu okkar og sjaldan hefur verið innbyrt eins mikið magn af parmaskinku, skelfisk og samlokuísum (já samlokuísum). Lárus naut sín bara í botn enda með nóg af þjónustuliði sem slóst um að knúsa hann og uppfylla allar hans kröfur á methraða. Hann virðist sem betur fer átta sig á því að þjónustustigið hér heima með mér einni er ekki eins hátt og hefur aftur snúið sér að því að dunda sér á leikteppinu og festa sig í dularfullum stellingum í öfgafullum tilraunum til þess að velta sér yfir á magann (það hefur bara tekist þrisvar enn sem komið er).

Við lentum í ýmsum ævintýrum í fyrstu utanlandsferð Lárusar. Flugferðirnar gengu svakalega vel og Jens hefur að sjálfsögðu skráð þær samviskusamlega í gagnagrunn sinn sem heldur utan um öll flug fjölskyldunnar. Við hófum ferðina á því að kaupa geggjaða ferðakerru/bílstól á 70% afslætti af þeirri ástæðu einni að hún er appelsínugul. Tsk tsk.. við erum ekki haldin slíkum litafordómum og erum ekkert smá ánægð með þessi kjarakaup. Veðrið var æðislegt allan tímann og það var yndislegt að slappa af, flatmaga með bók í sólinni og njóta allra þessara aukahanda sem voru svo vænar að hjálpa til með Lallaskinnið.

Það var þó ekki bara leti í gangi –  Afi Lalli og Stefán Einar þræluðu sér út í golfinu, við foreldrarnir fórum með Brynju og Stefáni í skemmtigarðinn Terra Mitica á meðan afi og amma pössuðu Lalla, litla fjölskyldan prufukeyrði kerruna og skellti sér á markaðinn einn morguninn (var bæði fyrsta markaðs- og lestarferð Lárusar), öll stórfjölskyldan fór niður í bæ að sjá göngurnar á föstudaginn langa og út að borða í tvö önnur skipti og Lalli stóð sig eins og hetja, sofnaði bara á sínum venjulega tíma í kerrunni og vaknaði ekkert fyrr en við vorum komin heim og missti s.s. af öllu fjörinu. Kannski ekki öllu fjörinu því það var svo mikið stuð á daginn að litli kallinn skellihló í fyrsta skipti og er það pabbinn sem átti heiðurinn af því þó svo að Lárus hafi síðan hlegið mikið af mömmu sinni. Ég er alveg heilluð af þessu hljóði og er svo ánægð að hafa loksins fundið einhvern sem áttar sig á því hversu geypilega fyndin ég er!

En svo ég komi nú inn á titil færslunnar þá virðist sem ég sé að verða sköllótt. Mér skilst að þetta sé algengur fylgikvilli brjóstagjafar en það gjörsamlega hrynur af mér hárið. Það er því ekki gott ástandið í hár- og naglamálum hjá mér en í stressi fyrstu vikna í lífi Lárusar byrjaði ég aftur að naga neglurnar eftir rúmlega tveggja ára hlé. Með þessu áframhaldi + það að Lárus er enn að vakna á tveggja tíma fresti allar nætur –  enda ég eins og Gollum. En við sjáum hvað verður með þetta svefnátak sem nú er í vændum hjá okkur Lárusi og svo hlýtur að verða geggjað veður allan prófatímann eins og ávallt þegar ég hef verið í prófum svo ég get verið að tana á Austurvelli og svona kósý.

Búið í bili!