Spiderblanket Lite

Ný og bætt þjónusta hefur verið tekin upp fyrir notendur spiderblanket. Þar sem síðan er últra-teknókratísk er til fólk sem finnst þetta vera yfirdrifið, heimskulegt eða jafnvel særandi (Sér í lagi þegar hún virkar ekki á gömlu tölvuhjöllunum þeirra).
Þetta fólk hefur að sjálfsögðu rangt fyrir sér en engu að síður viljum við koma til móts við pöpulinn og höfum þess vegna sett upp aðra útgáfu af síðunni, Spiderblanket Lite, sem allir geta skoðað, og þá meina ég ALLIR! Ef einhver getur ekki skoðað hana er viðkomandi vinsamlegast beðinn um að mæta heim til okkar til eftirlits og úrvinnslu.
Sá galli er þó á gjöf Njarðar að ekki er sjálfgefið að fólk finni nýju útgáfuna ef það er svo aumt að eiga erfitt með að skoða þessa. Það er vegna þeirrar einföldu en jafnframt óþægilegu staðreyndar að eini staðurinn sem þessar upplýsingar koma fram er hér á síðunni (Sem nú heitir Spiderblanket Ultra) – en hún þarf að virka til þess að menn geti tengst Spiderblanket Lite.
Þetta er flókið mál en ef allir taka höndum saman er það vel leysanlegt.
Slóðin á Spiderblanket lite er http://www.spiderblanket.com/a en einnig má nálgast hana með því að smella á hnappinn hér að ofan.

Að lokum má nefna það að ofur-reikninet háskóla á Norðurlöndum er búið að vera að reikna nýja uppfærslu á töff-stigunum síðan í Október og er nú um það bil hálfnað. Við munum senda þau hingað inn um leið og niðurstaða fæst.
Fyrir þá sem eru áhugasamir um reikniaðferðirnar er bent á American Journal of Mathematics, nóvember 2006.

Skrifað November 28th, 2006 af jens í flokkum Elsta Spiderblanket

Andskotinn

Ég ætla aldrei að taka svona lofræðu um nokkurn hlut aftur á þessu bloggi. Ég er ekki fyrr búinn að mæra BBC í hakk þegar stöðin hættir útsendingum og einhver leiðinleg stöð sem spilar bara gömul íslensk lög (og virðist í þokkabót ekki einusinni eiga þann hluta íslenskra dægurlaga sem talist geta góð) kemur í staðinn.
Ég er kominn með fráhvarfseinkenni og hlusta nú grimmt í gegnum tölvuna í vinnunni…
Á einhver stuttbylgjuútvarp sem gengur fyrir batteríum?

Skrifað November 27th, 2006 af jens í flokkum Elsta Spiderblanket
Tags:

Akstur og BBC

Það er svolítið furðulegt að keyra til Keflavíkur í vinnuna á hverjum morgni. Tekur aðeins lengri tíma en að fara í skólann eða vinnu í Reykjavík.
Einn kostur er þó að rykið er dustað af græjunum í bílnum og útvarpið og geislaspilarinn notuð sem aldrei fyrr. Eitt skemmtilegt við þetta er að maður getur í stað þess að komast í gegnum einn geisladisk á mánuði nær maður 1-2 á dag og kemst yfir ótrúlega mikið efni. Annað er BBC world service. BBC er frábær stöð. Efnið er allt hrikalega þétt og vel unnið en maður verður að geta hlustað á heilan þátt til þess að hafa gaman af.
Það er fullt af skemmtilegum þáttum í gangi og fjölbreytnin er ótrúleg. Einn af skemmtilegustu þáttunum er World Have Your Say þar sem ákveðið hitamál líðandi stundar er tekið fyrir og fólk hringir svo inn eða sendir e-mail/SMS og segir sínar skoðanir á því og rífst. BBC-menn eru duglegir að egna fólki saman með ólíkar skoðanir, t.d. Palestínukonu og Texas-búa þegar er verið að fjalla um Ísrael/Palestínumálin. Hann hélt því fram að vandamál Palestínu mæltti leysa með því að þurrka hana út með kjarnorkusprengjum. Konan sem hann var að tala við fór þá að reyna að útskýra að hún væri manneskja og hann hefði ekki rétt til að drepa hana. Símtalið endaði svo með því að hún öskraði á hann með gervi Texas-hreim:
"Ill just then get a few of your nukes from across the borders with Israel and nuke your shitty Houston,Dallas and whatever else is there" – klassískt móment í útvarpi..
Þulirnir eru nokkuð góðir í að bregðast við svona og eru fljótir að skipta milli fólks. Ég hef heyrt fólk frá flestum heimshornum tala og það er ekki á mörgum öðrum stöðum sem maður fær t.d. að heyra í venjulegum Írökum eða Sómalímönnum þegar verið er að flytja þaðan fréttir.
Svo eru reglulegar fréttir svo maður er alltaf vel með á nótunum. Mig langar þess vegna að óska Sýrlendingum og Írökum til hamingju með stjórnmálasambandið, Nepölum til hamingju með friðarsamkomulagið og landsmönnum öllum til hamingju með það að eiga ótryggða herstöð.

Skrifað November 21st, 2006 af jens í flokkum Elsta Spiderblanket
Tags: , ,

Enn einn..

..árangursríkur dagur í lífi mínu.
Á þessum klukkutíma síðan ég kom heim hef ég drukkið 3 stóra kaffibolla sem nægir vanalega til þess að umbreyta mér í Tasmaníuskolla en ekki bætti úr skák að fljótlega eftir síðasta kaffibollann heltók mig ótrúleg sykurlöngun. Þar sem ekkert var til í kotinu nema hráefni í eitthvað stórkostlegt fékk ég þá snilldarhugmynd að búa til marengsköku en svo skyndilega nennti ég því ekki lengur og endaði með því að éta hálfa skál af hráum marengs. Núna skelf ég og titra og er mjög nálægt því að kasta upp! Hjartað berst um í brjósti mér og svo finnst mér eins og sjónin sé eitthvað brengluð því ég sé minn eigin hjartslátt sem er örugglega ekki gott. Ef einhver læknanemi vill koma og gera tilraunir á manneskju í alvarlegri sykur- og koffeinvímu er hann velkominn. Hvað ætli myndi gerast ef ég fengi mér bjór núna?
Það eru líkur á því að kvöldið verði skemmtilegt (algjörlega ótengt fyrrgreindu ástandi ritara). Það væri mjög ánægjulegt þar sem síðasta helgi var hálfgert félagslegt klúður.
Smúður.

Skrifað November 17th, 2006 af erna í flokkum Elsta Spiderblanket

Gæti það verið?

Gæti það verið að ég sé að verða það lasin að ein magnýl, húfa, trefill og te dugi ekki til þess að koma mér í gegnum erfiðan funda- og skóladag? Ég var allavegana í ruglinu í IKEA áðan. Fór tvo hringi án þess að taka eftir því, stal körfu af grunlausri gamalli konu og mundi svo ekkert hvað ég hafði verið búin að sjoppa í hina körfuna, stoppaði í rúmadeildinni og lét mig dreyma um að leggjast og sofna og var svo næstum því köfnuð í eigin slími í ljósadeildinni. Jóladeildin bjargaði málunum í þetta sinn og ég endaði með því að kaupa fullt af jólaskrauti, ofnhanska og Wok-pönnu. Frábær ferð.
Talandi um gúmmelaði (what?) þá þarf ég taka kjúklingabringur út úr frystinum núna svo Jens meistarakokkur geti framreitt dýrindis wok-máltíð í kvöld. Húrra! Kannski ég láti hann vera með jólasvuntuna..?

Skrifað November 15th, 2006 af erna í flokkum Elsta Spiderblanket

Ég held að einn bjór sé málið

Litli sakleysinginn minn hún Brynja Rut fór á hrekkjavökuball í kvöld og held að ég geti með sanni sagt að ég væri ekki til í að hitta þessa útgáfu af systur minni í dimmu húsasundi. Enda fékk stúlkan verðlaun fyrir besta búninginn. Til hamingju með það gamla.
Ég er annars bara í ótrúlegum rólegheitum upp í sófa eftir erfiða viku. Held ég hljóti að hafa slegið eitthvað met í fundafjölda og veseni og eins og með allt þá eru sumir fundir skemmtilegir en aðrir.. hömm.. ekki svo skemmtilegir. Veit annars einhver hversu ömurlega fólk þarf að haga sér þar til að það telst leyfilegt að slá það? Ég ætla að prófa að kíkja í samningaréttarbókina mína.

TGIF…T

Skrifað November 2nd, 2006 af erna í flokkum Elsta Spiderblanket