Kósýheit í skammdeginu

mandarínur2-2 Skammdegið getur verið mjög kósý. Sit hér í kertabaði og slappa af með piparkökur og ískalda mjólk og horfi með öðru auganu á New in Town sem er rómantísk gamanmynd með jólaívafi. Jens hefur það einnig náðugt í stól sem átti að vera óléttu/brjóstagjafastóll en hefur meira verið lesstóllinn hans og ranghvolfir augunum yfir sumum.. jæja, flestum atriðunum í myndinni.

Við stóðum okkur ótrúlega vel í vikunni, keyptum kommóðu í IKEA og skiptiborð sem hægt er að festa ofan á hana, ég tók saman hvaða barnaföt vantaði og gekk frá þeim sem þegar voru tilbúin í kommóðuna. kommóða-2Mamma og Pabbi eru núna að njóta lífsins í New York en ég sá til þess að þau (a.m.k. mamma) hafa ekki setið auðum höndum. Pabbi hringdi í mig eftir einn verslunarleiðangurinn og taldi líklegt að loka hafi þurft barnadeildinni í Macy´s eftir að mömmu var hleypt í hillurnar. Svipað átti sér stað í Pottery Barn. Núna klæjar mig í puttana að sjá allt góssið og klára að þvo og strauja. Ú je! Auk hetjuskapsins sem átti sér stað í Ikea þá keyptum við þrjár jólagjafir!! Bara nokkrar gjafir eftir. Enda bara 32 dagar í jól og hver veit hvenær litli lætur sjá sig. Hef einnig jólað Blásalina aðeins, sett mandarínur og piparkökur í skálar og raðað jólastöfum á vísa staði.

Ég fann það í jólagjafaleiðangrinum að ég verð voða fljótt þreytt og fæ öðru hvoru á tilfinninguna að ég sé með melónu í klofinu þegar ég labba. Sounds nice, feels even better. Annars er ég enn í miklu stuði og stóð mig m.a. að því að dansa af mikilli hörku við eldhústiltektina í dag. Þurfti auðvitað að setjast niður fljótlega fnæsandi eins og flóðhestur en ansi glæsilegt engu að síður. 35 vikur - redneck-1

bumba tæpar 36-2 Við fórum í afmælis-grímubúningapartý til Þórunnar og Ómars um síðustu helgi og var það virkilega skemmtilegt. Ég og Jens tókum skyldu okkar til þess að mæta í búningum auðvitað mjög alvarlega og fór Jens sem Arabíu-Lawrence og ég sem viðbjóðslegi redneckinn úr Deliverance með skegg, mullet, bumbuna lafandi undan bolnum og bara almennt ógeð. Ég var vægast samt viðbjóðsleg! Læt fylgja mynd af mér í búningnum og svo aðra venjulega bumbumynd af mér að síga í 36 vikurnar svo þið munið hvað ég er nú samt ágæt.. Vona að allir átti sig á því hvor er hvað.

Ekki náðist mynd af Arabíu-Jens sem er virkilega miður því Jens valdi að fara leið sem margar stúlkur fara í slíkum búningaveislum og fór sem sexý-Arabíu Lawrence. Fólst það í því að hann var ekki í neinu undir kuflinum. Stóð sexý hjúkkum og skátastúlkum vel á sporði og kvenþjóðin var gjörsamlega tryllt.. eða hefði verið það hefðu þær vitað hvernig á stæði.

Hafið það kósý!

Skrifað November 22nd, 2009 af erna í flokkum Uncategorized

Úps hvað tíminn líður..


8 vikur – Komin með smá
hormónabungu – þvílíkt ánægð!

Já já.. ég ætlaði að henda inn færslu og bumbumyndunum um síðustu helgi og nú hefur rúmlega vika flogið. Eftir að ég byrjaði að vinna finnst mér stundum eins og ég taki ekki eftir nema öðrum hverjum degi og vikurnar bara líða og líða. Frekar óhugnalegt.


34 vikur – er ekki að átta mig á þessu flykki!

Spiderblanket er ekki alveg tilbúin ennþá, við eigum enn eftir að skipta um banner, setja upp myndasvæðið og fleira auk þess sem þeir sem hafa rifjað upp ævintýri okkar í ferðalagafærslunum hafa sjálfsagt tekið eftir því að öll komment eru horfin sporlaust. Veit ekki hvort við leggjum í það að setja þau aftur inn.

Ég er núna komin rúmar 34 vikur og enn hress. Næturnar eru misgóðar og nóttin í nótt var t.d. frekar erfið en við fórum að sofa um 11:30 – 12 leytið, ég vaknaði fyrst til þess að pissa kl. 01:30 svo kl. 04:00 og svo aftur 06:30. Þá var bara hálftími í það að vekjaraklukkan myndi hringja og mér fannst þess vegna ekki taka því að sofa meira. Endaði samt með því að sofna aftur á meðan Jens var í sturtu og varð mun seinni fyrir en ég hafði ætlað mér. Sem betur fer eru ekki allar nætur svona en ég skil ekkert í þessu því ég drakk ekki mikinn vökva fyrir svefninn í gær. Og ég sem hef alltaf verið með svo góða partýblöðru. Pity.

Bumban er orðin riiiisastór og ég veit ekki alveg hvernig ég á að fara að því að stækka og teygjast margar vikur í viðbót. Litli kall var rannsakaður vel af ljósunni í síðustu mæðraskoðun og hún taldi hann vera orðinn um 10 – 12 merkur. Veit ekki hversu nákvæmar þessar mælingar þeirra eru en hún spáði því að hann yrði samt ekki meira en um 15 – 16 merkur ef ég eignaðist á réttum tíma.

Jól-1Annars er jólaundirbúningur kominn á fullt, ætla að reyna að klára allar jólagjafir, bökunarmaraþon og fleira jólatengt sem fyrst. Við Jens eigum reyndar líka eftir að undirbúa ýmislegt fyrir krílið, lappa upp á gamla rimlarúmið sem gengið hefur á milli fjölskyldumeðlima síðustu 25 árin, þvo barnaföt, kaupa kommóðu og almennt bara barnavæða Blásalina. Ég gerði nákvæmlega EKKERT á þessari viku sem leið á milli skrifa hér svo það verður auðvelt að gera betur í þessari viku. Set inn mynd af æðislega þriggja metra jólatrénu okkar í fyrra svona til að koma öllum í jólaskapið.

Geri aðra tilraun til þess að setja inn bumbumyndirnar um næstu helgi. :)

Skrifað November 12th, 2009 af erna í flokkum Uncategorized

Nýtt ævintýri í vændum

Það er langt síðan að nokkuð hefur verið skrifað hér en það hefur samt ýmislegt verið í gangi hjá okkur Jens og efst á baugi er tvímælalaust væntanlegt afkvæmi sem líklegast mun láta sjá sig eftir u.þ.b. sjö vikur eða svo. Samkvæmt 20 vikna sónar virðist nokkuð ljóst að það er drengur á leiðinni. Ég er sett 23. desember sem er ótrúlega viðeigandi þar sem við Jens erum bæði mikil jólabörn en ég er samt svona að vona að barnið komi ekki alveg kl. 18 á aðfangadagskvöld. Jens hefur mikinn metnað fyrir því að eignast fyrsta barn ársins 2010 en ég veit ekki hversu sátt ég verð við þá stöðu þegar á hólminn er komið. Er þegar orðin ansi mikil um mig og verð sennilega orðin eins og strandaður hvalur á þeim tíma. Ef eitthvað er til í því að meðgöngur séu svipaðar hjá mægðum þá get ég alveg eins vanist tilhugsuninni því mamma fór fram yfir settan dag með okkur allar systur.

Ég er súperhress ennþá en hef heyrt frá mér reyndari aðilum að þetta fari allt versnandi héðan í frá. Er farin að finna fyrir þreytu og þarf verulega að hafa fyrir því að rífa mig fram úr rúminu suma morgna þegar ég hef þurft að vakna til þess að pissa nokkrum sinnum um nóttina. Sérstaklega þegar strákurinn vaknar við næturbröltið og mótmælir með sterkum rifjaspörkum svo að það er ómögulegt að sofna aftur.

Ég ætla að reyna að vera dugleg að henda inn færslum þessar síðustu vikur fyrir fæðingu, fyrir áhugasama, ættingja og vini erlendis (sem vonandi eru líka áhugasamir) og svo auðvitað sjálfa mig.  Jens verður vonandi líka duglegur og setur öðru hverju inn texta sem líklegast varðar ekki meðgöngu og börn á nokkurn hátt.

Við fórum í bumbumyndatöku í boði yndislegu vina okkar og ætla ég að birta afraksturinn hér á síðunni fljótlega. Myndin hér að ofan er einmitt úr því safni.

Stay cool.

Skrifað November 4th, 2009 af erna í flokkum Uncategorized