Bros!

litli-204litli-202Eftir þessi fyrstu bros sem ég nefndi í síðustu færslu hafa allir ættingjar snáðans, og þá við foreldrarnir ekki undanskildir, reynt eftir mesta mætti að fá að líta augum þessa dýrð sem ungbarnabros eru. Þessu fylgir óvenjuleg beiting raddar og ýmsar geiflur og grettur. Yfirleitt virkar það bara ekki neitt og litli kall setur upp mikinn vandlætingarsvip (grínlaust) en svo brosir hann alveg óvænt þannig að skín í gómana af hinum undarlegustu hlutum t.d. ef ég kyssi hann á hökuna eða pota í nefið á honum eða af því virðist bara af engri ástæðu. Það virðist vera algjörlega random hvað veldur brosinu mér til mikillar gremju því ég vil gjarnan finna eitthvað töfraráð til að fá hann til að brosa.

Annað skrýtið og leyndardómsfullt í þessum brosmálum er þegar litli kall brosir að því virðist til einhvers sem ég ekki sé. Í þrígang hefur hann tekið þvílík bros og hjal út í loftið en augun eru mjög einbeitt á sama staðinn og mér stendur nánast ekki á sama. Annað hvort hefur barnið gífurlega ánægju af hurðinni inn í geymslu eða þá að hann sér eitthvað sem ég sé ekki. Hann yrði nú ekki sá fyrsti í ættinni til þess. Ég vona auðvitað að þetta sé eitthvað af langöfunum eða langömmunum komið hér til að vaka yfir honum.

Mörtu móðursystur tókst að ná fyrstu myndunum af smá brosi hjá litla kallinum sem sjá má hér í færslunni. Henni brá svo mikið við brosið að hún gleymdi að horfa í myndavélagatið sem útskýrir hvers vegna önnur myndin er eins og hún er.

Guð hvað þetta er nú sætt barn sem við bjuggum til!

Skrifað January 22nd, 2010 af erna í flokkum Uncategorized

3 Responses to “Bros!”

  1. Marta says:

    Hann er svo mikill æðibiti og hann verður enn yndislegri þegar hann brosir. Mússímússí!

  2. Þorbjörg says:

    Ohh, hann er svooo mikið krútt!! :) Endilega láttu mig bara vita ef ég get eitthvað hjálpað með skírnarveisluna… Skulda þér svoleiðis, minnug ótrúlega ljótu kökunnar sem við bökuðum fyrir skrírnina hans Viktors! :)

  3. Ella Helga says:

    Bara flottur! Líka mjög ánægður með drauginn – tísti alveg í honum :)

Leave a Reply