Not a morning person?

Það hafa verið skemmtilegir tímar hjá mér, næturgöltraranum ógurlega undanfarið en hef þurft að vakna í vinnu á þeim tíma sem ég er vanalega á leiðinni í rúmið. Frekar erfiður snúningur þar á ferð og ég orðin ansi mygluð og baugótt eftir vikuna. Það góða í stöðunni er hinsvegar að nánast helmingur vinnu minnar er nú unninn á yfirvinnukaupi sem er auðvitað ákjósanlegt og gleðilegt.

Það er mjög gaman að upplifa þau áhrif sem of lítill svefn hefur á líkamann. Ég t.d. fæ varaþurrk, brjóstsviða og þurr augu. Ótrúlega hjálplegt ástand fyrir einstakling sem er að reyna að vera illskeyttur embættismaður.

Ég geri ráð fyrir að helgin fari að mestu leyti í svefn og huggulegheit.

Skrifað July 27th, 2006 af erna í flokkum Elsta Spiderblanket

Töff-stig og fleira

Nú hefur bloggið farið í gang og í staðinn fyrir að ræða kosti og galla bloggsins eða innihalds þess hafa athugasemdir í kommentakerfinu aðallega snúist um töff-stiga kerfið. Einhver andmælir sinni töff-stigagjöf og aðrir andmæla því að vera ekki inni í töff-stiga kerfinu.
Nú hafa því verið lagðar nokkrar grundvallarreglur um töff-stigakerfið.
1. Allir byrja með núll töff-stig. Jafnvel ofurtöffarar meðal vina okkar.
2. Menn geta með ýmsu móti unnið sér inn töff-stig. Almenn glæsimennska og fáguð framkoma geta gefið stig en falleg ummæli um okkur, greiðvikni í samskiptum og greiðar við okkur vega þyngst í töffstigagjöfinni.
3. Einungis þeir vinir okkar sem halda úti vefsíðum fá mynd/tengil hér og því eru þeir þeir einu sem eiga möguleika á töff-stigum og geta nýtt sér kosti þeirra.
4. Töff-stig hafa tvíþætta merkingu. Í fyrsta lagi er hægt að nýta þau til þess að verða sér úti um ákveðna þjónustu, til dæmis að láta skipta um mynd af sér hér á síðunni. Í öðru lagi tákna þau ákveðna stöðu í metorðastiganum. Vel getur verið að seinna verði haldin partý þar sem einungis aðilar sem hafa náð ákveðnum fjölda töff-stiga mega mæta.
5. Nánari reglur má finna milli 13:00 og 13:02 í álmu A3, hillu 352 á Þjóðskjalasafni Íslands.
Við vonum að þetta kerfi verði hvatning til metnaðar meðal vina okkar en ekki til þess fallin að valda óþægindum eða vandræðum. Ef þau valda óþægindum eða vandræðum er okkur samt eiginlega alveg sama. Allavega mér.

Skrifað July 24th, 2006 af jens í flokkum Elsta Spiderblanket

Stórtíðindi

Nú hafa þau undur og stórmerki gerst að gólfmottan er að leggjast niður. Þó ekki þannig að allt verði hreinsað út og slíkt heldur hefur nýtt über-blogg verið tekið í notkun og í þetta skipti hefur Jens ákveðið að vera með. Ný og betrumbætt síða segir ekki alveg skilið við mottunafnið þó það hafi verið yfirfært á engilsaxnesku og uppfært í “teppi”. Nýja bloggið heitir SPIDERBLANKET og slóðin er http://www.spiderblanket.com. Semsagt, mjög þægilegt og einfalt.

Þar sem þetta nýja blog skarar tæknilega og vitsmunalega fram úr öllum öðrum bloggum sem allir aðrir hafa nokkruntíma gert getur verið að ykkar aumu tölvur séu ekki uppsettar til að meðhöndla það. Það þarf þó ekki að örvænta. Í flestum tilvikum kemur þetta sjálfkrafa eftir að þið ýtið eins og einusinni á “Yes”. Ef það gerist ekki er ykkur hollast að smella á hnappinn hér að neðan. Það þarf nýjustu útgáfu af Adobe Flash Player og þarna hafiði hana!

Get Adobe Flash Player

Hér með er þetta blogg því lýst “úti” og Spiderblanket er “inni”

Skrifað July 21st, 2006 af erna í flokkum Gólfmottan

Súper töff

Þetta er nýja málgagnið okkar Jensa. Nú getið þið lesið allt um litina á tannburstum okkar beggja og hvað við áætlum að borða í hádegismat næstu daga. Spiderblanket blífar! Jens er búinn að vera að tálga þetta til í nokkra daga og ég verð að segja að hann hefur staðið sig vel. Mér finnst þetta allavegana ótrúlega flott blók!

Eins og þið sjáið eru helstu vinir nú þegar komnir á stöngina uppi til hægri. Ekki verður hlustað á kvartanir vegna mynda en hugsanlega er hægt að breyta þeim fyrir ákveðið verð.

Svo ætlum við fljótlega að henda inn öllum myndunum okkar í myndaalbúm síðunnar. (Getið valið það efst á síðunni þar sem stendur: Veldu nú) Þá getið þið skoðað hvað við borðuðum í hádegismat í Íran, Nýja-Sjálandi, Spáni, Egyptalandi, USA og á fleiri stöðum.

Jibbííí!

Skrifað July 21st, 2006 af erna í flokkum Elsta Spiderblanket

Fyrsta færslan

Þetta er fyrsta færslan sem mun birtast á spiderblanket.

Þetta blogg mun fyrst um sinn aðallega snúa að því að chilla með ðe hómís en hver veit hvað tekur svo við

Skrifað July 21st, 2006 af jens í flokkum Elsta Spiderblanket

Það er aldeilis..

Þetta er ótrúlegt! I feel so smaaaall man..

Er í langþráðu tveggja daga fríi núna eftir erfiða vinnuhelgi þar sem mér tókst meðal annars að fljúga allsvakalega á hausinn um borð í skútu og kasta við það símanum mínum í Reykjavíkurhöfn. Þetta þóttu mikil tilþrif og ég hef núna öðlast viðurnefnið tollvörðurinn fljúgandi hjá flestu frönsku kappsiglingafólki hér á landi. Aðeins nokkrar sýningar eftir.

Í augnablikinu er ég því að glíma við ferns konar tjón.. Fjárhagslegt (síminn), líkamlegt (blá og barin, svört og marin), félagslegt (síminn farinn með öll númerin mín og enginn getur náð í mig fyrr en ég er komin með nýjan) og auðvitað andlegt (Það er mjög erfitt að ætla að þykjast vera virðulegur embættismaður eftir svona sprell).

Lífið er nú samt að fara vel með mig þrátt fyrir allt þetta tjón! Við Jens fórum í sumarbústað á Flúðum í síðustu viku með allri stórfamilíunni og höfðum það notalegt í einu sólinni sem hefur sést í sumar! Við stóðum okkur frábærlega í HÓB-mótinu (Hólmsteins-Ófeigs-Blöndal-mótið) sem þá var haldið og kepptum m.a. í golfi, rauðvínssmökkun, trivial og Singstar. Þess á milli átum við góðan mat, horfðum á HM og lágum í heita pottinum. Ótrúlega vel heppnuð ferð nema fyrir aumingja húðina á okkur sem fékk áfall og sólbrann svona líka hressilega.

Svo lítur út fyrir að ég verði líka í fríi næstu helgi sem er auðvitað alveg brillíant!

Loka þessari færslu með mynd af frændum mínum sem eins og sést eru vatnsstríðshetjur með meiru.
Photobucket - Video and Image Hosting

Skrifað July 4th, 2006 af erna í flokkum Gólfmottan