Mánaðargamall drengur!

Ég trúi ekki að það sé strax liðinn mánuður frá fæðingunni! Þetta er búið að vera yndislegur tími. Nú er Jens farinn aftur að vinna og við litli kall erum heima að dúlla okkur. Hann var vigtaður í dag og heldur áfram að þyngjast vel, orðin rúm 5 kg. Mér finnst hann orðinn svoooo stór! Hann er orðinn voðalega pattaralegur og kominn með fellingar og flottheit.

Það er búið að vera stuð hjá okkur í janúar eins og vera ber. Við fórum með litla kall í myndatöku (aftur í boði okkar yndislegu vina) og stóð hann sig alveg eins og hetja, starði bara á ljósmyndarann og fannst þetta allt saman frekar skrýtið. Við fórum í fyrsta göngutúrinn með nýja flotta vagninn okkar og svo fór litli með pabba sínum í stóra baðið hjá ömmu Soffíu og afa Lalla en það þótti honum ekki lítið gaman.
Núna síðustu daga hefur litli aðeins byrjað að brosa en gerir það mjög sparlega og alls ekki eftir pöntunum. Mamman bráðnaði alveg þegar litli drengurinn hennar brosti með öllu andlitinu eftir eina gjöfina með mjólk lekandi út um munnvikin (hljómar kannski ekki vel fyrir sumum).
Ekki er minni dagskrá framundan, ýmis matarboð, EM í handbolta og svo verður litli maðurinn skírður þann 30. janúar.
Fleiri janúarmyndir eru komnar í myndaalbúmið og myndir úr umræddri myndatöku eru væntanlegar fljótlega.
Farið varlega í hálkunni!
Hann er svo fallegur, efsta myndin nær honum svo ótrúlega vel.
Vá, hrikalega er hann fallegur og mannalegur! Til hamingju með mánaðarafmælið hans! Æði að lesa bloggið, sérstaklega núna þegar maður er kominn út. Endilega haldið áfram að vera dugleg að setja inn myndir!
Takk Takk! Stórkostlegur áfangi!
Já við reynum að vera dugleg og þið vonandi líka á ykkar síðu. Mikið gagnaflæði milli landa hér.
Marta: Já mér finnst þetta svo góð mynd. Svolítið fyndið samt að hann hefur pottþétt verið að pissa á þessari mynd því hann er með smá þanda nasavængi hahaha..