Það sem ykkur hefur alltaf langað til að segja um mig..

Nohari

Johari

Image hosting by Photobucket

Skrifað February 27th, 2006 af erna í flokkum Gólfmottan

Ég ætla að gera svona eins og allir hinir því þið vitið hvað ég er mikil kind í mér.

Fernt sem að ég hef unnið við:
- Á kassa í Nettó
- Starfsmaður í eldhúsi á elliheimili/hjúkrunarheimili
- Þjónustustúlka á VOX
- Gjaldkeri í banka.

Fjórar bíómyndir sem að ég gæti horft á aftur og aftur:
- LOTR að eilífu
- Bridget Jones´s diary
- Monty Python myndirnar
- Don Juan de Marco.. bara svo góður söguþráður sko!

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér finnast skemmtilegir:
- Family guy
- Friends
- Sex and the city
- Allt með David Attenborough stórvini mínum ójá.

Fjórir staðir sem ég hef búið á:
- Löngumýri 20
- Ásbúð 87 (við hliðiná þarna djöfuls dansstelpunni)
- Rjúpnahæð 3
- Blásölum 22

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
- Spánn/Flórída/Krít = afslöppunarfrí í sól og vínlegi.
- Nýja Sjáland.. mikið ferðalag og góður hasar.
- Egyptaland.. aðeins meiri hasar
- Íran.. mun meiri hasar

Fjórar síður sem ég fer daglega inn á:
- mbl.is
- ugla.hi.is
- wulffmorgenthaler.com
- Blogg smogg..

Fernt matarkynst sem ég held upp á:
- Piparsteik a la pabbi.
- Djúsí súkkulaðiköku a la mamma sem úr lekur súkkulaðigums þegar maður setur skeið í hana.. æ þið skiljið. Svo bara allt með súkkulaði.
- Sushi a la Jens. Helst með laxi eða túnfiski.
- Kjúklingabringur a la moi í bbq-sykurlegi og sesamfræum með fetaostasalati og kartöflurétti. (samt mömmuuppskrift en hey)

Fjórir staðir sem ég vildi heldur vera á núna:
- Að kafa við strandir paradísareyju einhverrar með ekkert framundan í nokkra daga nema afslöppun.
- Á leið í road trip um Ástralíu með góðu fólki.
- Í vínsmökkun í Toscanahéraði á Ítalíu.
- Að borða satay-svínakjöt… í Malasíu.
og fleira og fleira og meira …

Skrifað February 23rd, 2006 af erna í flokkum Gólfmottan

Þetta er skrifað í 35.000 feta hæð yfir Svartahafi um borð Boeing747 flugvél Singapore Airlines

Read it and weep! ;)

Skrifað February 3rd, 2006 af erna í flokkum Gólfmottan