Ætli þeir sprengi eftir sömu upplýsingum

Þeir fundu alnafna leiðtoga Hezbollah, handtóku hann og yfirheyrðu. Ætli þeir sprengi eftir sömu upplýsingum?
"Hey strákar! það er náungi í Hisbóla sem heitir Ahmed! Finnum hann bara í Beirút-símaskránni 2006 og sprengjum svo blokkina hans. Ég hef frétt að Abdúlla, Alí og Mohammad búi þar líka…"
Hálfvitar…

Skrifað August 22nd, 2006 af jens í flokkum Elsta Spiderblanket

Vinna og vinna…

Það er ótrúlegt hvað vinna getur tekið á mann og hvað helgar geta verið endurnærandi.
Hámark endurnæringarinnar er þó yfirvofandi Spánarferð með Ernu ofurglæsikvendi þar sem bókalisti síðustu ára verður kláraður og sól sleikt af miklum móð. Þeir sem til húðlitar míns þekkja geta gert sér í hugarlund að það sé þó ekki það eina á dagskránni. Í burðarliðnum eru líka einhverjar bílferðir þó það sé allt enn á rannsóknarstigi.
Það er þó mikilvægt að hafa mikinn slökunartíma líka enda mikill vinnuvetur framundan. Þessvegna þarf að velja af kostgæfni hvaða staðir á suður-Spáni verða rannsakaðir í kjölinn.

Þetta verður rosalegt…

Skrifað August 16th, 2006 af jens í flokkum Elsta Spiderblanket
Tags: ,

Nú er ég hættur að borga skatta

Nei, ég hef ekki fundið töfraleið til að komast hjá skattgreiðslum heldur er þetta einungis draumur.
Hingað til hefur mér alls ekki þótt slæmt að borga skatta þó þeir séu í hærri kantinum. Ég nota jú vegi landsins, nýt menntunar og heilbrigðisþjónustu og lögreglan verndar mig frá því að vera rændur á götum úti.
En hvers vegna vil ég þá hætta að borga skatta? Því þorri þeirra fer því miður í fólk sem þykist vita betur en ég og notar mína peninga til að þröngva þeirri "vitneskju" upp á mig. Síðustu misseri hafa sprottið upp nýjar og skaðlegar opinberar stofnanir undir nafninu "stöð" eða "stofnun". Þessum fyrirtækjum er svo úthlutað geysilegu magni af almannafé sem svo er notað til þess að borga fjölmiðlum til þess að halda úti áróðri sem byggist á skoðunum þess sem stýrir stofnuninni á því hvað mér er fyrir bestu.
Botninn tók úr þegar ég var í sakleysi mínu að horfa á sjónvarpsþátt og skyndilega birtist auglýsing sem hefur eflaust ekki kostað lítið. Innihaldið? "Það er jafn mikið alkahól í bjór, vinglasi og staupi". Ég held að flestir hafi haft einhverja hugmynd um þetta fyrirfram og ég leyfi mér að efast um að svona auglýsingar breyti drykkjumenningu fólks nokkurn skapaðan hlut. Auglýsingin kostar miðað við hratt tékk á verðskrá milli 25000 og 80000 í birtingu hvert skipti sem hún er birt og eitthvað hefur nú kostað að hanna hana og taka hana upp. Þarna er því eflaust hundruðum þúsunda ef ekki milljónum eytt í það að auglýsa einhverja staðreynd sem hefur líklega hörmulega lélegt forvarnargildi. Það hefði mátt gera svo margt annað…
Þetta var að sjálfsögðu Lýðheilsustöð. Sem virðist hafa endalaust fjármagn.
Eins og í fyrra þegar heilsíðuauglýsingar og veggspjöld birtust úti um allt undir gríðarlega dramatískri fyrirsögn um að 100 börn hafi slasast við fall úr innkaupakerrum. Þegar nánar er athugað er þetta langoftast einhverjar smáskrámur og þegar var rýnt nánar var erfitt að fá einhverjar sérstakar upplýsingar um hversu mörg alvarleg slys hefðu átt sér stað eða hvort þau hefðu verið einhver yfirleitt.
Lýðheilsustöð fær 186 milljónir á ári frá skattgreiðendum.

Skrifað August 11th, 2006 af jens í flokkum Elsta Spiderblanket

Misheppnað

Í dag átti ég samtal við mann í vinnunni minni sem gerði mig mjög reiða. Ég var alveg brjáluð út í manninn og ákvað (ómeðvitað) að vera virkilega fúl út í hann. Ég svaraði öllu sem hann sagðir stuttaralega og laumaði ýmsum leiðindakommentum inn í samtöl. Þetta tók virkilega á mig og ég varð rosalega þreytt í sálinni á því að vera svona reið og vanda mig í því að vera nógu fúl og leiðinleg án þess þó að ganga of langt. Tveimur hundleiðinlegum og erfiðum tímum síðar kom í ljós að það sem maðurinn hafði sagt sem gerði mig svona reiða var misskilningur.
Þegar ég útskýrði fyrir manninum hvað hafði gerst og að ég hefði verið dragfúl út í hann kom í ljós að hann hafði ekki einu sinni áttað sig á því. Hann hélt að mér væri illt í maganum eða e-ð. Ég hafði því eytt 2 klukkustundum af lífi mínu í það að vera fúl, reið og asnaleg og liðið hundilla á meðan í algjöru tilgangsleysi. Og sama þótt þetta hefði ekki verið misskilningur þá hefði hann hvort sem er ekki tekið eftir tilraunum mínum til fúllyndis og það þar með einnig tilgangslaust.

Ég mun hugsa mig tvisvar um áður en ég ákveð að vera reið og fúl út í einhvern aftur. Það er einfaldlega ekki þess virði.

Skrifað August 9th, 2006 af erna í flokkum Elsta Spiderblanket

Þeir sköllóttu og fallegu

Það er svo ótrúlega notalegt að skríða undir sæng og horfa á sjónvarpið eftir of langan vinnudag sem hófst óguðlega snemma. Ég tók á móti alls konar skipum og flugvélum og átti mörg misáhugaverð samtöl við misáhugavert fólk. Kvót dagsins var þó ótvírætt: "Það er í fínu lagi að slátra þessum hjálparstarfsmönnum.. nóg er nú til af þeim!" Ahhhhh lífið er yndislegt og mannflóran líka.. eða hvað?

Hef ekki enn talað um þegar Jens bauð okkur Brynju og Finni Ingólfssyni í sumarbústaðaferð til Grænlands og ætla því að gera það núna. Það var æðislegt! Við gistum í litlum kofa rétt utan við Kulusuk og það fylgdu honum tveir knúsulegir og hressir hundar. Veðrið var frábært allan tímann og við löbbuðum um allt, skoðuðum ísjaka, hvolpa og seli, fórum í snjóslag og borðuðum fisk í hvítlaukskrubbi sem slóg í gegn hjá Brynju (eða þannig). Auðvitað eru ekki bara regnbogar og sleikipinnar á Grænlandi. Eiginlega akkúrat öfugt. Í Kulusuk eru alltof margir hundar og flestir eru sveltir til að halda í veiðieðlið. Svangir, horaðir og ýlfrandi hundar elta mann því á röndum í von um matarbita sem ómögulega var hægt að gefa bara einum en ekki öllum. Mikill hjartaverkur. Alkahólismi er líka mikið vandamál og það fór sko ekki leynt. Þegar við vöknuðum á fallegum laugardagsmorgni og fórum á vapp hittum við hressa Grænlendinga sem voru að spila á gítar og staupa sig.
En þrátt fyrir þetta voru innfæddir mjög vingjarnlegir og náttúran stórkostleg og ferðin okkar í alla staði frábær!

Nú í þessum skrifuðu orðum var vinnan mín að hringja og segja mér að mæta klukkan 5 í fyrramálið. Yndislegt.
Ætli ég verði því ekki að fara í bælið.
Þótt ótrúlegt megi virðast eru samt bara 9 vinnudagar eftir af þessu vinnusumri og ég get ekki kvartað mikið því þá held ég til Spánar í sól, strönd og rauðvín.

Buenos noches amigos

Skrifað August 8th, 2006 af erna í flokkum Elsta Spiderblanket

Að hefja blogg

Einu sinni bloggaði ég.
Ég man lítið um það hvað það blogg fjallaði og því síður ættu lesendur þess að muna það. Enda var það skammlíft.
Nú þegar maður byrjar að skrifa á nýtt blogg er erfitt að vita hvar á að byrja. Það hljómar einhvernveginn undarlega að fara að tala bara um hversdagslega hluti eins og maður hafi aldrei gert annað (Öfugt við Ernu, sem getur það af því að þetta blogg er rökrétt framhald af hennar fyrrum bloggi).
Einhvernveginn finnst mér eins og það þurfi að segja eitthvað dramatískt í þessari færslu. Í næstu færslu get ég svo farið að tala um eitthvað mjög fyndið sem gerðist þegar ég var að bursta í mér tennurnar í morgun.
Ég ætla hins vegar ekki að skrifa neitt dramatískt, enda les enginn heilvita maður þetta blogg á þessum fáu fallegu sumardögum sem hin æðri máttarvöld hafa náðarsamlegast gefið okkur sem vinnum inni allan daginn.
Annars er gott að byrja að blogga aftur. Sér í lagi þegar maður hefur hinn fullkomna einstakling í blogg-liði með sér. Þetta verður ótrúlegt

Skrifað August 1st, 2006 af jens í flokkum Elsta Spiderblanket