Föstudagur? Já takk!

Þetta er nú búin að vera meiri vikan.. Guði sé lof að það er föstudagur á morgun þó að komandi helgi þurfi að mestu leyti að fara í lærdóm og grúsk. Ég vona bara að það verði brjálað rok og rigning svo ég geti kveikt á kertum og kúrt í kósýheitum undir teppi með bækurnar í annarri og ostapopp í hinni.
Í kvöld á víst að slökkva öll ljós á Íslandi eða eitthvað í smátíma. Mér finnst mjög leiðinlegt að veðrið sé ekki betra því það hefði án efa verið mjög flott að sjá stjörnuhimininn án ljósmengunar. Það verður þó ansi merkilegt að sjá allt höfuðborgarsvæðið myrkvast hérna af 12.hæðinni og þeir sem vilja joina mér á svölunum eru velkomnir.

Skrifað September 28th, 2006 af erna í flokkum Elsta Spiderblanket

Vinkona mín..

..hún Þórunn og Maggi kærastinn hennar eignuðust litla og án efa yndislega dóttur snemma í morgun. Ég verð að viðurkenna að mér finnst örlítið skrýtið að Þórunn sé orðin mamma en ég gæti samt ekki ímyndað mér neinn betri í það hlutverk. Til hamingju elsku Þórunn og Maggi!

Nú hef ég frábæra afsökun fyrir því að fara og skoða pínulitla kjóla og aðra smágerða hluti sem láta klingja vel í eggjastokkunum.. ;)

Skrifað September 24th, 2006 af erna í flokkum Elsta Spiderblanket

Ástralir eru svo bestir

Ástralir hafa jafnan verið þekktir fyrir kaldhæðni. Hér eru nokkrar spurningar og svör sem birtust á upplýsingavef fyrir ferðamenn sem stefna á ferð til Ástralíu:

SP: Er einhvern tímann rok í Ástralíu? Ég hef aldrei séð rigningu hjá ykkur í sjónvarpinu, hvernig fara plönturnar að því að vaxa? (Bretland)
SV: Við flytjum inn fullvaxnar plöntur og sitjum svo og horfum á þær drepast.

SP: Mun ég sjá kengúrur á vappi á götunum? (USA)
SV: Það fer eftir því hvað þú ert búinn að drekka mikið.

SP: Eru hraðbankar í Ástralíu? Getur þú sent mér lista yfir þá í Brisbane, Cairns, Townsville og Hervey Bay? (Bretland)
SV: Úr hverju dó seinasti þrællinn sem þú áttir?

SP: Getur þú gefið mér upplýsingar um flóðhestakappreiðar í Ástralíu? (USA)
SV: A-frí-ka er stóra þríhyrnda heimsálfan sunnan við Evrópu, Ás-tra-lía er stóra eyjan í miðju kyrra-hafinu og þar eru ekki… nei annars gleymdu þessu. Flóðhestakappreiðarnar eru alltaf á þriðjudögum á Kings Kross. Komdu nakinn.

SP: Í hvaða átt er norður í Ástralíu? (USA)
SV: Horfðu í suður og snúðu þér um 90 gráður. Hringdu í okkur þegar þú ert búinn og við sendum þér afganginn af leiðbeiningunum.

SP: Má ég koma með hnífapör til Ástralíu? (Bretland)
SV: Til hvers? Notaðu bara puttana eins og við.

SP: Getur þú sent mér tónleikaskrána fyrir Vínardrengjakórinn? (USA)
SV: Ast-ur-ríki er litla landið við hliðina á Þýskalandi…. nei annars gleymdu þessu. Vínardrengjakórinn kemur alltaf fram á þriðjudögum á Kings Kross beint á eftir flóðhestakappreiðunum. Komdu nakinn.

SP: Ég hef fundið upp nýja vöru sem gefur þér eilífa æsku. Getur þú bent mér á hvar ég get selt hana í Ástralíu? (USA)
SV: Þú getur selt þetta alls staðar þar sem margir Bandaríkjamenn eru saman komnir.

SP: Get ég notað háhælaða skó í Ástralíu? (Bretland)
SV: Þú ert breskur pólitíkus, ekki satt?

SP: Getur þú sagt mér á hvaða stöðum í Tasmaníu konur eru í minnihluta?(Ítalía)
SV: Jebb, á hommabörum.

SP: Haldið þið upp á jólin í Ástralíu? (Frakkland)
SV: Bara á jólunum.

SP: Eru verslanir í Sidney og er hægt að fá mjólk allan ársins hring?
(Þýskaland).
SV: Nei, við erum friðsælt samfélag flækingssafnara og veiðimanna. Mjólk er ólögleg í Ástralíu.

SP: Vinsamlegast sendu mér lista yfir alla lækna sem geta útvegað móteitur gegn skröltormabiti. (USA)
SV: Skröltormar lifa í Am-er-íku þar sem ÞÚ býrð. Allir ástralskir snákar eru meinlausir og eru fínir sem gæludýr.

SP: Ég er með spurningu um fræga skepnu í Ástralíu en man ekki hvað hún heitir. Það er svona bjarndýr sem býr í trjám. (USA)
SV: Þeir eru kallaðir detti-birnir. Það er af því að þeir láta sig detta úr trjánum ofan á fólk og éta úr þeim heilann. Þú getur samt varist þetta með því að hella yfir þig mannaþvagi, þá láta þeir þig í friði ef þú ert úti að labba.

SP: Ég var í fríi í Ástralíu 1969 og mig langar að hitta stúlku sem ég var með þá. Getur þú aðstoðað? (USA)
SV: Já, ekkert mál, en þú þarft áfram að borga henni fyrir klukkutímann.

SP: Get ég talað ensku á flestum stöðum í Ástralíu? (USA)
SV: Jamm, en þú verður að læra hana fyrst

Skrifað September 21st, 2006 af erna í flokkum Elsta Spiderblanket

Akkúrat núna þá er ég..

.. að reyna að glósa refsirétt
.. búin að drekka 4 bolla af kaffi
.. með hjartslátt í tánni (óeðlilega mikinn það er)
.. að hlusta á playlistann "Top 500 rock and roll songs"
.. nýbúin að vera á spjalli við votta jehóva sem tókst að koma sér inn til mín með "fótinn í dyrnar"-aðferðinni
.. aum í báðum handleggjum. Sá vinstri var bólusettur í gær og hinn er badmintonaumur.
.. að deyja úr löngun í alvöru djúsí tiramisu
.. að fara í leikfimi
.. geeeeeðveikt hress maður!

Skrifað September 20th, 2006 af erna í flokkum Elsta Spiderblanket

Hressileeeegt

Einn af kennurunum mínum er furðulega líkur Dean Cain sem lék Clark Kent í hinum frábæru þáttum "Lois and Clark" en ég var einmitt mjög heit fyrir Deansa í hlutverki þessa saklausa ofurmennis á mínum yngri árum. Kennarinn er þó ekki nærri því jafn ótrúlega æðislegur og Dean minn og hef ég því ákveðið að halda sambandi okkar algjörlega platónsku í bili. XT>

Skrifað September 19th, 2006 af erna í flokkum Elsta Spiderblanket

The Big Apple

Við Jens, Þorbjörg og Dagur höfum ákveðið að skella okkur til New York í 5 daga eftir mánuð og ég er ekki lítið spennt. Ég hef einmitt eytt stórum hluta þessa sunnudags í það að rifja upp nokkra þætti af Sex and the city en við Þorbjörg erum að spá í að gerast svo miklir lúðar að skella okkur í svokallaðan "Sex and the city tour" þar sem er stoppað við á helstu stöðunum eins og í Jimmy Choo skóbúðinni, íbúðinni hennar Carrie, kaffihúsi vinkvennanna og uppáhalds barnum. Við ferðumst um Manhattan í einhverri lúxusrútu og lofað er að kokteilar verði ekki í færri kantinum. Við gistum á litlu hóteli á frábærum stað en það er margt það helsta í göngufjarlægð því við þurfum auðvitað að sinna túrhestaskyldum okkar. Við ætlum að sjá svo margt, fara á jazzklúbba, borða á skemmtilegum veitingastöðum og drekka fullt af kokteilum. Geggjað!
Nú ætla ég bara að vera ótrúlega dugleg að læra svo ég getið beilað í 5 daga með góðri samvisku.

Skrifað September 17th, 2006 af erna í flokkum Elsta Spiderblanket

Back to school

Jæja svo.. á maður ekki að fara að hefja þennan vetur á Spiderblanket? Við eigum eftir að gera fullt ennþá, setja inn marga góða vini okkar og annað sem okkur finnst spennandi auk þess að setja inn myndirnar okkar. Kemur allt svona með kalda vatninu.
Ég er annars bara mjög sátt við það að vera byrjuð aftur í skólanum, er búin að kaupa allar bækur og hlakka til að fara að mæta í kokteila og fara á fullt í stúdenta- og Háskólaráði. Það verður mikið að gera hjá mér en ég hef svakalega góða tilfinningu fyrir þessum vetri. Ég vona bara að hann verði kaldur,dimmur og snjóþungur svo ég geti alltaf haft kveikt á kertum, verið í feitum úlpum, fengið mér heitt súkkulaði og farið á snjóbretti. Þetta þarf ekki allt endilega að gerast á sama tíma.

Þetta sumar var skrýtið að því leyti að ég vann nánast alla daga stundum allt að 18.klst á sólarhring og því eru flestar af sumarminningum mínum tengdar vinnunni (og buddan bólgin og falleg). Ég veit að margir eru sammála mér í því að það leið líka alveg fáránlega hratt. En ég skemmti mér sem betur fer konunglega í vinnunni og fékk að gera ýmislegt ótrúlega skemmtilegt og leyndardómsfullt (trúnaðarmál krakkar mínir). Ég hefði aldrei viljað missa af þessari reynslu.
Svo fórum við Jens úr mestu vinnutörn sögunnar beint í mestu afslöppunarferð.. uhh.. sögunnar. Ekkert sérlega markvert gerðist í þeirri ferð eins og góðum afslöppunarferðum sæmir en við gerðumst þó það miklar hetjur að:
..sofa sveitt í 40gráðu hita í tjaldi í Cordoba
..fá höfðinglegar móttökur í glæsivillu í fjöllunum við Gíbraltar
.. hanga með gömlum berbrjósta hippum og surfer dudes í Tarifa þar sem var nóg af áfengi,vindi og öldum en nánast ekkert annað.
..borða að meðaltali tvo hráskinkupakka á dag
..lesa 4 bækur á mann
..drekka fullt af köldu rósavíni(Erna)
..drekka fuuuuulllt af bjór (Jens)
..drekka fullt af rauð- og hvítvíni
..borða fullt af góðum mat
..sofa til kl.13:00 nánast á hverjum degi
Þetta var alveg stórkostlegt og endurnærandi frí en nú er það bara alvara lífsins.. kokteilar, vinir, matarboð, badminton og já.. auðvitað námið!

Skrifað September 12th, 2006 af erna í flokkum Elsta Spiderblanket