Pabbi 28 ára!
Í dag er pabbi gamli 28 ára! Við Lalli vöknuðum snemma, fórum í bakaríið og keyptum bakkelsi og gerðum svo heitt súkkulaði. Ég held að pabbinn hafi bara verið nokkuð ánægður með þetta. Við óskum honum aftur til hamingju!! - Lalli átti líka afmæli í gær og varð 8 vikna sem mér finnst ótrúlegt. Hann er að þroskast mikið núna, hjalar mikið og spjallar og er smátt og smátt að byrja að sýna karakterinn sinn (og spékoppana). Hann er líka orðinn mjög öflugur á maganum og ætlar nánast af stað þegar maður leggur hann niður. Hann endar stundum með því að velta sér á bakið og skilur ekkert hvernig það gerðist. Honum finnst einstaklega gaman að láta syngja fyrir sig og þá sérstaklega þegar amma Soffía syngur með honum stórverkið “klappa saman lófunum”. Þá brosir hann og skríkir. Lalli er einnig sérstaklega hrifinn af pabba sínum og vill stundum engan annan sjá, grenjar m.a.s. þegar sjálf móðir hans dirfist að aðskilja þá feðga. Við mæðginin erum þó líka mjög góðir vinir og mamman veit ekkert yndislegra en að vakna á morgnana og knúsa litla broskarlinn sinn.

Við foreldrarnir ætlum út að borða í kvöld og verður Lalli þá í pössun hjá ömmu Soffíu. Ef þörf verður á fær hann pela hjá ömmu sinni en mamman er búin að vera dugleg að mjólka sig og á smá lager af brjóstamjólk. Ég er samt smá stressuð með þetta allt saman en ljósan segir að það sé fínt fyrir okkur foreldrana að hafa það rómantískt tvö ein í örfáa tíma. Sennilega rétt hjá henni. Það mun heldur ekki væsa um hann hjá ömmu sinni.
Fullt af febrúarmyndum komnar á myndasíðuna.
Kæri 28 ára einstaklingur og frú!
Alltaf gaman að lesa bloggið og njóta lífsins í gegnum ykkur
Hljómar sem hin besti afmælisdagur og gott að heyra að Lallinn er pössunarvænn drengur. Algjört lykilatriði!
Já það er ótrúlega næs að geta sett þessi yndi í pössun öðru hverju!