Niðurtalningin hafin.. 22 dagar.

number22

Það er bara kominn desember allt í einu! Minn mánuður loksins! Ég er hætt að telja í vikum og byrjuð að telja í dögum, 22 dagar eftir í settan dag. Rosalegt! Jóladagatalið fær algjörlega nýja merkingu.

Annars var ég voðalega ónýt alla síðustu viku þar sem ég hélt ég væri komin með meðgöngusykursýki eftir að hafa lesið um helstu einkenni hennar í meðgöngubókinni minni. Var orðin agalega veikburða og slöpp og hafði gífurlegar áhyggjur af minni heilsu og afkvæmisins. Sannfærði ljósmóðurina mína því um að senda mig í sykurþolspróf þó ég hefði heyrt að það væri alveg hræðilega ógeðsleg lífsreynsla. Enda var þetta kannski ekkert besta upplifun lífs míns þó svo að mér hafi alls ekki fundist hún hræðilega ógeðsleg. Ég þurfti að fasta í 10 tíma og mátti hvorki fá vott né þurrt, var nokkuð sama um það þurra en ég hangi bókstaflega á krönunum þessa dagana og fékk ónotatilfinningu bara af því að hugsa um að mega ekki drekka neitt svona lengi! Ég mætti í prófið skrælþurr í munninum og með garnagaul í brjóstunum (held að maginn á mér sé þar núna) og var látin drekka svona ágætis mjólkurglas af sykurupplausn. Frekar viðbjóðslegt á fastandi maga en ég skellti þessu bara í mig á nokkrum augnablikum.  Svo fékk ég að leggjast í Lazy-Boy og slappa af í nokkra klukkutíma og teknar voru blóðprufur á klukkutíma fresti til þess að kanna hvernig líkaminn ynni úr sykrinum. Ég reyndist vera með stórkostlegt sykurþol og var útskrifuð með hæstu einkunn. Hefur liðið mjög vel síðan og Jens hefur greint mig með meðgönguímyndunarveiki á öðru stigi.37-3

37-1Ég held að bumban sé farin að síga eitthvað því ég er farin að finna fyrir henni þegar ég labba og í stað þess að líða öðru hverju eins og ég sé með melónu í klofinu þá virðist sú tilfinning ætla að verða nokkuð stöðug héðan í frá. Það á að vera mjög eðlilegt nú þegar fæðing er yfirvofandi. Set inn bumbumyndir þessarar viku, nr. 37 og fólk getur dæmt um þetta sjálft með samanburði við aðrar bumbumyndir. Svo er ég komin með töluverðan bjúg og er því orðin enn kringluleitari og get ekki verið með giftingarhringinn nema um hálsinn. Systur mínar hafa gefið mér viðurnefnið Mr. Blobby af dularfullum ástæðum.

Jens og hrúgurnar-4 lítill galli-4 Mamma og pabbi stóðu sig með stakri prýði í New York og var næstum liðið yfir mig þegar ég sá alla dýrðina sem streymdi upp úr töskunum hjá þeim. Litlar peysur, samfellur, húfur og fleira, barnapíutæki, órói, teppi og rúmföt… Þetta var ólýsanlegt. Er hálfnuð með þvott&strauj og get ekki hætt að skoða þetta litla dót. Finnst mjög óraunverulegt að eftir fáeinar vikur verði ég kannski með lítinn snúð og get klætt hann í öll þessi föt. Læt fylgja með mynd af hrúgunum sem sumir myndu segja að væri ekta tilfelli af first-time-grandparents-syndrome. Jens er mjög ánægður.

kalkúnninn-4Við Jens gefum enn ekkert eftir í félagslífinu og héldum mikla þakkargjörðarhátíð með elsku vinum okkar um síðustu helgi. Þetta er þriðja árið í röð sem við höldum hana hátíðlega og að sjálfsögðu var allt eftir bókinni, kalkúnn með fyllingu og öllu hefðbundnu meðlæti eins og sætri kartöflustöppu með sykurpúðum og svo voru pumpkin paa og pecan paa í desert. Ótrúleg máltíð og fólk lá eftir eins og hráviði um stofuna í matarkóma. Þórunn og Þorbjörg áttu mest í eldamennskunni þetta árið og þökkum við þeim kærlega fyrir okkur!

Við erum búin að setja upp myndasíðu á Spiderblanket, uppi til vinstri, en aðgangur að þeirri síðu verður takmarkaður. Leyniorðið er vinnuheitið á barninu í bumbunni Á ENSKU. Ég gleymdi víst að segja það í síðustu tilkynningu mörgum til mikillar gremju. Þeir sem ekki vita mega endilega hafa samband, hvort sem þeir gera það á samskiptasíðum, með sms eða tölvupósti. Svo ætlum við að setja upp kerfi svo fólk geti sent okkur tölvupóst þegar það fer inn á myndasíðuna.

Þar til næst..

Skrifað December 1st, 2009 af erna í flokkum Uncategorized

16 Responses to “Niðurtalningin hafin.. 22 dagar.”

  1. Ella Helga says:

    Ég verð að koma í heimsókn og taka litlu fötin út… og já, 22 dagar í að hægt sé að fylla upp í þau! Hohoo!

    *gleði*

  2. Erna says:

    Já maður.. tók ofurskipulagninguna á þetta svo þú getur skoðað eftir stærðum og litum! Ég er að verða hálfgerð Monica í þessari hreiðurgerð. :)

  3. ó mæ hvað þú ert orðin stór! Þetta er engin smá byrði að bera : )

  4. Marta says:

    Ég er farin að efast um að það hafi verið grín hjá pabba með að þú þyrftir aldrei að þvo af barninu og gætir bara hent fötunum eftir notkun.

  5. Brynja says:

    3 VIKUR ! ÉG TRÚI ÞESSU EKKI! :D

  6. Ólöf says:

    Bumban er klárlega farin að síga!

    Í ljósi þess þá giska ég á að Þorlákur verði enginn Þorlákur heldur muni hann láta sjá sig fyrr. 12. des er dagurinn segi ég :) Það er líka laugardagur og laugardagar eru jú til lukku, tilvalið að fæðast þá :)

  7. Ella says:

    Svo lengi sem þú heldur í þér þangað til ég kem heim frá Boston. Ekki fyrr en 10. des takk! Ég mun verða í stöðugu símasambandi og taka stöðuna á krumpamálum!

  8. Ingunn Anna says:

    Vá, bumban er orðin svo stór að hún fer bráðum að tala sjálf.. Ég sammála Ólöfu að hún er farin að síga.. Ég myndi giska að barnið fæðist í fyrsta lagi 22. desember!

  9. Erna says:

    Já bumban er orðin risastór. Það verður erfiðara að drösla henni um á hverjum degi. Ég væri sko alveg til í að litli kæmi bara snemma en ef hann lafir yfir jól þá má hann alveg bakast fram yfir áramót hvað sem líður skertu fæðingarorlofi. :)

    Elín: það er bara cork in it þar til 10 des. ;)

    Marta: þetta verður forvitnilegt, ætla að sjá hversu lengi ég kemst upp með að þvo ekkert.. eða ekki. ;)

  10. Guðrún Halla says:

    Ég mæli með að þú kaupir þér einhvern útbúnað sem væri einhvers konar kerra og þú gætir hvílt bumbuna á (eflaust til í Bandaríkjunum fyrir feita fólkið).

    Síðan vil ég grátbiðja ykkur að segjast ekki halda upp á þakkargjörðarhátíðina (endilega kallið þetta eitthvað annað). Það verður alltaf erfiðara og erfiðara að hlæja illkvittnislega og spyrja hvort viðkomandi sé hálfviti þegar ég er spurð að því hvort það sé haldið upp á þakkargjörðarhátíðina á Íslandi.

  11. Erna says:

    Hahaha þetta byrjaði reyndar sem mesta háð-hátíð sögunnar en svo fannst öllum þetta vera svo yndislegt að við gerðum þetta að árlegum hlut. Ég skal þó lofa þér að kalla þetta eitthvað annað ef einhver spáir frekar í þetta. :)

  12. Marta says:

    18 dagar! :O

  13. Þorbjörg says:

    Ég get ekki beeeeðiiiið!!! :) Nú má Lilli bara fara að drífa sig í heiminn eftir viku eða svo… Hlakka svo mikið til að hitta hann!!

  14. Marta says:

    Hvernig væri að sinna bloggþyrstum aðdáendum sínum??

  15. Andri úr fortíðinni says:

    Sá linkinn á síðuna þína á blogginu hennar Elínar enda er ég mikið matargat þó mér finnst flest allt sem hún gerir ógeðslega ógirnilegt… en það er önnur saga ;)

    Já þú ert sigin maður, allt að gerast! Ég mun fylgjast grannt með þér hérna -gaman væri nú að hittast samt við tækifæri og taka út bumbuna???

  16. erna says:

    Hahahaha mjög sérkennileg athugasemd að fá, að maður sé sigin. En verulega jákvætt á þessu stigi málsins! :)

    Það væri mjög gaman að hittast! Þú yrðir að koma með Sóleyjardúlluklónið þitt!! Hún er alveg æðisleg! Vonandi kem ég bara með barn en ekki bumbu.. er alveg orðið gott bara held ég. :)

Leave a Reply