Í sól og sumaryl

… eða við erum svona að vonast eftir svoleiðis veðri næstu daga! Hvað á þetta að þýða að hafa bara leiðindaveður þegar við Lalli viljum vera í göngutúrum og útihangsi. Fussumsvei.

Mynd-589Það er reyndar búið að vera frekar milt veður undanfarið og ég er alveg rugluð hvernig ég eigi að klæða Lalla í vagninn. Einn daginn segir hitamælirinn 5 gráður og ég skelli skinninu í ull og inn í svefnpokann sinn en þegar ég kem út að kíkja á barnið segir hitamælirinn 16 gráður og Lalli auðvitað kófsveittur. Þessi Emmaljunga vagn er ólíkindatól nefnilega og ég held að það sé ofn í botninum á honum. Jens stakk hitamæli undir vagnhlífina, fyrir ofan svefnpokann og þar mældist eitt sinn 33 gráðu hiti (ekki í sól)!  Því hef ég verið að fækka fötum (á Lalla) á hverjum degi og hef enn ekki náð réttu hitastigi því í gær, einungis með sumarsængina sína, létta húfu, sokkabuxum og feitri peysu var hann enn og aftur kófsveittur og ómögulegur. Hann fílaði þetta miklu betur þegar það var frost og kósýheit og hann leit út eins og dúnlirfa. Hér er á ferðinni enn eitt stórkostlegt og alls ekki útblásið vandamál sem ég, hin heimavinnandi húsmóðir, mun glíma við á næstunni!

Mynd-646Annars var Lalli í ástandsskoðun í morgun og mældist um 7900 gr. og 67,5 cm. Almennt mjög góður árangur og ljósan virtist ánægð með þetta allt saman. Á eftir okkur var einn tveggja vikna strumpur og ég bara trúði því ekki hvað hann var lítill. Samt var hann víst bara svipaður og Lalli var. Maður er fljótur að gleyma og mér finnst litli gaurinn minn ennþá svo lítill. Foreldrar þess nýja héldu að Lalli væri tveggja ára sem sýnir líka hversu stærðarringlaður maður er þegar ungarnir eru nýjir. Man þegar Lalli var glænýr og við hittum Þórð frænda hans sem er tveimur og hálfum mánuði eldri, manni fannst eiginlega eins og Þórði gæti þessvegna fljótlega farið að vaxa skegg svo fullorðinslegur væri hann (en svo var hann auðvitað bara algjört pons).

Mynd-651Það fer að koma að stórviðburði í lífi Lárusar en við ætlum að gefa honum grautarsmakk á næstu dögum. Það verður það fyrsta sem hann borðar annað en brjóstamjólk (og d-dropana) og ekki laust við að mamman sé hálf meyr yfir þessu. Hann er að þyngjast mjög vel ennþá en er farinn að sýna svo svakalegan áhuga á mat að ég hef bara ekki samvisku til þess að draga þetta lengur. Þrátt fyrir meyrnina er ég líka frekar spennt og hlakka til að leyfa honum að smakka alls konar gúmmelaði og finna hvað honum finnst gott og vont. Ég er með háleitar hugmyndir um það að gera allan barnamatinn sjálf en óttast svolítið að þetta sé svona eins og þær hugmyndir sem ég hafði yfirleitt í byrjun hvers skólaárs þar sem ég var með tugi yfirstrikunarpenna, stílabækur og merkimiða, tilbúin að skipuleggja mig í gegnum námið en aldrei varði þetta lengur en svona viku. Ég vona nú að ég sýni aðeins meiri metnað í tengslum við Lárus og hans næringu en ég veit svosem ekki hversu mikið betra svona heimabrugg er við þann mat sem seldur er í búðum. Lárus sjálfur virðist vera frekar rólegur yfir þessu.

Mynd-561Við vorum að setja inn fullt af aprílmyndum af ýmsum viðburðum eins og t.d.  þegar Lalli hitti frændur sína þá Lúkas og Tómas, þegar Lalli velti sér almennilega í fyrsta sinn, þegar Lalli hitti langömmu Gauju og mynd var tekin af fjórum ættliðum, þegar við fórum norður með afa Þórði og ömmu Sólrúnu og skutluðum Elínu Ástralíufara á Akureyri International Airport í leiðinni, þegar Lalli hitti nokkur önnur kríli á skemmtilegum mömmuhittingi og þegar móðirin varð 26 ára. Semsagt stórkostleg skemmtun.

Þar til næst…

Skrifað May 5th, 2010 af erna í flokkum Uncategorized

5 Responses to “Í sól og sumaryl”

  1. Marta says:

    Hann er yndislegasta barn í heimi, það verður ekki af honum skafið! Ég hlakka líka til að gefa honum alls konar gúmmelaði, maaaan I’m gonna spoil that boy! :D

  2. Steinunn says:

    Hæhó!
    Þórður ofvaxni og fjölskylda hans vilja þakka fyrir góð innlegg og æðislegar myndir! Hlökkum til að heyra hvernig gengur í fæðuævintýri Lalla :) Vona innilega að hann sýni hressilegri matartakta en frændsystkini hans sem hafa bara viljað graut og krukkugulrætur á þessum aldri. Allt annað er bara drasl og á heima í ruslinu….

  3. Erna says:

    Marta: Já hann er ótrúlega frábær gaur! ;) Ég held að hann eigi eftir að fá allt sem honum dettur í hug frá sínum veiklunduðu (gagnvart honum þá) fjölskyldumeðlimum.. ;)

    Steinunn: Já það verður gaman að sjá svona þegar málin fara að þróast! Kannski verður hann eins og pabbi sinn og borðar allt sem sett er fyrir framan hann (og meira til). ;)

  4. Andri says:

    Hæ fjölskylda og takk fyrir kommentið á síðunni hjá minni. Eruð þið búin að kaupa??? Ég var búinn að frétta um íbúðamálin frá mömmu þinni og pabba og Önnu Syphilis -hef mína heimildarmenn ;)

  5. Erna says:

    Hahaha.. já sama hér, maður heyrir alltaf útundan sér hvað er að gerast! ;) Jú við erum búin að finna gordjöss íbúð á Hofsvallagötunni og skrifum vonandi undir kaupsamning í næstu viku! :) Ekkert smá spennó!

Leave a Reply