Fyrstu veikindin og loksins gott veður
Lalli litli varð í fyrsta sinn veikur í síðustu viku og það var frekar erfitt fyrir mömmuhjartað. Hann fékk hita (hæst 38,5 gráður) en var ekki með neitt kvef að því virtist. Við fórum til læknis til að útiloka eyrnabólgu og svoleiðis en ekkert sérstakt fannst annað en almennur slappleiki og hiti. Hann var svakalega lítill í sér og ég gat nánast ekkert lagt hann frá mér og við kúrðum bara saman og reyndum að hafa það notalegt. Það sem gerði þetta enn erfiðara var að hann neitaði að drekka langtímum saman og móðirinn svaf ekki fyrir áhyggjum og stressi og hafði áhyggjur eftir smávegis netflakk að drengurinn væri kominn í svokallað brjóstaverkfall (það er í alvörunni til..). Líf mitt snérist þannig í nokkra daga um það að reyna að troða vökva og næringu í barnið án þess þó að hræða hann frá brjóstagjöfinni og gekk það best með því að gefa honum þegar hann var hálfsofandi eða þegar ég kippti duddunni út með ógnarhraða og setti brjóstið upp í hann. Hann jafnaði sig þó fljótlega, hefur sæst við brjóstin á mér og er aftur orðinn það ljúfa hressa barn sem við þekkjum.
Vegna þessa vesens biðum við með að gefa Lalla graut eins og staðið hafði til og var það ekki fyrr en í gær sem hann fékk að smakka á stórkostlegum lífrænum hrísmjölsgraut.
Hann vissi fyrst ekki alveg hvað honum átti að finnast um þetta gums en var að lokum held ég bara nokkuð ánægður. Hann fékk síðan örlítið þykkari og stærri skammt í dag og þeirri þróun verður haldið áfram næstu daga og vikur.
Við erum annars gífurlega ánægð með veður síðustu daga og höfum nýtt okkur það óspart í gönguferðir, útiborðelsi, grill og fleira viðeigandi. Ótrúlegt hvað maður verður glaður í sálinni þegar það er svona gott veður!
Það koma nýjar myndir inn í þessari viku!
Nú er ég farin að sakna litla ömmustráks heldur mikið – og ekki ein mynd komin á vefinn!
Heyri að hann er orðinn duglegur að hreyfa sig og borða allskonar mat! Rosalega gerist þetta hratt!
Sakna ykkar líka. Knús frá ömmu í Garðabæ