Skallamamman

Mynd-545Jæja, þá erum við komin aftur frá Spáni og við Lárus eyðum aftur mestum okkar tíma ein í stað þess að vera alltaf umvafin fjölskyldu og stuði. Erum samt bara hamingjusöm og ég hef innleitt tímabil miskunnarleysis í svefnrútínustillingum og kennslustundum í því að sofna sjálfur. Lárus nældi sér í smá kvef á Spáni og getur ekki farið út í vagninn þessa dagana og ég hlakka ótrúlega til þegar hann nær sér og við getum farið í göngutúra í vorinu. Mmmm. Er farin að iða öll af spenningi fyrir sumrinu og öllu sem fylgir, graslykt, birtu og ekki síst – sumarfríi Jensa, annarra fjölskyldumeðlima og vina!! Pant fara í útilegur og sumarbústaði! JEI!

Mynd-550Það var hrikalega yndislegt í fyrsta fjölskyldufríinu okkar og sjaldan hefur verið innbyrt eins mikið magn af parmaskinku, skelfisk og samlokuísum (já samlokuísum). Lárus naut sín bara í botn enda með nóg af þjónustuliði sem slóst um að knúsa hann og uppfylla allar hans kröfur á methraða. Hann virðist sem betur fer átta sig á því að þjónustustigið hér heima með mér einni er ekki eins hátt og hefur aftur snúið sér að því að dunda sér á leikteppinu og festa sig í dularfullum stellingum í öfgafullum tilraunum til þess að velta sér yfir á magann (það hefur bara tekist þrisvar enn sem komið er).

Mynd-548Við lentum í ýmsum ævintýrum í fyrstu utanlandsferð Lárusar. Flugferðirnar gengu svakalega vel og Jens hefur að sjálfsögðu skráð þær samviskusamlega í gagnagrunn sinn sem heldur utan um öll flug fjölskyldunnar. Við hófum ferðina á því að kaupa geggjaða ferðakerru/bílstól á 70% afslætti af þeirri ástæðu einni að hún er appelsínugul. Tsk tsk.. við erum ekki haldin slíkum litafordómum og erum ekkert smá ánægð með þessi kjarakaup. Veðrið var æðislegt allan tímann og það var yndislegt að slappa af, flatmaga með bók í sólinni og njóta allra þessara aukahanda sem voru svo vænar að hjálpa til með Lallaskinnið.

Mynd-549Það var þó ekki bara leti í gangi –  Afi Lalli og Stefán Einar þræluðu sér út í golfinu, við foreldrarnir fórum með Brynju og Stefáni í skemmtigarðinn Terra Mitica á meðan afi og amma pössuðu Lalla, litla fjölskyldan prufukeyrði kerruna og skellti sér á markaðinn einn morguninn (var bæði fyrsta markaðs- og lestarferð Lárusar), öll stórfjölskyldan fór niður í bæ að sjá göngurnar á föstudaginn langa og út að borða í tvö önnur skipti og Lalli stóð sig eins og hetja, sofnaði bara á sínum venjulega tíma í kerrunni og vaknaði ekkert fyrr en við vorum komin heim og missti s.s. af öllu fjörinu. Kannski ekki öllu fjörinu því það var svo mikið stuð á daginn að litli kallinn skellihló í fyrsta skipti og er það pabbinn sem átti heiðurinn af því þó svo að Lárus hafi síðan hlegið mikið af mömmu sinni. Ég er alveg heilluð af þessu hljóði og er svo ánægð að hafa loksins fundið einhvern sem áttar sig á því hversu geypilega fyndin ég er!

gollumEn svo ég komi nú inn á titil færslunnar þá virðist sem ég sé að verða sköllótt. Mér skilst að þetta sé algengur fylgikvilli brjóstagjafar en það gjörsamlega hrynur af mér hárið. Það er því ekki gott ástandið í hár- og naglamálum hjá mér en í stressi fyrstu vikna í lífi Lárusar byrjaði ég aftur að naga neglurnar eftir rúmlega tveggja ára hlé. Með þessu áframhaldi + það að Lárus er enn að vakna á tveggja tíma fresti allar nætur –  enda ég eins og Gollum. En við sjáum hvað verður með þetta svefnátak sem nú er í vændum hjá okkur Lárusi og svo hlýtur að verða geggjað veður allan prófatímann eins og ávallt þegar ég hef verið í prófum svo ég get verið að tana á Austurvelli og svona kósý.

Búið í bili!

Mynd-546

Skrifað April 14th, 2010 af erna í flokkum Uncategorized

4 Responses to “Skallamamman”

  1. Guðrún Halla says:

    Gaman að ferðin hafi gengið vel. Mér heyrist að þið mæðginin ættuð bara að skella ykkur til Kaliforníu og bíða íslenska sumarsins þar :) Ég bið hér með um sérstaka færslu tileinkaða fluggagnagrunninum. Ekki hægt að skella fram svona áhugaverðu heimilisbókhaldi án þess að skýra tilgang þess nánar!

  2. Erna says:

    Hahahaha Guðrún þú veist ekki hvað þú ert að biðja um!! Jens mun örugglega verða við þessu með glöööðu geði. :)

    Væri sko alveg til í að koma til Kalí í prep-sumar úff!!

  3. brynja says:

    like á samlokuísinn!
    mér finnst þú nú bara ansi lík gollum haha
    knús á lalla :D

  4. Erna says:

    Takk Brynja! Ég tek þessu sem þér finnist ég hafa grennst.

    ;)

Leave a Reply