Fjögurra mánaða
Þá eru fjórir mánuðir liðnir frá fæðingu Lárusar. Hann er alveg ótrúlega skemmtilegur og duglegur, hlær og hjalar, galar og skríkir allan daginn, grípur í allt sem hann sér og reynir að setja það upp í sig og í tilefni dagsins ákvað hann að fullkomna veltu sína frá baki yfir á maga og er ekki lítið ánægður með sig. Hann er líka byrjaður að sýna mikil tilþrif á maganum, fer upp á hnén og sparkar sér aðeins áfram en endar yfirleitt með því að annað hvort detta á hliðina eða leka aftur á magann. Mikið í gangi semsagt og greinilegt að Lalla liggur á að skoða heiminn.
Lárus fer ekki í skoðun fyrr en eftir tvær vikur svo að nýjustu mælingar liggja ekki fyrir. Þeim verður að sjálfsögðu gerð samstundis skil.
Fyrir utan dagleg framför Lárusar hefur heimilislífið hér verið frekar tíðindalaust og við fjölskyldan höfum fylgst agndofa með myndum af gosinu í Eyjafjallajökli og afleiðingum þess hér á Íslandi og erlendis. Við stefnum á að fara til Akureyrar um næstu helgi með ömmu Sólrúnu og afa Þórði, fá okkur Brynjuís og slappa af. Það ætti að vera notalegt!
Nýjar myndir fljótlega!
Guð minn góður, þetta barn er bara of mikið krútt!!
Verðum að fara að hittast bráðum aftur, Viktor er alltaf að tala um Lárus og kallar öll lítil börn Lárus!
Knús til ykkar allra!!
Hahaha.. Viktor er svo mikið ofurrassgat! Já verðum að hittast sem allra fyrst!