Fernur eiga framhaldslíf

Þegar maður er búinn að taka svona langan tíma í að blogga ekki er nauðsynlegt að fyrirsögnin stuðli.
Það er hins vegar það eina sem er nauðsynlegt. Annað sem er að gerast? Stuttu eftir að ég skrifaði síðustu færslu datt nánast upp í hendurnar á mér sími með stillanlegu snooze og get ég haft það allt frá 30 sekúndum upp í 6 klst. Ég valdi að sjálfsögðu 6 mínúturnar og svefn minn hefur breyst mikið síðan.
Svo voru jólin bara mjög góð, eins og vera ber en stuttu eftir þau tók furðufuglinn hún systir mín upp á því að gifta sig, en það verður lengi í minnum haft sem sérkennileg hegðun á þessum tímum. Það var hins vegar heljarinnar partý og gleði sem því fylgdi og allt gott um partýið, Steinunni, Árna, Nínu Þorbjörgu og aðra aðila sem máli skipta í því samhengi að segja.
Þvínæst var farið í sumbl og tónleikaferð til Kaupmannahafnar að hitta hetjurnar Dag Bjarnason og Gunnar Eyþórsson sem þykjast stunda þar nám. Námslánum þeirra fyrir vorið var eytt í allskyns vitleysu eins og vera ber þegar fólk kemur í heimsókn og munu þeir nú lifa á loftinu og framkvæmd gjörninga það sem eftir lifir vetrar. Þar á meðal ætlar Gunnar Eyþórsson næstkomandi fimmtudag að hanga á hvolfi úr þyrlu yfir Jónshúsi nakinn meðan hann makar á sig leir í íslensku fánalitunum. Allir velkomnir en boðið verður upp á kaffiveitingar í boði Íslendingafélagsins eftir á.
Einn af nokkrum hápunktum ferðarinnar var ferð á tónleika hjá útvarpssinfóníuhljómsveit Dana, þar sem píanókonsert nr. 3 eftir Rachmaninoff var leikinn og einleikari var enginn annar en Arcadi Volodos sem stóð sig að vonum vel en gamalmennin í salnum misstu hann því miður út eftir aðeins eitt tiltölulega lágstemmt aukalag og er skömm að því. Eftir hlé var spiluð sinfónía nr. 4 eftir Tjaíkovskí sem ekkert okkar kannaðist við. Við létum að sjálfsögðu eins og við værum gestir við frumflutning hennar og komumst að þeirri niðurstöðu að fyrstu tveir kaflarnir væru lágstemmd og þreytandi rússnesk sveitarómantík meðan þriðji kaflinn var frumlegur og fjórði var kraftmikill. Í það heila var skemmtileg tilbreyting að koma í sal sem hentar betur til sinfóníutónleika en Háskólabíó en segja verður að mikinn mun sé að finna, jafnvel þó nokkuð sé liðið frá því að maður leit við á þær slóðir.
Annars hefur verið í nógu að snúast í vinnunni, enda mikið um dýrðir í starfi sem mínu á þessum tíma árs. Þó hef ég komist í það að vinna úr niðurstöðum í útreikningum á töff-stigum sem reikninet háskóla á norðurlöndum hefur verið að vinna undanfarnar vikur og nú hafa þau verið færð inn.
Hver er annars þessi HM í Handbolta sem allir hafa verið að tala um? Er hann í Frjálslynda flokknum?

Skrifað January 30th, 2007 af jens í flokkum Elsta Spiderblanket

Guttormur

Mikil gleði ríkir í Rjúpnahæðinni þessa dagana þar sem hvolpurinn margumtalaði er nú loksins kominn til okkar. Hann hefur verið nefndur Guttormur, kallaður Gutti, og er fáránlega mjúkur og sætur. Það er svo gaman að vera aftur komin með hund á heimilið þó svo að kötturinn sé ekki á sama máli.

Skrifað January 29th, 2007 af erna í flokkum Elsta Spiderblanket

Observation of the hour

Munnurinn á Juliu Roberts er eins og hann sé öfugur.. svona eins og þegar maður málar augu á hökuna á sér og grínast. XT>

Skrifað January 23rd, 2007 af erna í flokkum Elsta Spiderblanket

Uppgötvun ársins

Um daginn var ég að lesa Morgunblaðið, like you do, þegar ég rak augun í grein um Tæland og sprengingarnar sem urðu þar um áramótin. Í greininni stóð að stór hluti ferðamanna sem ætluðu til landsins á árinu hefðu afbókað ferðina vegna hræðslu um ókyrrt ástand. Ég fussaði aðeins yfir þessu og hugsaði með mér að ekki myndi þetta stoppa mig ef ég væri að fara til Tælands á árinu. Þá sló það mig skyndilega. Ég ER að fara til Tælands á árinu. Ég er líka að fara til Indlands, Pakistan, Laos, Kambódíu, Kína, Malasíu, Víetnam, Japan og Indonesíu.. á árinu. Það finnst mér vægast sagt skrýtin tilhugsun og enn skrýtnari hversu stutt er í ferðina. Bara 5 mánuðir þar til að við Jens stingum af. Mér hlýnar alveg í hjartanu svona í snjónum og skammdeginu.
Ég veit samt ekki alveg hvað er í gangi í höfðinu á mér þessa dagana. Mig dreymir alltaf svo rosalega drauma núorðið að ég þori varla að sofna á kvöldin. Ég ætla ekki einu sinni að leggja á ykkur að lýsa þessari vitleysu.
Ég vildi að maður gæti gert eitthvað gagnlegt í svefni en samt fengið hvíldina. Mér þætti það frábært ef ég kæmist í svona græju eins og var í Matrix og gæti eytt nóttinni í það að læra tungumál eða bardagalistir en ekki fáránlega drauma um dramatískan hjónaskilnað dýra í leðurbuxum.

Skrifað January 15th, 2007 af erna í flokkum Elsta Spiderblanket

Í fréttum

Tíminn líður svo hratt. Ég er nýbyrjuð í prófum þegar jólin eru flogin hjá og farið að líða á janúar. Við Jens hófum jóla"afeitrun" í síðustu viku, snérum sólarhringnum við og borðuðum ekkert nema sushi, ávexti og grænmeti. Ég hélt að ég hefði ekki lyst á einum kjötbita í viðbót í marga mánuði og hvort sem þið trúið því eða ekki þá var súkkulaði mér ekki ofarlega í huga. Ég er viss um að margir aðrir hafi upplifað eitthvað svipað eftir hátíðarnar.
Afeitrunin stóð þó ekki lengi og það stefnir í að við þurfum að byrja aftur á morgun eftir mikil veisluhöld þessarar helgi. Þvílík helgi sem þetta var líka! Á föstudaginn var okkur óvænt boðið í dýrindis nautalund og meðfylgjandi hjá Degi og Írisi mömmu hans og í gær var Steinunn systir hans Jensa að gifta sig og því var fagnað á ótrúlegan hátt á Hótel Borg með þríréttuðum kvöldverði og dansiballi langt fram á nótt! Stemmningin engu lík og Steinunn ein fallegasta brúður sem sést hefur. Brúðkaup eru svo skemmtileg..
Nú tekur við BA-ritgerðarvinna, vinna, skóli og hversdagslegur matur. Eða.. í alla vega 2 vikur en þá skreppum við Jens til Danmerkur að hitta Daxa og Gunna, fara á tónleika og borða krókódílasteik á Reef´n´beef. En svo verður allt hversdagslegt.. eða já þar til hvolpsinn okkar kemur í lok janúar. Stuttu eftir það eru kosningarnar í Háskólanum og Jens verður svo 25ára (gamli kall) fljótlega eftir það! Hver segir að þetta séu leiðinlegustu mánuðir ársins??
Læt fylgja með nýjustu myndina af hvolpsa þar sem hann er steinsofandi í fanginu á Mörtu. Sæti sæti!

Skrifað January 7th, 2007 af erna í flokkum Elsta Spiderblanket