Sumar sumar sumar

IMG_6404Æðislegt fyrsta sumar Lárusar. Síðasta vika var auðvitað bara eins yndisleg og íslenskt sumar verður og við Lárus nutum þess í botn. Ég rölti með barnavagninn um miðbæinn og naut sólarinnar á Austurvelli með krílinu. Lárus er orðinn svo svakalega duglegur að sitja og koma sér úr sitjandi stöðu á magann að hann getur nú rannsakað umhverfi sitt, smakkað aðeins á grasinu og svona. Þetta er alveg ótrúlega skemmtilegt og maður sjálfur kynnist heiminum bara alveg upp á nýtt í gegnum litla dýrið. IMG_6351

Lárus er líka byrjaður að koma sér aðeins áfram en yfirleitt kemst hann bara afturábak. Við foreldrarnir erum að vona að skriðtæknin fari að þróast aðeins hjá honum en við þurfum stöðugt að vera að bjarga honum úr hornum alveg fokillum yfir þessu getuleysi sínu.

IMG_6395Annars er Lárus orðinn algjör matgæðingur og hámar í sig kjöt og hvaðeina. Hann er þó sérstaklega hrifinn af kæfubrauði og hendir öllu frá sér þegar hann sér möguleika á slíkum kræsingum. Þessi átgleði barnsins veldur því að við foreldrarnir (eða öllu heldur brjóstin á mér) erum aðeins frjálsari og höfum nýtt okkur það til þess að fara í grillveislur, bíóferðir og almennt stuð enda ótrúlega rík af yndislegu pössunarfólki. Ég sló þessu m.a.s. upp í kæruleysi og fékk mér í fyrsta sinn í glas (heila fjóra litla bjóra hvorki meira né minna) og varð ótrúlega hress.

IMG_6148

Í byrjun júlí fórum við með ömmu Sólrúnu og afa Þórð í óvissuferð til Svíþjóðar í tilefni af sjötugsafmælis þeirra. Í Svíþjóð hittum við Steinunni, Árna Grím, Nínu Þorbjörgu og Þórð og öll saman héldum við svo með ferju til Visby á Gotlandi. Þetta var ótrúlega skemmtileg ferð enda Visby gullfallegur miðaldarbær og veðrið lék við okkur, rúmlega 25 gráðu hiti og sól allan tímann. Það var gaman að sjá litlu frændurna saman en þeir geta þó verið ansi harkalegir hvor við annan. Þórður hefur einmitt gífurlega hreyfigetu og þeysist um frænda sínum til mikillar öfundar.

IMG_6387

Stórfjölskyldan hélt síðan ferðalaginu áfram þegar til Íslands var komið og fór hringinn í kringum landið. Vorum furðulega heppin með veður allan tímann og hefðum alveg viljað stoppa oftar, alveg hrikalega fallegt land sem við eigum. Síðasta hluta ferðarinnar dvöldum við í orlofsvillu afa Þórðar og ömmu Sólrúnar á Akureyri þar sem alltaf er svo gott að vera! Semsagt ótrúlega vel heppnaðir alþjóðlegir fjölskylduendurfundir.

Skelli inn einni mynd af hjónunum í tilefni afmælanna.IMG_6117

Á þessum tveimur vikum sem við höfum verið heima höfum við haft það afar notalegt, notið þess að sofa í okkar rúmi og grillað allskonar góðgæti.  Það verður samt að segjast að litla íbúðin okkar er orðin ansi þröng og þrengist enn frekar núna þegar við erum að bíða eftir því að fá stóru flottu íbúðina okkar á Hofsvallagötu afhenta. Við erum vægast sagt mjög spennt og erum mikið að velta fyrir okkur eldhúsinnréttingum, húsgögnum, baðkerum og garðumhirðu (við eigum garð!!). Við erum búin að gera upp litlu íbúðina í kjallaranum sem við fengum afhenta við undirritun og höfum leigt hana út. Nú bíðum við bara og bíðum eftir hinni en við ættum að fá hana í síðasta lagi í lok október. Hlakki hlakki hlakk!

IMG_6365Næst á dagskrá hjá litlu fjölskyldunni er ferð í Blöndalsvilluna á Spáni þar sem amma Soffía og afi Lalli, Brynja frænka og Andrea frænkuvinkona bíða okkar og í þetta sinn kemur Anna Biddý frænka með okkur. Svo ætlum við vonandi að flækjast aðeins meira um Ísland, fara með Mörtu og Steini í epíska fellihýsaferð og hefja árlega berjatínslu- og sultugerðar-geðveiki.

Við erum orðin svo langt eftirá með myndir að mér fallast hendur við það eitt að hugsa um það. Ætla að skella þeim inn sem fyrst en það er bara svo erfitt að vera svoleiðis tölvustússi á fallegum sumarkvöldum.

IMG_6273

Knús á alla!

Skrifað July 26th, 2010 af erna í flokkum Uncategorized

9 Responses to “Sumar sumar sumar”

  1. Ella says:

    Æðisleg færsla – er líka mjög sátt við þróunina á matarást litla mannsins! Ójá!

    Held ég hlakki næstum jafn mikið til íbúðarafhendingar, góðir og gleðilegir tímar framundan. Svo mikið er víst :)

  2. erna says:

    Ó guð já! :) Tilhlökkun í algjöru hámarki! Svo ekki sé minnst á heimsókn ónefnds Ástralíuvinar! :)

  3. Brynja says:

    hlökkum ekkert smá mikið til að fá ykkur út! sakna lalla rosalega þegar ég sé þessar myndir!
    KNÚS

  4. Brynja says:

    hlökkum ekkert smá mikið til að fá ykkur út! sakna lalla rosalega þegar ég sé þessar myndir!
    KNÚS

  5. Brynja says:

    hlökkum ekkert smá mikið til að fá ykkur út! sakna lalla rosalega þegar ég sé þessar myndir!
    KNÚS

  6. Brynja says:

    ókeei.. er kannski alveg svona spennt að fá ykkur út.. alveg óvart að skrifa þrisvar hah!

  7. Þorbjörg says:

    Ég hlakka sko alveg pottþétt jafnmikið til og þið að fá nýja húsið… Sé fyrir mér dásamlega tíma, skreppa í kaffi, láta Viktor og Lalla leika sér í garðinum, fá einhvern með mér út að hlaupa og svo framvegis… :) Ég skal bara fara og reka kallinn út…
    Krúttulegasta mynd í heimi af krúttulega kallinum þessi síðasta, guð minn góður! :D

  8. Erna says:

    Brynja: … ok engan æsing, bara nokkrir dagar til stefnu! ;)

    Þorbjörg: Oh já ÉG HLAKKA SVO TIL!! Já þessi pósa hans er ótrúlega fyndin, hann gerir þetta oft og starir á mann með stóru augunum sínum. Mjög gott krúttleikaeffort! :)

  9. Steinunn says:

    Myndir – vei, vei, vei! Myndir – vei, vei, vei!

Leave a Reply