Framkvæmdafíkn
Ég hef verið í aukahlutverki á þessari síðu síðan hún vaknaði úr dvalanum. Meira svona í bakgrunni því meðan Erna hefur verið að skella upp færslum eins og Hannes Smárason rásar út hef ég meira unnið bakvið tjöldin við það að setja upp myndasíðu sem virkar og að gera innsetningu færslna sem sársaukalausast ferli fyrir óléttu konuna.
Þetta er þó virkt blogg, sem er sjaldgæft enda bloggið hættur að vera vettvangur okkar töffarana (sem flestir fá útrás fyrir öll sín samskipti á Facebook eða einhverju þaðan af verra) og farið að verða vettvangur fyrir nöldurhænsn. Sem er slæmt því skemmtilega fólkið er ekkert jafn skemmtilegt á Facebook og það var á blogginu sínu. Þetta hefur líka gert það að verkum að það væri dauðadómur fyrir heiðvirt blogg eins og þetta að tala t.d. um þjóðmálin.
Hvað um það.
Eins og bent hefur verið á hér á síðunni nálgast nú hraðbyri barneignir og tilheyrandi. Hvernig maður mun taka þessu er alls óvíst en fólk þreytist þó ekki á því að segja manni í smáatriðum hvernig manni mun líða. Allir sem hafa átt börn viðast nefnilega vera óþrjótandi viskubrunnar um allt sem við kemur barneignum og þetta fólk er jafnframt búið að ákveða að manns upplifun verði nákvæmlega eins og þeirra niður í minnstu smáatriði. Þetta verður svolítið flókið þegar fleiri en einn segja frá.
Ekki það að fólk megi ekki ausa af viskubrunni sínum – oft er reyndar mjög skemmtilegt að heyra miklar hrakspár um það hvernig allt eigi eftir að breytast. Maður er mjög spenntur að vita hvernig þetta mun allt saman þróast og hvernig er að hafa nýtt fyrirbæri á heimilinu. Hrakspár hafa alltaf vakið ákveðna spennu hjá okkur Ernu, yfirleitt eru hlutirnir miklu verri en hrakspárnar segja til um eða þær eru ýktar.

Eins og fram hefur komið í færslum Ernu erum við reyndar mjög tilbúin. Ég er búinn að kynna mér orð eins og slímtappi og bumbuhópur milli þess sem ég les róandi bækur um eitthvað allt annað en börn. Ég er búinn að setja saman óteljandi IKEA húsgögn og við erum búin að fara í talsverðan fjölda verslunarferða með veglega innkaupalista og sópa að okkur hlutum sem hafa ógnvekjandi heiti eins og “nefsuga”.
Annars er þetta ágætt – við höfum sótt matsölustaði borgarinnar frekar mikið undanfarið til að undirbúa það þegar slíkt verður nánast ómögulegt næstu árin (Eða næstu 100 árin eins og mestu hrakspámennirnir vilja meina), einhvern veginn hefur svefninn þó oft sótt þannig að manni að maður hefur ekki enst mjög lengi, enda ormurinn í maganum farinn að halda fyrir okkur vöku þrátt fyrir að vera ekki kominn út. Mæli með hinum ágæta nýja veitingastað Brasilíu á Skólavörðustíg. Maturinn er mun meira spennandi en matseðillinn nær að tjá manni og á góðu verði í þokkabót. Staðurinn er algerlega sprunginn hvað starfsfólk varðar enda að sögn eiganda umferð framar öllum vonum.
Svo höfum við reyndar verið í miklum fasteignahugleiðingum. Það er ekki mikið líf í markaðnum núna – ef einhver lesenda þessara síðna vill kaupa íbúðina okkar er þeim það velkomið. Hún er býsna góð (Þetta er lýsingin sem fasteignasalinn neitaði að setja á netið). Við höfum verið að reyna að skipta, höfum augastað á nokkrum íbúðum en þetta gengur allt saman mjög hægt.

Aðgerðaáætlun Ernu
Maður lærir þó slatta á þessu – við förum, þegar nýtt hús er í boði, í mikla skoðun og skipulagningu framkvæmda sem ráðist skal í. Maður er því kominn með helstu hugtök smiða og pípara á hreint og getur farið í Húsasmiðjuna (Eða BYKO eða Múrbúðina, til að gæta jafnræðis, þó ekki Bauhaus) og haft áhuga næstum því á öllu sem þar fæst. En ekki hefur leitin reyndar enn borið árangur. Við vorum með eitt í farvatninu á dögunum og vorum búin að finna handlögnum lesendum þessarar síðu verkefni næsta árið. Því miður gekk það ekki í gegn, en hver veit nema eitthvað gerist á næstu dögum, vikum, mánuðum, árum eða áratugum! Ekkert krepputal hér.
Þegar óléttar konur eru komnar á síðasta mánuð fyllast þær framkvæmdafíkn og fara að vilja umbreyta húsinu. Það má ekkert drasl vera og ekkert skipulag eða uppsetning er nógu gott. Því er undanfarnar helgar búin að vera mjög mikil vinna í að setja upp hluti, færa hluti, snúa hlutum við, hækka og lækka hluti, taka til, þrífa, taka aftur til, lækka hluti, stilla upp hlutum og fara í sund. Þessi helgi verður ekkert öðruvísi og þessi færsla því ekki lengri.
Hahaha.. Í guðanna bænum ekki fara að rita um þjóðmálin á spiderblanket! Ugh..
Annars getið þið nú alveg farið út að borða eftir að lobster fæðist, hann mun nú eiga tvær mest overwhelming frænkur í heimi! Við Brynja munum slást um það að passa hann á meðan þið farið á Crua Thai. (eða eitthvað álíka týpískt fyrir ykkur)
Þú ert greinilega að standa þig gríðarlega vel í þessu stússi Jens, geri ráð fyrir því að þú ausir úr þínum viskubrunni (á Stein) þegar þú verður orðinn “know it all-pabbi”
Þú stendur þig í stykkinu. Annars reyndi ég að hringja í þig um daginn en þú svaraðir ekki. Eða réttara sagt, ég hringdi í þig, en þú svaraðir ekki. Þetta hljómaði eins og ég hefði ekki megnað að slá inn símanúmerið þitt. Það er rangt. Ég var þess megnugur.
Ég ætlaði að fá númerið hjá Garðari hjá þér, en fékk það uppgefið hjá föður hans. Nú er það svo að Garðar kemur til landsins 20. desember. Ég veit ekki hvernig það samræmist fyrirhuguðum stórræðum ykkar Ernu um jólaleytið, en ef vilji er til þess að hittast eitthvað þá gæti það verið þjóðráð.
Sæll Önundur. Þakka hlý orð í minn garð.
Ég þakka einnig viðleitni þína í símhringingum og þykir leitt að þú hafir ekki haft erindi sem erfiði. Ýttirðu á græna takkann þegar þú varst búinn að slá inn númerið? Eða er sá takki kannski öðruvísi á litinn á þínu símtæki?
Hvað um það, ég hefði að sjálfsögðu tekið erindi þínu fagnandi og þykist vita að jafnvel hefði verið hægt að ræða eitt eða tvö önnur mál en símanúmer Garðars.
Hvað hitt varðar staðfestist hér með að um þjóðráð er að ræða. Því tel ég að við ættum að vera í nánara sambandi fljótlega og jafnvel athuga hvort ekki finnst lausn á samskiptavanda símtækja okkar. Það kæmi jafnvel til greina að hittast oftar en einusinni ef vel liggur á þar til bærum aðilum.
PS: Marta ég sá kommentið þitt líka og þakka góð boð um pössun. Við munum því alltaf fara út að borða um hverja helgi, báða dagana, eftir að fyrirbærið fæðist. Og jafnvel virka daga líka. Takk.
Af hverju langar mig enn þá meira í mótorhjól eftir að hafa skoðað þessa framkvæmdaáætlun?
Þú færð 10 þumla upp… amk 2*5, ég er ekki með 10 stykki á lausu – með að aðstoða ófrísku konuna í stórtækum uppröðunum, tilfærslum og tiltektum! Það er ekkert jafn frústrerandi og að vilja klára og fínísera eitthvað en geta/mega það ekki.
Húrra!
Jens! úr því að áætlanir um fasteignakaup gengu ekki eftir geri ég þig hér með ábyrgan til þess að finna eitthvað nýtt að gera fyrir mig næsta árið
og það verður að innihald einhver verk með sög, sleggju og loftbor. Ps. ég er nokkuð viss um að ég notaði aðgerðaáætlun Ernu til þess að rata um neðanjarðarlestakerfi Lundúnarborgar um árið.
Haha, já, ég man eftir því hvað mér fannst allir pirrandi sem sögðu manni að þetta yrði svona eða hinsegin. Hinsvegar er margt búið að stemma og svo er margt annað sem mann hefði ekki órað fyrir og engum datt í hug að segja manni… Kannski er líka bara fínt að láta koma sér aðeins á óvart stundum.
Svo fer þetta vonandi að klárast bráðum.
Annars er ég sammála Elínu hvað varðar þrifaaðstoðarhæfileika þína. Þú stendur þig vel!
Fleira var það ekki í bili…
Góðar stundir.
Já Jens er ótrúlega duglegur í hreiðuruppfærslunum! Stefnt er á verklok fimmtudaginn næsta og eftir það er afkvæminu velkomið að koma hvenær sem því hentar! Þannig að Marta þú heldur dagskránni lausri fyrir pössun. Stefnum á Krúó sem fyrst eftir fæðingu.
Steinn við finnum einhvern vegg fyrir þig að brjóta.. jeez!
mér sýnist þú vera ansi duglegur jensi, varst líka hrikalega duglegur að baka piparkökur á sunnudaginn eða meira svona duglegur að baka piparaxir..
já það er alveg rétt hjá mörtu, endilega fariði oft út að borða eða eitthvað svo við getum passað
hlakka til að fá loksins að knúsa lobster!