Lárus Jensson Blöndal
Þá hefur drengurinn fengið nafn og það ansi virðulegt! Hann virðist vera ánægður með þetta allt saman enda ekki amalegt að heita í höfuðið á afa sínum og slást í hóp með fleiri Lárusum sem allir eru hver öðrum yndislegri.
Hann er Lárus hinn fimmti ef miðað er við afa minn hann Lárus og hans niðja, Lárus hinn fjórði ef miðað er við beinan legg frá Lárusi Þórarni Björnssyni Blöndal langalangafa mínum og Lárus hinn sextándi ef miðað er við alla Lárusa Blöndal undan áðurnefndum langalangafa mínum. Það er því komin góð reynsla á nafnið í fjölskyldunni. Það er svolítið skondið að frændi Lalla og jafnaldri, Þórður Árnason, systursonur Jensa, er einmitt líka Þórður hinn sextándi í sinni ætt . Það hlýtur að teljast merkilegt.
Skírnin sjálf tókst agalega vel, amma Soffía töfraði fram þvílíku krásirnar, gestirnir voru allir mjög skemmtilegir og Lalli svaf nánast allan tímann, greinilega sáttur þetta umstang. Hann fékk alveg yndislegar gjafir og þökkum við kærlega fyrir þær.
Lalli dafnar vel og hafði í 6 vikna skoðuninni síðasta þriðjudag þyngst um 2 kg síðan í 5 daga skoðuninni á aðfangadag. Það gerir held ég að meðaltali um 360 gr. á viku. Hann er algjörlega á sinni eigin kúrfu sem vísar eiginlega bara beint uppá við og ljósmóðirin gerir svolítið grín að honum í hverri vigtun. Hann lengist samt í samræmi við þessa þyngdaraukningu og slagar nú í 60 cm. Ég er alveg hætt að heyra “æ hvað hann er lítill” og fæ frekar “er hann BARA 6 vikna??” eða svipað. Enginn trítill hér á ferð frekar en aðrir í fjölskyldum hans.
Af móðurinni er einnig allt gott að frétta en henni líkar bara ágætlega við þetta fæðingarorlof. Daginn er tekið að lengja sem mér finnst alveg yndislegt. Við Lalli byrjum í mömmuleikfimi í næstu viku og ég er mjög spennt. Fór aðeins á brettið heima hjá mömmu og pabba í liðinni viku og var nánast dauð. Jafnvel alveg dauð. Það verður áhugavert að sjá hvernig líkami minn tekur við frekari líkamsæfingum og ennþá áhugaverðara (eða réttara sagt ógnvænlegra) að fara í fitumælingu. Hmmm.
Við fjölskyldan erum orðin mjög spennt fyrir því að flytja í stærra húsnæði efir að hafa upplifað að búa með Lalla í slíkum lúxus í nokkra daga. Að hafa auka herbergi fyrir kommóðu og annað dót, stórt baðherbergi með baðkari, eldhús sem hægt er að elda í án þess að öll íbúðin virðist undirlögð af drasli… aaaaahhhhhh. Það er svo ótrúlegt hvað Lalla fylgir mikið dót. Eins lítill og hann er nú. Verst að fasteignamarkaðurinn er frosinn og ekkert gengur að selja Blásali. Fna.
Þrjú ný albúm í myndasafninu og þar á meðal myndir úr skírninni sem Offi frændi tók fyrir okkur!!
Við kveðjum að sinni!
Svo gaman að það sé komin ný færsla, er alveg búin að leggja síðuna ykkar í einelti, alltaf tékkandi hvort það sé búið að skrifa um skírnina! Óska ykkur nú bara aftur innilega til hamingju með þetta flotta nafn…við ættum kannski að athuga hvort það sé hægt að bæta “sextándi” inn sem millinafni á strákana
Þá fyrst væri maður orðinn svaðalega virðulegur!
Sendi annars knús á ykkur og vona að þið hafið það gott með hlunknum ykkar! Hann á vonandi von á nýrri fatasendingu í byrjun mars með ömmu Þorbjörgu, a.m.k. er Þórður að vinna í að vaxa upp úr stærð 68.
Gaman að kúturinn skuli loksins vera kominn með nafn. Ekki spillir fyrir hvað það er íhaldsamt
Hahaha Steinunn þetta er mjög góð hugmynd! Ég skal tala við mannanafnanefnd! Hrikalega gott að fá þessar fatasendingar! Og ekki hafa áhyggjur því ég merki allt með S-i sem þú hefur ekki þegar merkt svo þetta fari nú ekki allt í rugl hjá okkur!
Takk Guðrún! Já þetta gæti nú varla verið íhaldssamara