14 dagar
Heil vika flogin! Hvernig gerðist það?? Skrýtið, mér finnst hver dagur líða frekar hægt en í heildina líður þetta súper hratt. Ég er orðin gífurlega stór og feit og Jens vill helst að ég lyfti ekki neinu eða geri neitt sem tekur hið minnsta á, hann heldur kannski að ég reki mig í og beinlínis springi. IT´S GONNA BLEEEEW!
Þar sem ég er í bilaðri hreiðurgerð og fæ fiðring bara af því að hugsa um allt sem hægt er að gera til að betrumbæta íbúðina fyrir komu afkvæmisins, hefur aumingja Jens þurft að hlaupa á eftir mér og gera eins og ég fyrirskipa. Hann getur sjálfum sér um kennt fyrir að vera svona krúttlega ofverndandi en mér líður stundum eins og ég sé að spila tölvuleikinn SIMS þegar ég sit og skipa fyrir og læt hann þeysast um íbúðina með húsgögn eða þvott. Hann fær í staðinn að gera grín að undirhökunni minni og hlæja þegar ég festist í rúminu og veltist um eins og skjaldbaka á bakinu.
Með þessu sameiginlega átaki höfum við afrekað ótrúlega miklu á síðustu vikum og var heimilið orðið nokkuð ásættanlegt allt þar til ég ákvað að taka verulega þvottatörn eitt kvöldið og bræddi úr þvottavélinni. Ég hafð
i hent í eina brúna/bláa súperkrúttfatavél og farið fram til Jensa að horfa á jólamyndina It´s a wonderful life (sem er æææðisleg) en brátt fannst sterk hitalykt er reyndist koma frá þvottavélinni. Við tókum vélina úr sambandi og Jens rannsakaði málið gaumgæfilega. Þar sem vélin, af tegundinni Upo, var orðin 5 ára, hafði fyrir um tveimur mánuðum gefið frá sér svipaða hitalykt og ég er sjúklega eldhrædd, var niðurstaðan henni ekki í hag. Hundruðum þúsunda króna síðar erum við stoltir eigendur Electrolux þvottavélar OG þurrkara! Þvílíkt glæsipar! Heimilið er hins vegar allt í rústi, pakkningar úti um allt og þar sem hinu geypilega drasl-jafnvægi þvottahússins var raskað með þessari tækjaviðbót þá stefnir í mikla líkamsrækt hjá Jens á næstu dögum.
Annars er allt gott að frétta af meðgöngunni, afkvæmið er fastskorðað djúpt í grindinni, tilbúið til þess að mæta á svæðið og ég er tiltölulega hress bara. Dreymir samt um a
ð láta setja upp hjá mér þvaglegg fyrir nóttina (anyone?) og sofa í 8 tíma samfleytt. Þessir 1 og 2 klukkutímar á stangli eru ekki alveg að duga mér svona til lengdar með fullri vinnu enda sef ég oft yfir mig eða mæti með zombie-augnaráðið. Ljósan mín hefur miklar áhyggjur af þessu og þegar mæðraskoðun í dag sýndi töluverðan bjúg, bauga og hækkun á blóðþrýstingi vildi hún að ég myndi hætta að vinna strax. Ég veit bara ekki alveg hvað ég á að gera hangandi heima í tvær vikur á meðan allir eru í vinnu og prófum auk þess sem mér finnst voðalega gaman í vinnunni og ágætt að vera sem lengst innan um fólk og tala um “fullorðinshluti” áður en hið mikla valdarán frumburðarins á sér stað og líf mitt fer (ef allt gengur vel) að snúast um bleyjur og brjóstagjöf.
Þegar ég svona hummaði þetta fram af mér skrifaði ljósmóðirin í mæðraskýrsluna að ég neitaði að hætta að vinna þrátt fyrir eindregnar ráðleggingar ljósmóður og sagðist svo vilja sjá mig aftur í næstu viku til að fylgjast með blóðþrýstingnum og ræða við lækni. Geðlækni? Ljósan mín er samt alveg frábær. Hún hefur engar fyrirfram ákveðnar skoðanir varðandi meðgöngu, fæðingu eða brjóstagjöf sem hún vill endilega troða upp á mig og er alltaf mjög vingjarnleg sama hvers konar skrímslatölur birtst hafa á vigtinni (það er ekki skylda að vigta sig heldur vil ég sjálf fylgjast með). Mér finnst líka bara notalegt að fá viðurkennt að það sé eðlilegt að vera þreyttur og hálf- eh.. aumingjalegur einhvern veginn og láta einhvern segja sér að maður ætti nú bara helst að hjúfra sig upp í rúmi með heitt súkkulaði og jólamynd og hætta öllu stressi. Hmmm… hver segir nei við þannig tilboði?? Kannski ER ég geðveik! En að öllu gríni slepptu þá hef ég fengið heimild til að breyta vinnufyrirkomulaginu mínu töluvert
nú í vikunni sem ætti að gera lífið mun auðveldara og fela í sér meiri svefn. Ef mínu líkamlega ástandi hrakar svo enn frekar á næstu dögum verður málið endurmetið.
Jæja búið í bili enda orðið allt of langt! Jens hefur hótað að skrifa mjög ómerkilegt blogg á næstu dögum (hann ætlaði reyndar að skrifa það um helgina en gerði það ekki og ég vildi setja inn færslu) svo ég býst við að þið fylgist spennt með!!