Niðurtalningin hafin.. 22 dagar.

number22

Það er bara kominn desember allt í einu! Minn mánuður loksins! Ég er hætt að telja í vikum og byrjuð að telja í dögum, 22 dagar eftir í settan dag. Rosalegt! Jóladagatalið fær algjörlega nýja merkingu.

Annars var ég voðalega ónýt alla síðustu viku þar sem ég hélt ég væri komin með meðgöngusykursýki eftir að hafa lesið um helstu einkenni hennar í meðgöngubókinni minni. Var orðin agalega veikburða og slöpp og hafði gífurlegar áhyggjur af minni heilsu og afkvæmisins. Sannfærði ljósmóðurina mína því um að senda mig í sykurþolspróf þó ég hefði heyrt að það væri alveg hræðilega ógeðsleg lífsreynsla. Enda var þetta kannski ekkert besta upplifun lífs míns þó svo að mér hafi alls ekki fundist hún hræðilega ógeðsleg. Ég þurfti að fasta í 10 tíma og mátti hvorki fá vott né þurrt, var nokkuð sama um það þurra en ég hangi bókstaflega á krönunum þessa dagana og fékk ónotatilfinningu bara af því að hugsa um að mega ekki drekka neitt svona lengi! Ég mætti í prófið skrælþurr í munninum og með garnagaul í brjóstunum (held að maginn á mér sé þar núna) og var látin drekka svona ágætis mjólkurglas af sykurupplausn. Frekar viðbjóðslegt á fastandi maga en ég skellti þessu bara í mig á nokkrum augnablikum.  Svo fékk ég að leggjast í Lazy-Boy og slappa af í nokkra klukkutíma og teknar voru blóðprufur á klukkutíma fresti til þess að kanna hvernig líkaminn ynni úr sykrinum. Ég reyndist vera með stórkostlegt sykurþol og var útskrifuð með hæstu einkunn. Hefur liðið mjög vel síðan og Jens hefur greint mig með meðgönguímyndunarveiki á öðru stigi.37-3

37-1Ég held að bumban sé farin að síga eitthvað því ég er farin að finna fyrir henni þegar ég labba og í stað þess að líða öðru hverju eins og ég sé með melónu í klofinu þá virðist sú tilfinning ætla að verða nokkuð stöðug héðan í frá. Það á að vera mjög eðlilegt nú þegar fæðing er yfirvofandi. Set inn bumbumyndir þessarar viku, nr. 37 og fólk getur dæmt um þetta sjálft með samanburði við aðrar bumbumyndir. Svo er ég komin með töluverðan bjúg og er því orðin enn kringluleitari og get ekki verið með giftingarhringinn nema um hálsinn. Systur mínar hafa gefið mér viðurnefnið Mr. Blobby af dularfullum ástæðum.

Jens og hrúgurnar-4 lítill galli-4 Mamma og pabbi stóðu sig með stakri prýði í New York og var næstum liðið yfir mig þegar ég sá alla dýrðina sem streymdi upp úr töskunum hjá þeim. Litlar peysur, samfellur, húfur og fleira, barnapíutæki, órói, teppi og rúmföt… Þetta var ólýsanlegt. Er hálfnuð með þvott&strauj og get ekki hætt að skoða þetta litla dót. Finnst mjög óraunverulegt að eftir fáeinar vikur verði ég kannski með lítinn snúð og get klætt hann í öll þessi föt. Læt fylgja með mynd af hrúgunum sem sumir myndu segja að væri ekta tilfelli af first-time-grandparents-syndrome. Jens er mjög ánægður.

kalkúnninn-4Við Jens gefum enn ekkert eftir í félagslífinu og héldum mikla þakkargjörðarhátíð með elsku vinum okkar um síðustu helgi. Þetta er þriðja árið í röð sem við höldum hana hátíðlega og að sjálfsögðu var allt eftir bókinni, kalkúnn með fyllingu og öllu hefðbundnu meðlæti eins og sætri kartöflustöppu með sykurpúðum og svo voru pumpkin paa og pecan paa í desert. Ótrúleg máltíð og fólk lá eftir eins og hráviði um stofuna í matarkóma. Þórunn og Þorbjörg áttu mest í eldamennskunni þetta árið og þökkum við þeim kærlega fyrir okkur!

Við erum búin að setja upp myndasíðu á Spiderblanket, uppi til vinstri, en aðgangur að þeirri síðu verður takmarkaður. Leyniorðið er vinnuheitið á barninu í bumbunni Á ENSKU. Ég gleymdi víst að segja það í síðustu tilkynningu mörgum til mikillar gremju. Þeir sem ekki vita mega endilega hafa samband, hvort sem þeir gera það á samskiptasíðum, með sms eða tölvupósti. Svo ætlum við að setja upp kerfi svo fólk geti sent okkur tölvupóst þegar það fer inn á myndasíðuna.

Þar til næst..

Skrifað December 1st, 2009 af erna í flokkum Uncategorized

Kósýheit í skammdeginu

mandarínur2-2 Skammdegið getur verið mjög kósý. Sit hér í kertabaði og slappa af með piparkökur og ískalda mjólk og horfi með öðru auganu á New in Town sem er rómantísk gamanmynd með jólaívafi. Jens hefur það einnig náðugt í stól sem átti að vera óléttu/brjóstagjafastóll en hefur meira verið lesstóllinn hans og ranghvolfir augunum yfir sumum.. jæja, flestum atriðunum í myndinni.

Við stóðum okkur ótrúlega vel í vikunni, keyptum kommóðu í IKEA og skiptiborð sem hægt er að festa ofan á hana, ég tók saman hvaða barnaföt vantaði og gekk frá þeim sem þegar voru tilbúin í kommóðuna. kommóða-2Mamma og Pabbi eru núna að njóta lífsins í New York en ég sá til þess að þau (a.m.k. mamma) hafa ekki setið auðum höndum. Pabbi hringdi í mig eftir einn verslunarleiðangurinn og taldi líklegt að loka hafi þurft barnadeildinni í Macy´s eftir að mömmu var hleypt í hillurnar. Svipað átti sér stað í Pottery Barn. Núna klæjar mig í puttana að sjá allt góssið og klára að þvo og strauja. Ú je! Auk hetjuskapsins sem átti sér stað í Ikea þá keyptum við þrjár jólagjafir!! Bara nokkrar gjafir eftir. Enda bara 32 dagar í jól og hver veit hvenær litli lætur sjá sig. Hef einnig jólað Blásalina aðeins, sett mandarínur og piparkökur í skálar og raðað jólastöfum á vísa staði.

Ég fann það í jólagjafaleiðangrinum að ég verð voða fljótt þreytt og fæ öðru hvoru á tilfinninguna að ég sé með melónu í klofinu þegar ég labba. Sounds nice, feels even better. Annars er ég enn í miklu stuði og stóð mig m.a. að því að dansa af mikilli hörku við eldhústiltektina í dag. Þurfti auðvitað að setjast niður fljótlega fnæsandi eins og flóðhestur en ansi glæsilegt engu að síður. 35 vikur - redneck-1

bumba tæpar 36-2 Við fórum í afmælis-grímubúningapartý til Þórunnar og Ómars um síðustu helgi og var það virkilega skemmtilegt. Ég og Jens tókum skyldu okkar til þess að mæta í búningum auðvitað mjög alvarlega og fór Jens sem Arabíu-Lawrence og ég sem viðbjóðslegi redneckinn úr Deliverance með skegg, mullet, bumbuna lafandi undan bolnum og bara almennt ógeð. Ég var vægast samt viðbjóðsleg! Læt fylgja mynd af mér í búningnum og svo aðra venjulega bumbumynd af mér að síga í 36 vikurnar svo þið munið hvað ég er nú samt ágæt.. Vona að allir átti sig á því hvor er hvað.

Ekki náðist mynd af Arabíu-Jens sem er virkilega miður því Jens valdi að fara leið sem margar stúlkur fara í slíkum búningaveislum og fór sem sexý-Arabíu Lawrence. Fólst það í því að hann var ekki í neinu undir kuflinum. Stóð sexý hjúkkum og skátastúlkum vel á sporði og kvenþjóðin var gjörsamlega tryllt.. eða hefði verið það hefðu þær vitað hvernig á stæði.

Hafið það kósý!

Skrifað November 22nd, 2009 af erna í flokkum Uncategorized

Fernur eiga framhaldslíf

Þegar maður er búinn að taka svona langan tíma í að blogga ekki er nauðsynlegt að fyrirsögnin stuðli.
Það er hins vegar það eina sem er nauðsynlegt. Annað sem er að gerast? Stuttu eftir að ég skrifaði síðustu færslu datt nánast upp í hendurnar á mér sími með stillanlegu snooze og get ég haft það allt frá 30 sekúndum upp í 6 klst. Ég valdi að sjálfsögðu 6 mínúturnar og svefn minn hefur breyst mikið síðan.
Svo voru jólin bara mjög góð, eins og vera ber en stuttu eftir þau tók furðufuglinn hún systir mín upp á því að gifta sig, en það verður lengi í minnum haft sem sérkennileg hegðun á þessum tímum. Það var hins vegar heljarinnar partý og gleði sem því fylgdi og allt gott um partýið, Steinunni, Árna, Nínu Þorbjörgu og aðra aðila sem máli skipta í því samhengi að segja.
Þvínæst var farið í sumbl og tónleikaferð til Kaupmannahafnar að hitta hetjurnar Dag Bjarnason og Gunnar Eyþórsson sem þykjast stunda þar nám. Námslánum þeirra fyrir vorið var eytt í allskyns vitleysu eins og vera ber þegar fólk kemur í heimsókn og munu þeir nú lifa á loftinu og framkvæmd gjörninga það sem eftir lifir vetrar. Þar á meðal ætlar Gunnar Eyþórsson næstkomandi fimmtudag að hanga á hvolfi úr þyrlu yfir Jónshúsi nakinn meðan hann makar á sig leir í íslensku fánalitunum. Allir velkomnir en boðið verður upp á kaffiveitingar í boði Íslendingafélagsins eftir á.
Einn af nokkrum hápunktum ferðarinnar var ferð á tónleika hjá útvarpssinfóníuhljómsveit Dana, þar sem píanókonsert nr. 3 eftir Rachmaninoff var leikinn og einleikari var enginn annar en Arcadi Volodos sem stóð sig að vonum vel en gamalmennin í salnum misstu hann því miður út eftir aðeins eitt tiltölulega lágstemmt aukalag og er skömm að því. Eftir hlé var spiluð sinfónía nr. 4 eftir Tjaíkovskí sem ekkert okkar kannaðist við. Við létum að sjálfsögðu eins og við værum gestir við frumflutning hennar og komumst að þeirri niðurstöðu að fyrstu tveir kaflarnir væru lágstemmd og þreytandi rússnesk sveitarómantík meðan þriðji kaflinn var frumlegur og fjórði var kraftmikill. Í það heila var skemmtileg tilbreyting að koma í sal sem hentar betur til sinfóníutónleika en Háskólabíó en segja verður að mikinn mun sé að finna, jafnvel þó nokkuð sé liðið frá því að maður leit við á þær slóðir.
Annars hefur verið í nógu að snúast í vinnunni, enda mikið um dýrðir í starfi sem mínu á þessum tíma árs. Þó hef ég komist í það að vinna úr niðurstöðum í útreikningum á töff-stigum sem reikninet háskóla á norðurlöndum hefur verið að vinna undanfarnar vikur og nú hafa þau verið færð inn.
Hver er annars þessi HM í Handbolta sem allir hafa verið að tala um? Er hann í Frjálslynda flokknum?

Skrifað January 30th, 2007 af jens í flokkum Elsta Spiderblanket