Yndislegt

Gleðileg jól kæru vinir! Vona að allir hafi haft það jafn gott og við þessa síðustu viku. Þetta er svo yndislegur tími.. við erum algjörlega búin að borða yfir okkur, fá frábærar gjafir, snúa sólarhringnum við, spila langt fram á margar nætur og annað sem einkennir líf fólks í jólafríi. Í dag þá vaknaði ég t.d. kl.13:00 en er núna fyrst að hugsa um að skella mér í sturtu.. Það er svo gott að hangsa upp í rúmi og kúra og lesa með konfekt. Svo gott.
Hafið það sem allra feitast og best!

Skrifað December 27th, 2006 af erna í flokkum Elsta Spiderblanket

Jólin og ástfangin dekurdýr

Nú fer þessari prófageðveiki alveg að ljúka, bara einn og hálfur lesdagur eftir og ég er orðin mjög spennt í sálinni minni.
Það er búið að vera svolítið skrýtið að vera bara ein í prófum þessi jólin. Við Jens höfum gengið í gegnum margar prófatarnir saman, 9 til að vera nákvæm, og það var alltaf mjög huggulegt. Það er svo gott að hafa einhvern sem er jafn myglaður og maður sjálfur, vaka saman langt fram á nótt yfir misskemmtilegum bókum, skiptast á að hella uppá og hlæja að bröndurum sem bara steiktu fólki í prófum finnast fyndnir.
En nú er Jens vinnandi maður og ég var frekar stressuð um að þetta yrði erfið og einmanaleg prófatörn. Þannig hefur hún þó aldeilis ekki verið. Jensi hefur dekrað mig svo mikið að ég veit ekki hvort ég geti nokkurn tíma snúið aftur í eðlilegt líf. Íbúðin hefur haldist hrein allan þennan tíma, ég fæ dýrindis mat á hverju kvöldi og eftir matinn kveikir Jens á kertum og gerir huggulegt og lærdómsvænt. Hann hefur svo sjálfur nýtt tímann og verið hérna hjá mér að vinna og læra öll kvöld svo að við getum tekið okkur smá frí saman frá því að ég klára prófið og fram yfir áramót. Er til betri kall en minn? Ég held ekki. Varð bara að monta mig af honum.
Jæja.. monti lokið.. lærdómur hafinn.

Skrifað December 18th, 2006 af erna í flokkum Elsta Spiderblanket

Já þetta er enn ein færslan um hunda

Bendi áhugasömum á nýjar myndir af litla hvolpinum okkar í myndaalbúminu (að ofan í "veldu nú" ).
Hann er núna orðinn 4 vikna gamall og búinn að hundast (maður segir ekki mannast um hunda er það?) mikið síðan við hittum hann síðast.
Miklar nafnaumræður eru í gangi innan fjölskyldunnar svo ef að þið hafið stórkostlegt nafn sem hæfir vel hvítum, loðnum, knúsubolta endilega deilið því með okkur í athugasemdakerfinu!

Aðeins 3 dagar í próflok!

Skrifað December 16th, 2006 af erna í flokkum Elsta Spiderblanket

Það sem er mikilvægast

Svefn er gríðarlega mikilvægt fyrirbæri og framvinda hans hefur úrslitaáhrif um ástand og líðan dagsins sem kemur í kjölfar hans. Einn mikilvægasti tíminn í svefninum er þegar maður er að vakna.
Vinnandi menn eins og ég notum vekjaraklukkur þegar við erum að vakna. Einn eiginleiki þeirra betri er "snooze" eða kríublundur eins og einn síminn minn kallaði það. Þessi mikilvægi eiginleiki leyfir manni eftir tilfinningu að draga ákvörðun kvöldsins áður um að vakna á tíma X í efa og seinkar vakningunni um nokkrar mínútur.
Það sem enginn framleiðandi vekjaraklukkna eða annarra tækja sem vekja mann virðist hafa áttað sig á er að þessar "nokkrar mínútur" gegna lykilhlutverki í líkamlegu og andlegu ástandi þess sem klukkuna notar. Þetta þarf að vera hárréttur tími. Sé hann of langur sofnar maður of djúpt og er engu bættari þegar maður vaknar, syfjaðri ef eitthvað er. Sé hann of stuttur er engin aukahvíld í kríublundinum, heldur ýtir maður á kríublunds-takkann aftur og aftur í þeirri veiku von um að tíminn muni lengjast örlítið og maður fái hvíldina sína.
Samt hef ég ekki enn rekist á vekjaraklukku þar sem hægt er að stilla þennan tíma sjálfur. Framleiðendur virðast halda að þetta sé eitthvað sem kemur notandanum við og telja óvarlegt að veita honum það vald að stýra þessu sjálfur. Þetta fer ósegjanlega í taugarnar á mér, sér í lagi á nútíma-símum þar sem allt milli himins og jarðar er stillanlegt – en ekki þetta.
Minn ídeal-tími er 6-7 mínútur. Líf mitt var allt miklu betra þegar ég átti Nokia síma nokkurn sem var einmitt stilltur á 6 mínútur. Minn núverandi sími er stilltur á 5 mínútur og þess vegna fæ ég enga hvíld úr kríublundinum heldur er ég dæmdur til þess að liggja dauðþreyttur og hlusta á píp í 15-20 mínútur á hverjum morgni.
Ég skora hér með á framleiðendur vekjaraklukkna að svara kalli mínu og hafa kríublunds-tímann á næstu vekjaraklukku sem ég kaupi stillanlegan (Til öryggis, ef preferensinn skyldi breytast). Þar sem fáir vekjaraklukkuframleiðendur tala íslensku ætla ég líka að segja þetta á alþjóðatungunni:
I score herewith on fromleaders of waking clocks to swear my call and have the snooze time on my next waking-clock that I buy stillable.

Skrifað December 12th, 2006 af jens í flokkum Elsta Spiderblanket
Tags: ,

Ótrúlega kesemenleg færsla

Bara 9 dagar eftir af þessu prófastússi og þá tekur við mikið og velkomið jólatúss. Mér finnst eins og allir séu búnir í prófum á föstudaginn nema ég (og Guðrún Halla sem er reyndar ekki búin fyrr en á Þorláksmessu minnir mig..sorrý Guðrún) og ég er ekkert voðalega sátt við það. Marta systir, Þorbjörg, Elín, Egill, Finnur Ingólfsson.. allir búnir á föstudaginn en þá eru 5 dagar eftir af víxlum og viðskiptabréfareglum hjá mér. Kvart kvart kvart.
Ég get þó allavega huggað mig við það að það eru einhverjir búnir kl.17:30 þann 21.des.. IllErna gleðst yfir óhamingju annarra múhaha! Hinn eini sanni jólaandi.
Best að fara út og hrinda gömlum konum.

Skrifað December 11th, 2006 af erna í flokkum Elsta Spiderblanket

Dream come true?

Ég hafði ekki fyrr sagt orðið hvolpar þegar ég frétti að Jólasveinninn (Pabbi) hefði lagt inn pöntun fyrir einu slíku "stykki" og það yrði hugsanlega einn iðandi pakki með loðnu og knúsulegu innihaldi undir Blöndalsjólatrénu.
Ég er vægast sagt himinlifandi með þessa þróun mála.
Vægast sagt.
*dey*
Hvolpurinn er af tegundinni Bichon frise og verður því líklegast frekar smávaxinn og með perluhvítan og mikinn feld. Hundar af þessari tegund eru einnig þekktir fyrir að vera einstaklega hugjúfir og góðir, miklir knúsarar (fjúff) og fljótir að læra og gátu því m.a.s. unnið fyrir sér sem sérstakir sirkushundar í Frakklandi á byltingartímanum eftir að aðallinn hætti að geta gefið þeim paté á postulínsdiska.
Þeir eru voðalega litlir ennþá eins og sést á myndinni hér til hliðar en verða sætari og loðnari með hverjum deginum. Þegar þeir byrja að skoppa um og sýna hvaða persónuleika þeir hafa að geyma ætlum við að athuga hvort það sé ekki einhver lítill hvolpkrilli sem vill koma með okkur heim og þá verður allt nú gaman og knúsulegt.

Knús til ykkar allra sem eruð þjáningasystkini mín í prófum (ritgerðir og verkefni teljast líka með) en hinir geta bitið í appelsínubörk og sest á gaddavír!

Nema mamma og pabbi auðvitað. Maður segir ekki svona við foreldra sína.

Skrifað December 7th, 2006 af erna í flokkum Elsta Spiderblanket

Þá er komið að því..

..prófin eru hafin! Síðasti skóladagurinn var í gær og fyrsta prófið eftir viku. Mér tókst að vera dugleg og vakna á frekar góðum tíma og er núna að vinna í því að koma smá koffeini í blóðið svona til að auka lærdómsgleðina. Lærdómsaðstaðan er komin upp. Bækur eru í röðum á borðstofuborðinu, klassísk tónlist á fóninum, feita teppið er reiðubúið til þjónustu, heitt kaffi á könnunni og piparkökur í skál. Bring it on.
Jólaprófin þurfa ekki að vera svo slæm en ég hlakka samt mikið til þegar ég get farið að njóta þessa tíma á annan hátt. Ég er svo mikið jólabarn að ég væri alveg til í að baka 5 sortir, þrífa allt og skreyta allt og dúlla mér við að kaupa jólagjafir á milli þess sem ég fengi mér heitt súkkulaði á kaffihúsum. Ég veit ekki hvenær ég gæti mögulega hagað mér svona þó svo að engin próf væru til. Ekki sem vinnandi manneskja allavega. Ekki nema ég þá tæki sumarfríið mitt í desember. Ahhhh jólin. Bara best.
Annað sem er best eru hvolpar! Svo mjúkir og knúsulegir og vilja helst flytja í hálsakotið á manni. Við vorum svo heppin að komast í þrjú svona loðstykki síðustu helgi þegar Marta var að passa þau. Læt fylgja með nokkrar myndir hér til hliðar. Hugsið ykkur hvað það væri gaman að fá einn svona í jólagjöf!
Jæja.

Skrifað December 1st, 2006 af erna í flokkum Elsta Spiderblanket