2ja mánaða prins
Nú er litli maðurinn bara orðinn tveggja mánaða… tíminn líður sko hratt.
Við gerðum ekkert sérstakt í tilefni dagsins en fáum okkur eitthvað gott að borða á eftir. Við fórum í mömmuleikfimi áðan sem var afar hressandi og núna situr mamman og horfir á endursýningar af Ólympíuleikunum á Eurosport á meðan Lalli sefur svefni hinna réttlátu úti í vagni.
Við erum á mörkum þess að taka upp einhvers konar svefnrútínu en stundum þá ruglast allt og Lalli verður alveg úrvinda og yfirkeyrður með tilheyrandi gráti og hasar. Þá gengur ekkert annað en að labba aðeins með hann og vagga honum í svefn sama hvernig það passar inn í draumarútínu foreldranna.
Við getum þó ekki kvartað.. ég þori varla að skrifa um þetta ég er svo hrædd um að jinxa þessu stórkostlegu þróun sem virðist vera að eiga sér stað en slæ samt til og vona það besta. Lalli hefur nefnilega síðustu tvær vikur tekið upp á því að fara að sofa um 22.30-23.00 á kvöldin og sofa SAMFLEYTT til 04.00 eða 05.00, drekka þá aðeins og sofa svo áfram til svona 9 eða 10!! Algjör draumur! Við foreldrarnir erum samt ennþá alltaf hissa eftir hverja nótt og krossum bara puttana um að þetta haldi áfram.
Pössunin á sunnudag gekk mjög vel og Lalli virtist bara nokkuð ánægður með þetta og jafnvel að hann hafi bara alls ekki tekið eftir því að foreldrarnir hafi látið sig hverfa í nokkra tíma. Ég fékk mér aðeins of mikið af gúmmelaði í tilefni Jensaafmælis og fékk að borga fyrir það með samviskubiti í fitumælingunni daginn eftir og enn frekar næstu tvær nætur þar sem Lalli greyið virðist hafa fengið eitthvað í magann, mig grunar heita súkkulaðið og rjómann. Annars hefur Lallaskinnið verið almennt frekar úrillt á kvöldin þessa vikuna, fyrst með leiðindi í maganum + áðurnefnd svefnrútínuvandamál og svo hefur hann verið með pirring í munninum og róast bara ef við strjúkum fingri eða naghring yfir neðri góminn á honum.
Ljósan heldur að hann sé að fá tönn þó hann sé svona lítill. Amma Erna fann einmitt mína fyrstu tönn þegar ég var ekki nema 6 vikna. Við sjáum til hvernig þetta þróast.
Á meðan á þessu stendur má segja að hann sé ágætis getnaðarvörn fyrir utanaðkomandi aðila sem hitta okkur á kvöldin eins og Sokkaflokkunarklúbburinn minn fékk að kynnast á miðvikudagskvöldið þegar hann sýndi atriðið “demon baby” við mikinn fögnuð viðstaddra.
Hann er samt auðvitað sætastur og bestur og mamma hans vorkennir honum agalega að vera svona aumur í gómnum sínum og ætlar að koma svefnrútínunni í lag sem fyrst (og ekki taka brjálaðar sukktarnir um helgar).
Að þessu sinni eru ekki nýjar myndir á myndasíðunni en þær eru væntanlegar!
Pabbi 28 ára!
Í dag er pabbi gamli 28 ára! Við Lalli vöknuðum snemma, fórum í bakaríið og keyptum bakkelsi og gerðum svo heitt súkkulaði. Ég held að pabbinn hafi bara verið nokkuð ánægður með þetta. Við óskum honum aftur til hamingju!! - Lalli átti líka afmæli í gær og varð 8 vikna sem mér finnst ótrúlegt. Hann er að þroskast mikið núna, hjalar mikið og spjallar og er smátt og smátt að byrja að sýna karakterinn sinn (og spékoppana). Hann er líka orðinn mjög öflugur á maganum og ætlar nánast af stað þegar maður leggur hann niður. Hann endar stundum með því að velta sér á bakið og skilur ekkert hvernig það gerðist. Honum finnst einstaklega gaman að láta syngja fyrir sig og þá sérstaklega þegar amma Soffía syngur með honum stórverkið “klappa saman lófunum”. Þá brosir hann og skríkir. Lalli er einnig sérstaklega hrifinn af pabba sínum og vill stundum engan annan sjá, grenjar m.a.s. þegar sjálf móðir hans dirfist að aðskilja þá feðga. Við mæðginin erum þó líka mjög góðir vinir og mamman veit ekkert yndislegra en að vakna á morgnana og knúsa litla broskarlinn sinn.

Við foreldrarnir ætlum út að borða í kvöld og verður Lalli þá í pössun hjá ömmu Soffíu. Ef þörf verður á fær hann pela hjá ömmu sinni en mamman er búin að vera dugleg að mjólka sig og á smá lager af brjóstamjólk. Ég er samt smá stressuð með þetta allt saman en ljósan segir að það sé fínt fyrir okkur foreldrana að hafa það rómantískt tvö ein í örfáa tíma. Sennilega rétt hjá henni. Það mun heldur ekki væsa um hann hjá ömmu sinni.
Fullt af febrúarmyndum komnar á myndasíðuna.
Hr. Sjarmör

Getur það verið að ég eigi eftir að þurfa að slá af mér dömurnar??
kv. mamman sem er alls ekkert hlutdræg.
Lárus Jensson Blöndal
Þá hefur drengurinn fengið nafn og það ansi virðulegt! Hann virðist vera ánægður með þetta allt saman enda ekki amalegt að heita í höfuðið á afa sínum og slást í hóp með fleiri Lárusum sem allir eru hver öðrum yndislegri.
Hann er Lárus hinn fimmti ef miðað er við afa minn hann Lárus og hans niðja, Lárus hinn fjórði ef miðað er við beinan legg frá Lárusi Þórarni Björnssyni Blöndal langalangafa mínum og Lárus hinn sextándi ef miðað er við alla Lárusa Blöndal undan áðurnefndum langalangafa mínum. Það er því komin góð reynsla á nafnið í fjölskyldunni. Það er svolítið skondið að frændi Lalla og jafnaldri, Þórður Árnason, systursonur Jensa, er einmitt líka Þórður hinn sextándi í sinni ætt . Það hlýtur að teljast merkilegt.
Skírnin sjálf tókst agalega vel, amma Soffía töfraði fram þvílíku krásirnar, gestirnir voru allir mjög skemmtilegir og Lalli svaf nánast allan tímann, greinilega sáttur þetta umstang. Hann fékk alveg yndislegar gjafir og þökkum við kærlega fyrir þær.
Lalli dafnar vel og hafði í 6 vikna skoðuninni síðasta þriðjudag þyngst um 2 kg síðan í 5 daga skoðuninni á aðfangadag. Það gerir held ég að meðaltali um 360 gr. á viku. Hann er algjörlega á sinni eigin kúrfu sem vísar eiginlega bara beint uppá við og ljósmóðirin gerir svolítið grín að honum í hverri vigtun. Hann lengist samt í samræmi við þessa þyngdaraukningu og slagar nú í 60 cm. Ég er alveg hætt að heyra “æ hvað hann er lítill” og fæ frekar “er hann BARA 6 vikna??” eða svipað. Enginn trítill hér á ferð frekar en aðrir í fjölskyldum hans.
Af móðurinni er einnig allt gott að frétta en henni líkar bara ágætlega við þetta fæðingarorlof. Daginn er tekið að lengja sem mér finnst alveg yndislegt. Við Lalli byrjum í mömmuleikfimi í næstu viku og ég er mjög spennt. Fór aðeins á brettið heima hjá mömmu og pabba í liðinni viku og var nánast dauð. Jafnvel alveg dauð. Það verður áhugavert að sjá hvernig líkami minn tekur við frekari líkamsæfingum og ennþá áhugaverðara (eða réttara sagt ógnvænlegra) að fara í fitumælingu. Hmmm.
Við fjölskyldan erum orðin mjög spennt fyrir því að flytja í stærra húsnæði efir að hafa upplifað að búa með Lalla í slíkum lúxus í nokkra daga. Að hafa auka herbergi fyrir kommóðu og annað dót, stórt baðherbergi með baðkari, eldhús sem hægt er að elda í án þess að öll íbúðin virðist undirlögð af drasli… aaaaahhhhhh. Það er svo ótrúlegt hvað Lalla fylgir mikið dót. Eins lítill og hann er nú. Verst að fasteignamarkaðurinn er frosinn og ekkert gengur að selja Blásali. Fna.
Þrjú ný albúm í myndasafninu og þar á meðal myndir úr skírninni sem Offi frændi tók fyrir okkur!!
Við kveðjum að sinni!