Gleðilegt sumar!

Sumarið er komið og prófin líka. Heilinn á mér neitar samt að sætta sig við það (prófin sko) og vill bara hanga á netinu og horfa á sjónvarpið.
Veðrið verður líklegast frábært næstu 3 vikurnar eða rúmlega það eins og alltaf þegar próf standa yfir.. Ég vona bara að þessi prófveðurbölvun námsmanna haldi áfram þegar ég hætti námi svo ég geti í fyrsta sinn í 15 ár eða eitthvað haldið upp á afmælið mitt (29.apríl) á réttum tíma með grillveislu og nóg af öli í stórkostlegu veðri.
Blessó

Skrifað April 19th, 2007 af erna í flokkum Elsta Spiderblanket

Veðrið

Bendi áhugasömum á að skoða hér uppi til hægri hvernig veðrið er á okkar næsta áfangastað… hahaha!
Annars er von á einhverjum breytingum á Spiderblanket áður en haldið verður upp í ferðina enda á síðan að þjóna sem alhliða upplýsingavefur fyrir þær fáu hræður sem hafa áhuga á að fylgjast með þeysireið okkar um Heimi. Þessar breytingar munu miða að því að gera vefinn léttari og þægilegri, en minna kúl.
Og já, það er gott að frétta. Spánn var þægilegur. Nú er það nám og vinna næstu mánuðina.

Skrifað April 11th, 2007 af jens í flokkum Elsta Spiderblanket