Meira Króatíustuð

030Áfram höldum við ferð okkar niður Dalmatíuströndina sem hefur enn sem komið er glatt okkur með hverri náttúru/menningarperlunni á eftir annarri. Við reyndar tókum smá aukatúr upp í fjöllin, í þjóðgarðinn í Plitvice, að skoða stórkostlegu vötnin sem þar leynast og eru á heimsminjaskrá UNESCO. Þau hafa myndast þegar litlir lækir sem renna undan fjöllunum komast ekki lengra vegna gróðurs og eru gífurlega falleg þar sem þau hafa safnast saman á milli trjánna. Þau eru í ýmsum litum, skærgræn, himinblá eða jafnvel alveg grá. Við þrömmuðum þjóðgarðinn þveran og endilangan og þar sem göngustígarnir voru mjög holóttir og illkerrufærir hékk Lalli utaná pabba sínum í burðarpoka og fannst það alveg stórkostlegt. Við gistum þar á mjög einföldum en krúttlegum gististað en okkur finnst allt hér í Króatíu vera rekið af miklum myndarskap. Fólkið er sífellt að vesenast og betrumbæta eitthvað, þrífa, slá eða mála og það er gaman að jafnvel á ódýrustu gististöðunum hafa eigendurnir verið mjög metnaðarfullir t.d. hvað varðar morgunmat og framreitt nýkreistan appelsínusafa, nýbakað brauð og fleira sem við bjuggumst alls ekki við.

126Frá Plitvice fórum við til borgarinnar Zadar en þar gistum við á ótrúlega góðu hóteli við ströndina sem hafði útsýni yfir gamla bæinn. Herbergið okkar var hálfgerð íbúð með eldhúsi og stofu sem hentaði sérstaklega vel þar sem þá gátum við hallað inn til Lárusar sem svaf inn í svefnherbergi og hækkað í Eurovision/kosningasjónvarpinu  frammi í stofu. Við fjölskyldan eyddum þó mestum tíma á röltinu um gamla bæinn í Zadar sem einmitt er allur á áðurnefndri heimsminjaskrá UNESCO og er vel að þeim heiðri kominn með sínum þröngu götum, fallegu kirkjum og rómversku minjum. Við sjávarbakkann er svo að finna sjávarorgel, þ.e. pípur sem liggja frá sjónum og upp í gegnum göngugötuna við sjóinn. Úr þessu koma mjög sérstök en falleg hljóð þegar öldurnar fylla pípurnar og fólk safnast saman, sérstaklega við sólsetur, til þess að hlusta. Ótrúlega dulúðug stemmning. Við Jens viljum endilega fá svona orgel í Reykjavíkurhöfn!

084Næst á dagskrá var litli bærinn Trogir sem er í rúmlega 1 og ½ tíma akstursfjarlægð frá Zadar. Við höfðum sem áður mestan áhuga á því að vera í gamla bænum sem er þar sérstaklega fallegur og með glæsilegri kirkju, mun glæsilegri og stærri en búast má við í svona litlum bæ. Jens hafði mikinn áhuga á kirkju þessari og var glaður þegar við rétt náðum inn fyrir lokun til þess að skoða hana betur.  Skömmu síðar gengur til okkar maður og segist þurfa að loka kirkjunni en okkur sé velkomið að vera yfir nótt. Við afþökkuðum gott boð en áttum samtal við manninn sem reyndist vera sjálfur presturinn. 128 Hann sagði okkur frá því helsta sem kirkjunni tengdist og sýndi okkur m.a. risastóru lyklana sem ganga að byggingunni en þar sem hún er á minjagripaskrá þá má engu við hana breyta án samþykkis og því eru enn notaðar sömu lyklaskrárnar og notaðar hafa verið öldum saman. Presturinn druslar lyklunum um í stórri þungri tösku. Það merkilega var hins vegar að hann sagði okkur frá verndardýrling kirkjunnar en hann heitir heilagur Lárus (Lovre á króatísku, Lawrence á ensku). Við vorum mjög ánægð með þetta. Trogir er vinsæll staður (eins og margir aðrir í Króatíu) hjá skútusiglingafólki og þar sem hótelið okkar var staðsett alveg í smábátahöfninni, kynntumst við þessu sporti aðeins betur og erum sko meira en til í að prófa!

120Við erum alltaf að verða betri og betri að vesenast með Lárus og njótum ferðarinnar meira en okkur hefði órað fyrir. Reyndar má nú í hreinskilni segja að Lárus sé að vesenast með okkur þar sem öll skipulagning og … bara allt, fer eftir Lárusi, hans rútínu og þægindum. Hann sefur ennþá 2 góða dúra + einn stuttan á dag og erum við frekar bundin við þá þar sem lífið verður ansi erfitt með syfjað og pirrað ungabarn. Við héldum fyrst að best væri að taka göngutúra þegar Lárus væri sofandi en komumst fljótlega að því að það er miklu skemmtilegra að hafa hann vakandi í göngutúrunum og leyfa honum að sofa í sem mestum friði og ró  (t.d. á meðan foreldrarnir borða hádegismat).  Í fyrsta lagi er alltaf hætta á því að eitthvað/einhver dirfist að rjúfa svefn hans (eins og t.d. þegar við vorum nýbúin að rúlla honum í svefn á torgi nokkru þegar kirkjuklukkurnar hringdu inn hádegið með gífurlegum hávaða eða þegar maðurinn sem stóð við hliðina á mér fyrir utan hraðbankann byrjaði öllum að óvörum að spila á sekkjapípu). 073 Í öðru og mun mikilvægara lagi er Lárus mikil suga á skemmtilegt fólk sem við hefðum aldrei annars talað við.  Hann er hinn fullkomni ísbrjótur fyrir allskonar fólk sem líkar vel við börn, er forvitið um okkur eða er jafnvel að flækjast með börn sjálft. T.d. aðeins á rúmlega klukkutíma ferjuferð í gær tókst okkur að ræða við þrenn eldri hjón (eitt frá Slóveníu, annað frá Króatíu og það þriðja frá Japan), eitt ungt par frá Ítalíu, 2 bandarískar konur og nokkra skuggalega menn af óþekktu þjóðerni með ógnvænleg húðflúr á höfðum sér. Öll samtölin hófust með athugasemdum um Lárus (auðvitað um það hversu ótrúlega sætur hann væri (sem gerði skuggalegu mennina einnig töluvert minna skuggalega)) og þróuðust þaðan í hinar ýmsu áttir. Mjög skemmtilegt.  075Lárus virðist dafna vel á ferðalaginu og er nánast undantekningarlaust glaður og hress. Hann hefur tekið upp á ýmsu nýju á síðustu vikum. Hann myndast nú við að sitja þó það gangi svona misjafnlega , hann frussar út um allt (sérstaklega gaman þegar við erum að gefa honum graut), vill standa allsstaðar og upp við allt og er að verða brjálaður á því að komast ekki áfram með sinni stórkostlegu skriðtækni sem felst í því að lyfta rassinum upp í loftið í gríð og erg. Okkur finnst hann agalega skemmtilegur.

Nú erum við komin á eyju í Adríahafi sem heitir Hvar og virðist við fyrstu sýn vera algjör gimsteinn. Hér ætlum við ekkert að gera nema slaka á og hver veit nema ég skelli mér í sólbað. Er komin með frekar leiðinlegt hlírabolafar sem ég þarf að vinna í..  

Sem fyrr eru fullt af myndum komnar inn á myndasíðuna!

Skrifað June 5th, 2010 af erna í flokkum Uncategorized

5 Responses to “Meira Króatíustuð”

  1. Amma Solrun says:

    Takk kaerlega fyrir thessa skemmtun.Mikid ofsalega erud thid dugleg og Larus saetuir. Jon Gnarr yrdi areidanlega feginn ad fa abendingu um sjavarorgel. Thad gerdi Reykjavik skemmtilegri.

  2. amma Soffía says:

    Gott að heyra að allt gengur vel og gaman að sjá myndir úr ferðinni. Hann sprettur greinilega vel litli ömmukallinn og hann er svo knúsulegur að ömmu finnst ekkert skrítið að allskonar fólk gefi sig að ykkur til að fá að pota aðeins í hann.Hann verður kominn á ferðina áður en þið vitið af miðað við lýsingarnar á tilburðunum við að skríða og standa upp! Hlakka til að fá að knúsa hann og kjassa í næstu viku! :)

  3. Marta says:

    Yes! Nýtt blogg! Vúhú!
    Alltaf jafn skemmtilegt að lesa ævintýrasögur og sjá myndir af litla rassgatinu. Ykkar bíður svo annar skemmtilegur og spennandi staður á heimsminjaskrá UNESCO þegar þið komið aftur á Frónið, nefnilega Pingvalla city! (Eins og Kanarnir spyrja gjarnan um)

    Hlakka til að hitta ykkur á Spáni! Er búin að vinna 123 klst síðustu 8 daga og 3 dagar eftir enn. Það sem maður leggur ekki á sig til að hitta ykkur.. ;)

  4. Ólöf Heiða says:

    Húrra fyrir ferðablogginu :) Gaman að lesa sögur af ykkur og öllu því skemmtilega sem þið eruð að gera. Ég reyni að upplifa ferðalög í gegnum ykkur þegar ég er alveg að krepera á skrifstofunni! Lalli greinilega orðinn mikill heimsborgari þrátt fyrir ungan aldur.

    Ps: hvenær komi þið aftur heim?

    Kv. Ólöf

  5. Erna says:

    Amma Sólrún: Já þessi hugmynd verður komið til borgarstjórans! ;)

    Amma Soffía: Já hann er frekar knúsulegur. Og nú eru líka bara nokkrir dagar í að þú getir knúsað hann sjálf! :)

    Marta: Guð minn góður ég vona að þú sért að njóta frísins. Við erum mjög ánægð með það sem þú hefur lagt á þig fyrir okkur.. hlökkum til að hitta þig og að fara í nostalgíuferð til Sevilla með þér! :)

    Ólöf Heiða: Þú verður bara að koma þér af skrifstofunni kona! ;) Já Lalli er orðinn gífurlega lífsreyndur eftir þessa ferð og kominn með 3 stimpla í vegabréfið sitt og allt! :) Við komum heim 23. júní.

Leave a Reply