2ja mánaða prins
Nú er litli maðurinn bara orðinn tveggja mánaða… tíminn líður sko hratt.
Við gerðum ekkert sérstakt í tilefni dagsins en fáum okkur eitthvað gott að borða á eftir. Við fórum í mömmuleikfimi áðan sem var afar hressandi og núna situr mamman og horfir á endursýningar af Ólympíuleikunum á Eurosport á meðan Lalli sefur svefni hinna réttlátu úti í vagni.
Við erum á mörkum þess að taka upp einhvers konar svefnrútínu en stundum þá ruglast allt og Lalli verður alveg úrvinda og yfirkeyrður með tilheyrandi gráti og hasar. Þá gengur ekkert annað en að labba aðeins með hann og vagga honum í svefn sama hvernig það passar inn í draumarútínu foreldranna.
Við getum þó ekki kvartað.. ég þori varla að skrifa um þetta ég er svo hrædd um að jinxa þessu stórkostlegu þróun sem virðist vera að eiga sér stað en slæ samt til og vona það besta. Lalli hefur nefnilega síðustu tvær vikur tekið upp á því að fara að sofa um 22.30-23.00 á kvöldin og sofa SAMFLEYTT til 04.00 eða 05.00, drekka þá aðeins og sofa svo áfram til svona 9 eða 10!! Algjör draumur! Við foreldrarnir erum samt ennþá alltaf hissa eftir hverja nótt og krossum bara puttana um að þetta haldi áfram.
Pössunin á sunnudag gekk mjög vel og Lalli virtist bara nokkuð ánægður með þetta og jafnvel að hann hafi bara alls ekki tekið eftir því að foreldrarnir hafi látið sig hverfa í nokkra tíma. Ég fékk mér aðeins of mikið af gúmmelaði í tilefni Jensaafmælis og fékk að borga fyrir það með samviskubiti í fitumælingunni daginn eftir og enn frekar næstu tvær nætur þar sem Lalli greyið virðist hafa fengið eitthvað í magann, mig grunar heita súkkulaðið og rjómann. Annars hefur Lallaskinnið verið almennt frekar úrillt á kvöldin þessa vikuna, fyrst með leiðindi í maganum + áðurnefnd svefnrútínuvandamál og svo hefur hann verið með pirring í munninum og róast bara ef við strjúkum fingri eða naghring yfir neðri góminn á honum.
Ljósan heldur að hann sé að fá tönn þó hann sé svona lítill. Amma Erna fann einmitt mína fyrstu tönn þegar ég var ekki nema 6 vikna. Við sjáum til hvernig þetta þróast.
Á meðan á þessu stendur má segja að hann sé ágætis getnaðarvörn fyrir utanaðkomandi aðila sem hitta okkur á kvöldin eins og Sokkaflokkunarklúbburinn minn fékk að kynnast á miðvikudagskvöldið þegar hann sýndi atriðið “demon baby” við mikinn fögnuð viðstaddra.
Hann er samt auðvitað sætastur og bestur og mamma hans vorkennir honum agalega að vera svona aumur í gómnum sínum og ætlar að koma svefnrútínunni í lag sem fyrst (og ekki taka brjálaðar sukktarnir um helgar).
Að þessu sinni eru ekki nýjar myndir á myndasíðunni en þær eru væntanlegar!
Ég verð að segja að mér finnst litli Lalli ótrúlega líkur nafna sínum og afa. Veit ekki hvort það er bara ég.
Demon baby eða ekki, you gotta love him!
Leiðinlegt að hafa misst af atriðinu “Demon baby”
Það hefði verið gaman að sjá leikræna tilburði Lalla.
Hann er ekkert smá sætur! Okkur hlakkar mikið til að sjá hann aftur þegar vð komum til baka.
Vonandi heldur hann áfram að sofa svona vel á nóttunni.
Kossar og knús frá Frakklandi
Una: Nei þú ert ekki sú eina, Egill benti einmitt á þetta í færslu hér að neðan og þetta virðist vera frekar viðtekin skoðun.
Stundum bara skondið hvað þeir eru líkir Lallarnir þó svo að Jens eigi mikið í drengnum líka.
Marta: Bíddu þar til þú upplifir Demon baby.. then lets talk!
Nei nei smá djók.. Hann er alltaf uppáhalds!
Sigrún: Já þetta var stórkostlegt!
Við hlökkum líka bara almennt til að fá þig og ykkur og Emmukrúttið til baka! Dittó með næturnar maður *krossa putta*
Eitt sem að mér dettur í hug við pirringinum, ertu með svona ömmustól sem að víbrar. Það virkaði alveg ótrúlega vel á VAV á sínum tíma, þegar hún fékk eitthvað svona pirringsskot
Annars bara gangi ykkur áfram vel með draumaprinsinn, hann er ótrúlega sætr!
Þeinkjú Dossa! Við höfum einmitt sett hann í slíkan eðalgrip á verstu stundunum og þegar okkur foreldrunum langar að borða eða eitthvað álíka, virkar mjööög vel!
Heyrðu nú mig Erna! Ef krúttrassinn var ‘demon baby’ í Sokkaflokkunarklúbb um daginn þá eruð þið hjónin í góðum málum!
Hann var eiginlega bara hrottalega sætur og yndislegur þó svo hann þurfti aðeins að kvarta og kveina!